Eggert Sólberg

Yngsti þingflokkurinn

Við framsóknarmenn höfum svona smá montað okkur af því að eiga yngsta þingflokkinn á Alþingi Íslendinga.  Eftir þær pólitísku hamfarir sem gengið hafa yfir síðustu daga er meðalaldur þingmanna Framsóknar yngri en hann var áður eða tæp 42 ár. Næstur í röðinni kemur þingflokkur Samfylkingarinnar sem er hefur 50 ára meðalaldur. Hjá Sjálfstæðismönnum er meðalaldurinn rúmlega 50 ár og hjá Vinstri grænum er hann rúmlega 54 ár. Lestina reka síðan Frjálslyndir þar sem meðalaldurinn er tæp 59 ár.

Önnur skemmtileg tölfræðipæling eru kynjahlutföllin hjá Framsókn í dag. Konur eru 57% þingmanna (fjórar af  sjö) og er það hæsta hlutfall kvenna í blönduðum þingflokki svo ég muni eftir. Samfylkingin var með 53% hlutfall kvenna í sínum þingflokki 1999 (níu af sautján). Þá fylla konur nú framkvæmdastjórn flokksins þar sem formaður, ritari, formaður þingflokks, formaður SUF og formaður LFK eru allt konur.

5 Responses to “Yngsti þingflokkurinn”

  1. Óli Gneistion 23 nóv. 2008 at

    Kannski að þið ættuð að hvetja þá elstu til að segja af sér líka? Eða bara kallana? Þá yrðu hlutföllin ennþá betri ;)

  2. Eggert Sólbergon 23 nóv. 2008 at

    Nei, nú er röðin komin að hinum þingflokkunum að taka til hjá sér ;-)

  3. Þórunn Kjartansdóttiron 23 nóv. 2008 at

    Er ekki hið fullkoman hlutfall milli kynja 50% . Heyri engann flokk monta sig af því að hafa hæsta hlutfall af köllum á þingi. Eða að það séu kallar í öllum helstu stjórnunarstöðum innan flokks. Það á alltaf að ríkja jafnvægi í svona er það ekki?

  4. Eggert Sólbergon 24 nóv. 2008 at

    Hið fullkomna hlutfall er 50/50. Það er reyndar í lögum Framsóknarflokksins að við skipan í trúnaðar- og ábyrgðarstöður innan flokksins sem og við val á framboðslistum skal hlutur hvors kyns ekki vera lægra en 40%. Þannig er reynt að jafna kynjahlutföllin. Það er hins vegar staðreynd að konur hafa af einhverjum ástæðum átt erfiðara uppdráttar í stjórnmálum en karlar. Þess vegna eru það gleðileg tíðindi þegar hlutfall kvenna í blönduðum þingflokki fer yfir 50%. Það mætti gerast oftar, það oft að slíkt þætti ekki tiltökumál.

  5. Þórunn Kjartansdóttiron 24 nóv. 2008 at

    já ég er sammála þér, það svona hlutir eiga að vera sjálfsagðir hlutir.

Comments RSS

Leave a Reply