Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Tímarnir okkar / Tímarnir afa og ömmu

4 athugasemdir

Hjaddna…

…sko…

…ekki það að mér finnist þeir ekki fínir og allt það…

…en hafiði heyrt nýja lagið með Sprengjuhöllinni? Þetta úr leikritinu fyrir norðan?

Ég var allavega að heyra það áðan í fyrsta skipti. Það var í útvarpinu sko. Þessu sem maður þarf að stilla á bylgjulengdina.

Alltaf svo fastur á tuttugustu öldinni.

Allavega.

Strax í fyrsta versi fór það að naga mig: Hvar hef ég heyrt þetta áður?

(Því ég hafði heyrt þetta áður. Og það ekki með Sprengjuhöllinni. Ég var alveg með það á tæru.)

Í öðru erindinu small það. Gerið svo vel, velkomin til fortíðar:

Hjörvar skráði

31. janúar 2008 kl. 22:39

Flokkað undir Almennt

4 athugasemdir við 'Tímarnir okkar / Tímarnir afa og ömmu'

Gerast áskrifandi að athugasemdum við 'Tímarnir okkar / Tímarnir afa og ömmu' með RSS eða TrackBack.

  1. Nú, hélstu að það væri til original hugsun í poppi? :p

    it’s all been done, and over, and over, again…

    hildigunnur

    31 jan. 08 at 23:12

  2. Jújú. Mér varð einmitt hugsað til Ingimars Eydal við hlustunina, blessuð sé minning hans. Hann hefði ábyggilega haft gaman af þessu, hefði hann lifað.

    Pezus

    31 jan. 08 at 23:31

  3. Ég hef aldrei skilið hvað fólki finnst svona merkilegt við Itchycoo Park.

    Magnús

    1 feb. 08 at 9:23

  4. Haha ég er búin að vera reyna átta hvaða lagi þetta líktist…

    Ármann

    1 feb. 08 at 20:55

Svaraðu fyrir þig