26. janúar 2008
Horfðum loksins á The devil wears Prada í gærkvöldi. Fékk hana í afmælisgjöf frá Halla Snæ í fyrra. Hún var skemmtileg en voðalega hef ég litla þolinmæði gagnvart tískuheiminum. Finnst það svo óendanlega heimskulegt að það sé billjónabissness í kringum föt og snyrtivörur. Og allra verst hvað venjulegt fólk eyðir miklum tíma og peningum í þetta. En það eru víst misjöfn áhugamálin hjá fólki
Við eigum líka eftir að klára að horfa á My so-called life sem ég fékk í afmælisgjöf frá Óla, erum búin að horfa á 12 þætti, 7 eftir. Eins gott fyrir Óla að standa við sinn hluta samningsins (spurning um að setja tímamörk á næsta samning). Cosmos er líka í vinnslu, fékk þá þætti líka í afmælisgjöf frá Óla í fyrra. Markmiðið er að klára þetta fyrir afmælið mitt núna.
En við kláruðum Friends maraþonið um daginn. Ég fór næstum að gráta í síðasta þættinum. Ohh, hvað ég sakna þeirra.
22. janúar 2008
Mér finnst Villi viðutan allt annað en sannfærandi. Rétt upp hönd sem treystir þessum manni.
20. janúar 2008
Væri ekki réttast að jarðsetja Framsóknarflokkinn í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum?
13. janúar 2008
…ég varð föðursystir
…ég fékk gleraugu
…ég gekk til liðs við Háskólalistann (með engum árangri
)
…ég fór á Landsfund VG
…ég keyrði í fyrsta skipti ein og sjálf frá Reykjavík til Vopnafjarðar, tvisvar
…ég uppgötvaði hljómsveitina Cure
…ég eignaðist marga góða vini
…ég kind of glataði gömlum vinum, eða þeir mér
…ég fór í fyrsta skipti til útlanda með mömmu og Svenna bróður (og Hrönn og Frey, það er bara ekki jafn merkilegt
)
…ég fór í mína lengstu utanlandsferð til þessa, 12 dagar í Danmörku
…ég fór uppí turninn á Vor Frelsers Kirke í Köben (hafði reynt það áður 3 árum fyrr en gefist uppá miðri leið)
…ég fór á bekkjarmót (10 ára fermingarafmæli)
…ég keyrði yfir Hellisheiði eystri í fyrsta sinn sjálf, tvisvar (í annað skiptið var hávaðarok, hitt svartaþoka)
…ég keyrði hringinn í kringum Ísland
…ég skipti um vinnu og varð skjalastjóri
…ég prófaði að búa ein í fyrsta skipti á ævinni
…ég fór til Írlands
…ég ferðaðist í fyrsta skipti ein til útlanda
…ég hélt jól á eigin spýtur (með Óla að sjálfsögðu) í fyrsta sinn
…ég eldaði rjúpur í fyrsta sinn
…ég gerði ýmislegt fleira sem ég er að gleyma
Hey, já! Gleðilegt ár og takk fyrir öll þau gömlu