Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Fyndið grín

Ein athugasemd

Fyrir þremur árum gekk Hrefna í gegnum skeið þar sem hún uppdigtaði ýmsar mismunandi útgáfur af tómatur-sem-labbaði-yfir-götu brandaranum. Þær náðu hámarki í metafýsísku meistaraverki sem ég bloggaði um sællar minningar. Svo hætti hún á toppnum.

Það hefur farið minna fyrir þessu skeiði hjá Unu systur hennar. En upp úr eins manns hljóði sagði hún okkur þó brandara um daginn sem jafnast fyllilega á við þennan sem hlekkt var á að ofan:

“Einu sinni voru tveir bananar.

Svo fór einn yfir götuna og þá kom bíll og keyrði yfir hann.

Svo fór hinn yfir götuna og þá kom annar bíll og keyrði yfir hann.”

Pönsjin gerast ekki öllu súbbversífari en þetta.

Hjörvar skráði

29. apríl 2008 kl. 9:46

Flokkað undir Almennt

Ein athugasemd við 'Fyndið grín'

Gerast áskrifandi að athugasemdum við 'Fyndið grín' með RSS eða TrackBack.

  1. snilld

    Brynja

    5 maí 08 at 22:00

Svaraðu fyrir þig