Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Þjónvarp: Froskasöngur og, öhh, froskasöngur

3 athugasemdir

Frúin nennir ekki að standa í því að hlaða myndböndum á netið, svo ég ákvað að taka að mér sjálfur að leyfa ykkur að heyra lætin í Lystigarðsfroskunum um daginn. Ég vek athygli á að sjá má Loga grípa fyrir eyrun vegna hávaðans:

Því miður erum við ekki með myndband af ofsafengna vininum þeirra.

En hins vegar langar mig að fleygja hérna inn í restina myndbandi með Stefáni Raab. Ég ætlaði fyrst að finna eitt af tuttugogfimm vandræðalegustu mómentunum í þýskri sjónvarpssögu, þegar hann var fenginn til flutnings í þýskum sönglagaþætti, ranglaði einsog rallhálfur inná sviðið og brosti fleðulega (og orðalaust) ofaní hljóðnemann á meðan hann heyrðist syngja hárri raust í gegnum allt lagið. En ég fann það hvergi. Svo í staðinn, og í tilefni af komandi Evróvisjón, kemur eitt af glæsilegustu mómentum Þjóðverja í þeirri ágætu sönglagakeppni. Þökk sé Stefáni Raab:

Og griðkonurnar hans syngja engu verr en Deutschland-sucht-ein-Superstar-þátttakendurnir sem við hjónin horfum á með öðru auganu og hálflokuðum eyrum.

Hjörvar skráði

9. maí 2009 kl. 20:40

Flokkað undir Almennt, Amstur, Eurovision

3 athugasemdir við 'Þjónvarp: Froskasöngur og, öhh, froskasöngur'

Gerast áskrifandi að athugasemdum við 'Þjónvarp: Froskasöngur og, öhh, froskasöngur' með RSS eða TrackBack.

  1. Hjörvar! Það er ekki klukkutími síðan ég var að reyna að koma því til skila á heimili mínu að Stefán Raab hefði átt eitt glæsilegasta framlag til Eurovision fyrr og síðar, aðeins Gildo gæti slegið honum við. Ég fokkíng sver það.

    Magnús

    9 maí 09 at 22:41

  2. [...] þessu á tveimur bónusum, þeim Guildo og Max (entransinn hans Stefáns hef ég birt hérna áður í öðrum [...]

  3. [...] Í gær var farið með hann í lystigarðinn (þar sem froskarnir höfðu mun hægar um sig en um daginn) og í dag var rúntað yfir í nágrannabæina Bebenhausen og [...]

Svaraðu fyrir þig