Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Litl

3 athugasemdir

Jæja.

Ég var að renna augunum yfir blessaðan moggavefinn. Svona eins og maður gerir. Hélt ég hefði  fundið léttvægustu frétt dagsins í þessari hérna (sem annaðhvort Skapti eða Skafti hefði kallað nýja frétt um nýjar fornleifar):

Eyrnalokkur finnst eftir að hafa verið týndur í 73  ár!

En þurfti ekki að leita nema tveimur fyrirsögnum neðar til að finna þessa hérna:

Spears og Federline ná bráðabirgðasamkomulagi!

Sem er kannski líka frétt um nýjar fornleifar, svona á sinn hátt.
Oh, brother.

Hjörvar skráði

10. janúar 2007 kl. 14:22

Flokkað undir Almennt

3 athugasemdir við 'Litl'

Gerast áskrifandi að athugasemdum við 'Litl' með RSS eða TrackBack.

  1. *fliss* “Auk eyrnalokksins fundust þrjú sett af fölskum tönnum, glerauga, óhrjáleg hárkolla og brjóstahaldari við uppgröftinn.”

    hronnsa

    10 jan. 07 at 14:54

  2. Já. Það týndist greinilega ýmislegt þegar fólk tók “dýfu” í þessum rússibana. Hno, hno.

    Pezus

    10 jan. 07 at 16:53

  3. Já sú hefur ekki litið neitt sérlega vel út Þegar hún yfirgaf skemmtigarðinn á sínum tíma: Eineygð, sköllótt og tannlaus m.m.

    Vallitralli

    16 jan. 07 at 13:40

Svaraðu fyrir þig