Síðustu helgi fór ég á tvö þorrablót. Á föstudagskvöldinu var þorrablót hjá Þjóðbrók og við Hrafnkell ákváðum að láta sjá okkur þar. Hrafnkell spilaði undir fjöldasöng og við skemmtum okkur mjög vel. Vorum meira að segja með þeim síðustu til að yfirgefa staðin og það gerist nú ekki oft. (kannski verð ég að taka til baka þetta með aldurinn hér í fyrri færslu)
Síðustu tvö ár höfum við unnið í happdrættinu sömu bókina á þjóðbrókar þorrablótinu, hún var ekki í vinning í ár og því unnum við ekkert.
Á laugardeginum fórum við í 1. árs afmæli til Andreu frænku minnar og um kvöldið var fjölskylduþorrablót heima hjá Kristni bróðir.
Auðvitað var Rúberta spiluð eins og fjölskyldan er þekkt fyrir.
Var líka boðin í tvö önnur afmæli þessa helgi en lét mér tvo þorrablót og eitt afmæli nægja. En óska öllum afmælisbörnum til hamingju með áfangan.
Í gærkveldi var árshátíð hjá vinnunni minni. Þangað mættu 200 manns og var allt rosalega vel heppnað. Við fengum fordrykki þegar komið var inn og gat fólk valið á milli tveggja áfengra kokteila, bjórs eða óáfengsdrykks. Í forrétt fengum við Koníaksflamberaða Humarsúpu með rjóma og brauð með. Í aðalrétt fengum við nautalundir með bakaðri kartöflu og meðlæti. og í eftirrétt var heit súkkulaðikaka með rjóma. Þjónar helltu hvítvíni og rauðvíni á fullu í glösin og auðvitað gosi fyrir þá sem vildu það meðan á máltíð stóð. Skemmtiatriðin voru rosalega flott og var mikið stuð á fólkinu:) Happdrætisviningar voru ekki af verri endanum en fólk fór heim með ipod nano, gsm síma, digital myndavélar, rauðvínsflöskur, koníaksflöskur, wiskey og margt fleira. Við unnum auðvitað ekkert frekar en fyrri daginn. Upp úr 12 fórum við Hrafnkell í partí í Njarðvík hjá Sólrúnu sem vinnur með mér og vorum við þar þangað til við fórum heim. Alveg rosalega skemmtilegt kvöld:)
Í morgun þurfti síðan fólk að mæta í vinnu og voru menn misjafnlega hressir og sumir kannski andstæðan við hressir;) Ég var allvegana mjög fegin í morgun þegar ég keyrði reykjanesbrautina að ég hafi ekki drukkið meira rauðvín.
Okkur Hrafnkeli var bent á ýmsa kosti þess að búa í Reykjanesbæ og við eindregið hvött til að flytja þangað.
Við fengum líka að heyra frá einni sem vinur með mér að það væri rosalegur hjónasvipur með okkur;) hahaha þetta er í annað sinn sem þetta er sagt við mig og finnst mér þetta enþá jafn fyndið.:)
… var ég að passa Helga Fannar systurson minn sem varð þriggja ára núna í janúar. Átti við hann skemmtilegt samtal sem ég ætla að deila með ykkur.
Við vorum að horfa á teiknimyndir og ég ligg í sófanum Þá segir HFF: Ég ætla í fjallgöngu.
Frænkan: HA? fjallgöngu? (krakkinn þekkir enga sem fer í fjallgöngur svo ég var voða hissa að hann þekkti þetta orð) HFF: já fjallgöngu, og byrjar að klifra upp á frænku sína. Frænkan verð stórt spurningamerki í framan og segir : Er ég fjall?
HFF: Já, síðan leggst hann ofan á frænku sína og segist þurfa að hvíla sig.
Þá verður frænkunni/ fjallinu nóg boðið og segir: Er ég svona stórt fjall að þú þurfir að hvíla þig eftir að hafa klifið mig?
HFF: já
Þarna fékk ég mæta ástæðu til að drulla mér af stað í megrun!!!!
Stuttu síðar þegar HFF er kominn heilu og höldnu niður af fjallinu (ekkert svo móður) þá stingur hann upp á því að við förum út.
Þetta finnst frænkunni alveg kjörið enda þurfti hún á hreyfingu að halda eftir að hafa verið kölluð fjall.
Eftir að HFF skammar mig fyrir að renna úlpunni minni svo hátt að það sjáist ekki í hökuna og munninn á mér höldum við út. Hann segist vita um besta rólóinn og teimir mig áfram að leikvellinum. Þegar þangað er komið fer HFF í rennibrautina og lítur á frænku sína og setur hendurnar fyrst og segir ég ætla að renna! Jamm segir frænkan sem er eitthvað mikið annars hugar. HFF lítur aftur á frænku sína og segir enn hærra, ég ætla að renna svona! Þá rankar frænkan við sér og segir NEI. Þá sest hann niður og segir nei það má nefnilega ekki.
Næst höldum við í búðina og HFF vill vera búðarmaðurinn. Hann skipar mér að vera viðskiptavinur og ég kem því og kaupi nokkra hluti og rétti honum 3 steina fyrir. (þegar ég var lítil voru steinar greiðsla fyrir ýmsum vörum) Hann horfir mjög móðgaður á mig og segir: þetta kostar sko fleiri steina. Óóóó segir frænkan og réttir honum tvo í viðbótt. Frænkan fær nú hneygslunarsvip og HFF segir: Ekki svona marga. Eftir að frænkan hafi staðið sig svona illa sem viðskiptamaður er hún gerð að kaupmanni enda varla hægt að klúðra neinu þar eða hvað…
frænkan/fjallið/kaupmaðurinn bíður góðann daginn þegar viðskiptavinurinn mætir á svæðið og spyr hvað meigi bjóða viðskiptavininum. HFF. segist ætla að kaup einn súkkulaði kleinuhring, eina stóra húfu og eina litla strákahúfu. Frænkan lætur hann hafa allar vörururnar og segir er það eitthvað fleira? Já eina rennibraut líka segir þá HFF. Mér bregður nú hálfpartinn við þetta og segi að rennibrautir kosti marga peninga og spyr hvort hann hafi efni á að kaupa svona rennibraut. Já svarar viðskiptavinurinn og biður mig að koma að róla. Seinna fattaði ég að hann borgaði aldrei fyrir vörurnar sínar. (vonandi sjá yfirmenn mínir ekki þetta blogg, ekki gott til frásagnar að ég láti viðskiptavinina ekki borga.)
Við héldum í rólurnar en þar sem allt var blautt eftir rigningu þá vildi frænkan ekki setjast í rólurnar. HFF stóð þá upp úr sinni og færði sig í næstu og dæsti: farðu þá í þessa, og bendir á róluna sem hann var í. Frænkan horfir á hann og segir: já en hún er ennþá blaut. Nei segir HFF ég er búinn að þurka hana. Frænkan lætur platast og sest í röku róluna og finnur hvernig gallabuxurnar blotna (frábær tilfinning). Frænkan stendur því fljótt upp og HFF líka en hann vill fara í aðrar rólur. Hann sest í aðra og segir frænkunni að setjast í hina. Frænkunni finnst hún alltaf vera að eiga sama samtalið og segir rólann er blaut, sérðu ég er með blautann rass. Já segir þá frændinn hneygslaður á frænkunni fyrir að vera svona asnaleg til fara.
Frænkan tekur þá á það ráð að gera eins og í gamla daga þegar hún var ung en þá var mesta sportið að standa í rólunum. Frændinn horfir alveg forviða á athafnir frænkunnar og segir: Hvað ertu að gera?, viltu detta á hausinn og meiða þig? Það er sko ekki gott. Nei segir frænkan skömmustulega meðan HFF sýnir henni hvernig hægt er að detta úr rólunni og merkilegt nokk þá mun hausinn alltaf fara á undan.
Síðan þá ákveða frændsystkinin að labba í bakaríið og kaupa sér kleinuhring. Þegar þau eru alveg að verða komin að bakaríinu þá segir HFF. Ó nei, við getum ekki borðað kleinuhringi núna. Nú segir frænkan og klórar sér í hausnum. Við erum ekki búin að borða hádegismat segir HFF akkúrat þegar við göngum fram hjá sjoppunni. Við verðum bara að fara og kaupa hamborgara fyrst bætir HFF við. Frænkan er alveg komin að því að springa úr hlátri en leggur til að þau fari allavegana fyrst í bakaríið. Einhverra hluta vegna þá kom frænkan út með 3 kókómjólk, 2 súkkulaðikleinuhringi og eina skúffukökusneið. humm hún sem ætlaði bara að kaupa 1 kleinuhring.
HFF er svo ánægður með bakaríisferðina að hann gleymir sjoppunni og hamborgaranum svo frænkan nýtir sér það og fer með hann heim.