Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Lag dagsins

Ein athugasemd

Ég bara stenst ekki mátið.

Lag dagsins er náttúrulega “Ég las það í Samúel” með Brimkló.

Þetta fær mig til að skella uppúr af að minnsta kosti tveimur ástæðum.

Annars finnst mér þessi ummæli falla í flokk vanhugsaðra ummæla af svipuðu tagi og, tjah, þau um sætustu stelpuna á ballinu, eða “þú ert ekki þjóðin,” eða Bermúdaskálina. Svo dæmi séu tekin af handahófi. Allavega ekki þess verð að framtíð íslenskrar þjóðar vegi salt á þeim.

Og finnst mér óþarfi að eyða á það frekari orðum.

Viðbót: Jú og auðvitað “skítlegt eðli.” Hvernig gat ég gleymt því.

Hjörvar skráði

24. janúar 2009 kl. 13:59

Flokkað undir Almennt

Ein athugasemd við 'Lag dagsins'

Gerast áskrifandi að athugasemdum við 'Lag dagsins' með RSS eða TrackBack.

  1. Ætli þjóðin (sá hluti sem hefur vonda samvisku yfir að koma sér ekki til að mótmæla) hafi ekki þarna fengið kærkomið alíbí til að halda áfram að gera ekki neitt?

    Carlos

    24 jan. 09 at 14:35

Svaraðu fyrir þig