Þér ég ann
Dálítið merkilegur dagur sem þetta var í dag. Við hjónin áttum tíu ára brúðkaupsafmæli.
- – -
Við eigum margt saman. Og þrennt það yndislegasta er náttúrulega hjá okkur hérna úti í Tübingen, sofandi inní rúmum þegar þetta er ritað.
(Einsog reyndar frúin, ef útí það er farið.)
En eitt sem við höfum einhvernveginn aldrei átt er “lagið okkar,” þetta eina lag sem nútímagoðsögur segja að pör eigi sér og tengi þau saman gegnum það sem enginn skilur nema þau. Það bara einhvernveginn vill þannig til, þótt við höfum bæði yfirmáta gaman af tónlist.
Reyndar ekki alltaf þeirri sömu.
En það var heldur ekki þannig sem það byrjaði. Ekki með lagi. Þá væri tónlistin okkar sándtrakkið úr Pulp Fiction.
- – -
Fyrir tæpu ári síðan var ég einn úti í Danmörku meðan frúin var ein uppi á skerinu með ómegðina í fjóra mánuði. Þá var það einhvern eftirmiðdaginn að ég vafraði meðfram veggjakrotsskreyttum járnbrautarteinunum sem liggja gegnum Hróarskeldu. Sennilega á leið í bíó, á Batmanmyndina eða eitthvað. Þá kom hann Haukur til mín gegnum iPodinn með þessa perlu sem ég hafði aldrei tekið eftir áður, en hef aldrei síðan getað hugsað um eða hlustað á öðruvísi en að verða hugsað til konunnar minnar.
Árný mín, einhverndaginn langar mig að syngja þetta til þín. Bara verst að ég mun aldrei geta gert það jafnvel og hann Haukur:
Ljúft er það – það getur enginn toppað Hauk, en það væri ekki síður ljúft að hlusta á þig
Árný
20 júní 09 at 21:22
Til hamingju með daginn, bæði tvö
Við eigum 20 ára brúðkaupsafmæli í september, og trúið mér – næstu 10 ár eiga eftir að fjúka framhjá hraðar en þið trúið…
hildigunnur
21 júní 09 at 21:45
Til hamingju með brúðkaupsafmælið. Varð hugsað til ykkar um helgina en Sigríður töfraði fram swebískan dinner, kasespatzle og radler. Gaman að fylgjast með ykkur.
Einar Hafberg
22 júní 09 at 11:53