Vindlar Faraós

Flesta daga vinnuvikunnar á ég leið gegnum samgöngumiðstöðina í Lyngby tvisvar á dag. Sem ég færi ekki í tal nema fyrir það að þar má finna tóbaksverslun með sama nafn og ofangreind Tinnabók.

Og hví nefnir hann það, skyldirðu spyrja?

Sosum ekki út af neinu sérstöku. Nema því að ég kemst alltaf í ágætt skap við að sjá blessaða búðina, þrátt fyrir varninginn.

3 Responses to “Vindlar Faraós”

  1. hildigunnur Says:

    Búið þið í Lyngby? Hvar þá? Við bjuggum efst á Toftebæksvej. Fínn staður.

  2. Hjörvar Says:

    Nei ég bý reyndar í Hróarskeldu. En uþb helftina af dvölinni hérna kommútera ég til Lyngby. Ég hef ekkert nema gott eitt um Lyngby að segja - þetta er snotrasti bær.

  3. Orri Says:

    Rakst á skemmtilegt viðvörunarskilti fyrir ofan gluggan á Björk í sumar: “VARÚÐ TÓBAKSVERSLUN” á þessu fína skilti. Ansi skondið bara… ha?

Leave a Reply