Sungið og leikið í Grafarvogskirkju
Endalaus söngur og spilerí í Grafarvogskirkju þessa dagana. Hrefna söng á jólatónleikum með barnakór kirkjunnar á sunnudaginn var og lék á blokkflautu á jólatónleikum tónlistarskólans á mánudeginum. Barnakórinn sló þvílíkt í gegn að hann var fenginn til að syngja í “Ísland í bítið” í morgun, í beinni úr Grafarvogskirkju. Fjölskyldan rifin á lappir fyrir allar aldir. Annað kvöld fer frúin með tengdamömmu á Gospelkór Oslóar. Og á sunnudeginum syngur Hrefna við messu.
Aðalmálið er samt auðvitað tónleikarnir í kvöld: Kórinn minn syngur Messías eftir Handel og Magnificat eftir Bach í einu helmössuðu aðventuprógrammi. Þetta verður rosalegt. Rosalegt.
Sæll. þarna ertu.
Eitthvað hafið þið skorið innan úr eða utan af Messíasi ef þið syngið hann ásamt Magnifikatinu. Við hjökkuðum á þessu í hálfan fjórða tíma forðum þegar við sungum Messías í Píslakór Roars Kvam.
En gaman að þið skulið mússísera. Vildi að ég gerði það.
svp
17 des. 06 at 16:03