Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Af veðri

Ein athugasemd

Hér ganga yfir þrumur og eldingar. Það er dálítið magnað þegar maður er ekki vanur því.

Voðalega er maður heimaalinn eitthvað.

Svo horfir maður á sjónvarpið og reynir að venjast talsetningunni. Ég er næstum búinn að sætta mig við röddina í Vincent D’Onofrio í Criminal Intent – Verbrechen im Visier, en það er enn langt í að röddin í Gary Sinise í CSI:NY verði tekin í sátt.

Þrumur og eldingar.

Það hefur verið dálítið af þeim uppá síðkastið. Hlýtt, sólríkt og rakt fram eftir degi, svo þykknar upp milli fjögur og sjö og brestur svo á með þrumum, eldingum, skýfalli og í gær, í einu tilfelli, hagli á stærð við sykurmola. Það rigndi í alla nótt og var þungt yfir frameftir morgni.

Neckar var býsna skólplituð í dag. Og líka drullubrúnn litur á Neue Ammer, þar sem hann rennur gegnum miðbæinn.

Sólin skein um stund síðdegis. Svo þykknaði upp aftur, eins og áður var getið.

Í hádeginu voru soðnar kjötbollur með gulrótum og grænum baunum. Vantaði bara soðið hvítkál. Það var boðið uppá brokkólí, en það hefði ekki verið það sama.

Hjörvar skráði

11. maí 2009 kl. 20:32

Flokkað undir Almennt, Amstur

Ein athugasemd við 'Af veðri'

Gerast áskrifandi að athugasemdum við 'Af veðri' með RSS eða TrackBack.

  1. bara ekki reyna að nota Donnerwetter! sem blótsyrði, vinur minn var nærri valdur að dauða þýskrar stúlku úr hlátri með því…

    hildigunnur

    12 maí 09 at 9:30

Svaraðu fyrir þig