Eggert Sólberg

Aston Villa á leið til Íslands?

Verði dráttur morgundagsins fullkominn spilar Aston Villa á Íslandi í ágúst. Bæði Villa og FH verða í pottinum þegar dregið verður í seinni umferð undankeppni UEFA bikarsins. Enska liðið verður í efri styrkleikaflokki og Hafnfirðingarnir í þeim neðri. Líkurnar á að liðin dragist saman eru 1/10 sem eru bara ágætis líkur. Í hugum stuðningsmanna Villa er þó stóra spurningin ekki sú hvar liðið þarf að leika sinn næsta evrópuleik heldur hvort Gareth Barry verði enn í liðinu sem spilar leikinn. Það væri mikill missir fyrir klúbbinn fari hann til Liverpool.

Comments RSS

Leave a Reply