Iktíófónus
Ég keypti mér fleytifulla krukku af dýrindis Ora Jólasíld um helgina.
Svo uppgötvaði ég núna í hádeginu að ég hef misst nánast alla lyst á henni. Það svífur alltaf fyrir augum mér graftarmyndskeiðið í RÚV-fréttum gærkvöldsins.
Æ, mig auman. Eins og hún var nú ágæt.
Maður hefur enga lyst á sild núna :S
Elsa
3 des. 08 at 18:50
hvaða hræðilega graftarmyndskeið, hvað er málið?
Brynja
4 des. 08 at 11:21
Er von þú spyrjir Brynja. Sjá eftirfarandi brot úr kvöldfréttatíma RÚV á fullveldisdaginn. Gröfturinn byrjar að flæða fljótlega uppúr því að fréttin er hálfnuð:
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4398127/10
Þetta snýst sumsé um sníkilinn iktíófónus (Ichthyophonus hoferi), sem leggst þungt á Íslandssíldina þessa dagana. Það er ekki um auðugan garð að gresja fyrir þá sem vilja fræðast nánar. Þó sýnist mér ljóst að þetta muni vera sveppur.
Hjörvar
4 des. 08 at 11:45
Þá dettur mér í hug lag með Billy Joel.
Magnús
4 des. 08 at 13:48
Athyglisvert. Eitthvert sérstakt lag, eða bara tónlist hans almennt (sbr. gröft og sníkjusveppi)?
Hjörvar
4 des. 08 at 13:53
Bæði.
Magnús
6 des. 08 at 14:45
almáttugur, hér verður engin jólasíld í ár
Brynja
6 des. 08 at 18:20