Kastrup, hlið B9
Fyrir framan mig er maður að dansa við fríhafnarkerru.
- – -
Ég velti fyrir mér hvað málið væri með alla þessa sportbari, afhverju þeir eru allir með græna veggi. Svo áttaði ég mig á því að báðir þeir sportbarir sem ég hef komið inná hérna heita O’Leary’s (hér og á Hovedbanestation) og græni liturinn því meira að gera með írsku vísunina.
- – -
Og fyrst ég hef opnað fyrir vitleysislokann í dag (sjá geimfarakomment hjá Sverri Jakobssyni): Á DTU héngu um tíma plaköt upp um alla veggi með risastórri áletrun:
SKITUR!
Ég staldraði alltaf við og lenti á villigötum með hausinn á mér þartil ég sá myndina af skíðafíflinu í púðursnjónum sem fylgdi með.
Ég man ekki smáa letrið.
- – -
Annað plakat sem hefur fengið mig til að staldra við: “Vild med dans! – Nyt komedishow med LINDA P.”
- – -
Jæja, það er farið að hleypa inn. Bara tveir tímar að ég verði kominn heim.
Ég var einmitt að spá hvers vegna Buzz væri ekki þarna.
Óli Gneisti
25 sept. 08 at 18:12
Ég skautaði bara of hratt yfir þetta – sá eintóma Rússa og Neil Armstrong. Internetblinda. En auðvitað mundi hann eftir “The 2nd man on the moon.” Það er brautruðningur.
Sé hjá mér villu hér að ofan annars: Ef mig misminnir ekki, þá heita þættirnir hennar Lindu Pé “Vild med Talent!” Sem er náttúrulega pínu fyndið útaffyrir sig ef maður sé í Danmörku.
Hjörvar
26 sept. 08 at 14:29
Njóttu vel faðmanna sem bíða heima, knús frá okkur til ykkar
Brynja
26 sept. 08 at 16:27
Af alfræðikvikvefnum:
Gunnar J Briem
27 sept. 08 at 0:30