Ernst des Lebens

Þetta er þetta. Þetta er ekkert annað. Þetta. Er þetta.

Ort á leið heim úr vinnu

Engar athugasemdir

Fuglar syngja, krybbur kyrja,
kátur heim ég greikka sporið.
Á Íslandi fer brátt að byrja
blessað seinniskipavorið.

Á mig fellur sumarsnjór,
sætlega ilmar gróandinn.
Kannski ég fái mér kaldan bjór
er kem ég heim, og glóaldin.

Hjörvar skráði

4. júní 2010 kl. 14:28

Flokkað undir Kveðskapur

Svaraðu fyrir þig