Jan 1st, 2010
Dagurinn sem Sjálfstæðismenn fögnuðu
Nú veit ég ekki hvort þetta hefur komið fram áður en þegar ég horfði á innlenda fréttaannálinn á RÚV áðan rifjaði ég upp þingflokksfund sem ég sat 26. janúar 2009. Ég fór frá Hverfisgötunni à þinghúsið ásamt tveimur öðrum. Við fórum inn bakdyramegin à stað þess að eiga það á hættu að þurfa brjóta okkur leið framhjá mótmælendum á Austurvelli. Þegar ég kem inn à þinghúsið sé ég Geir H. Haarde standa à stiganum sem liggur upp à mötuneytið umkringdur fréttamönnum. Ég stoppa ekki heldur geng inn à þingflokksherbergi framsóknarmanna (græna herbergið) en heyri á leiðinni fagnaðarlæti à herberginu á móti, þ.e. þingflokksherbergi sjálfstæðismanna (bláa herbergið). Ég kveiki um leið á sjónvarpinu, sé Geir þá à beinni útsendingu og kemst að þvà að hann var að tilkynna um stjórnarslit. Ég er ekki viss um að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafi fagnað mikið oftar árið 2009.