Eggert Sólberg

Kastljósdómurinn

Með tap gagnvart siðanefnd blaðamannafélagsins mæta starfsmenn Kastljóssins í héraðsdóm þar sem þeir eru krafðir um bætur að hálfu tengdadóttur Jónínu Bjartmarz. Hérðasdómur hafnar kröfum um bætur en segir þrátt fyrir það í dómnum ýmislegt sem gæti reynst Kastljósinu eitrað. Starfsmenn þar eiga t.d. ekki að hafa vandað málsmeðferð auk þess sem þeir gáfu í skyn að afgreiðsla umsóknar Luciu um ríkisborgarétt hafi verið óeðlileg. Sigur Kastljóssins er því kannski ekki jafn mikil sigur halda mætti í fyrstu. Í dómnum segir m.a. orðrétt.

Hins vegar er fallist á að ekki hafi verið vandað nægilega til undirbúnings umfjöllunar um málið í upphafi og gætt hafi ónákvæmni og að sumu leyti ekki farið rétt með staðreyndir um málsmeðferð varðandi umsóknir um ríkisfang.

og seinna segir:

Af gögnum máls verður ekki ráðið að afgreiðsla umsóknar stefnanda Luciu um íslenskan ríkisborgararétt hafi verið önnur en almennt gerist, eins og gefið var í skyn í upphaflegri umfjöllun Kastljóss um málið.

Comments RSS

Leave a Reply