Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Fjórði dagur fyrstu viku

Ein athugasemd

Lífið er athyglisvert.

Ég hef síðasta mánuðinn verið að lesa Sjálfstætt fólk í strætóferðunum. Uppgötvaði á föstudagsmorguninn – rétt eftir að kýrin hafði verið skorin – að hér vantaði örk. Úr þeirri krísu greiddist í gær. Og horfir sosum ekkert illa með aðrar sem uppá komu síðar sama daginn.

En mikið sem maður finnur sig í honum Bjarti, slíkur ekkisens asni sem hann getur verið.

Á laugardagskvöldið komu Óli og Eygló og spiluðu Dilbert-spilið við okkur hjónakornin. Það fær mín bestu meðmæli. Og spillti ekki fyrir að akkúrat þessa helgina voru kjöraðstæður fyrir mig að spila það mér til hámarksánægju.

Á laugardaginn kemur fer ég í leikhús með stelpunum mínum – að sjá Gosa. Það verður vonandi gaman. En verra er að við hjónin höfðum ætlað okkur að fara á lokasýninguna á Útsýni hjá Hugleik á föstudagskvöldið var. Af því varð því miður ekki.

Já, lífið er svo sannarlega athyglisvert.

Hjörvar skráði

6. mars 2008 kl. 14:49

Flokkað undir Amstur, Dylgjur

Ein athugasemd við 'Fjórði dagur fyrstu viku'

Gerast áskrifandi að athugasemdum við 'Fjórði dagur fyrstu viku' með RSS eða TrackBack.

  1. já, ég missti líka af Útsýni. Elsta dóttirin fór bara í staðinn fyrir mig. Súrt samt.

    hildigunnur

    6 mars 08 at 15:19

Svaraðu fyrir þig