Eggert Sólberg
feb. 11th, 2009
feb. 11th, 2009
Fréttablaðið auglýsir vísindaferðir
Það er mikið ánægjuefni að Fréttablaðið hefur nú tekið upp á því að auglýsa vísindaferðir fyrir háskólanema. Ég býst fastlega við því að þessum umfjöllunum eigi eftir að fjölga hratt enda eru ófáar vísindaferðirnar farnar um hverja helgi. Það hefði t.d. verið skemmtilegt ef Fréttablaðið hefði verið byrjað á þessu þegar þjóðfræðinemar fóru í Heimilisiðnaðarfélagið eða á Árbæjarsafn fyrr á þessu ári.
Ég er sammála, þetta er afar ánægjuleg nýbreytni hjá Fréttablaðinu.
Ætli það þurfi fréttablaðið til? Háskólanemar hafa nú hingað til verið fullfærir um að auglýsa vísindaferðir á eigin vettvangi og án nokkurs tilstillis Fréttablaðins.