Frúin bloggar

6. mars 2007

Ekki minn dagur

Flokkun: Uncategorized — Íris @ 10:54

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1256980

Ég er á lífi og óbrotin en aum á nokkrum stöðum. Bíllinn minn er óökufær og var dregin til Keflavíkur. Morguninn er síðan búin að fara í lögguskýrslur og sjúkrahússkoðanir. Ég var send heim með rútu og á að hvíla mig andlega og líkamlega að læknisráði. Læknirinn varaði mig við því að næstu daga yrði ég sjálfsagt alveg að drepast og á að háma í mig verkjatöflur.

Annars erum við að pirrast þessa dagana yfir BA riterð, safnafræðiverkefni,tímaleysi, flutningum í vinnunni og viðbjóðinum sem fylgir því, brúðkaupsundirbúningi, væntanlegum flutningum okkar eftir 2 mánuði, erum ekki komin með neinn stað til að búa á. Svo það er fínt að fá meira til að pirrast yfir s.s eymslum í líkamanum, bílleysi og áhyggjur af peningum því það er jú alltaf sjálfsábyrgð og við þurfum að borga dráttarbílinn.
En jú þetta hefði víst getað farið miklu verr í morgun svo ég er auðvitað þakklát fyrir það.

4 athugasemdir »

  1. Elsku Íris. Hræðilegt að lenda í þessu, gott samt að ekki fór verr. Hugsa til þín.
    Þú getur stytt þér stundir með því að skoða myndir af mér og mínum, var að virkja aðganginn
    þinn af myndasíðunni :)

    Comment ritaði Eygló — 6. mars 2007 @ 12:06

  2. Takk Eygló mín:)
    Jibbí myndir, er einmitt upp í rúmi með fartölvuna;)

    Comment ritaði Íris — 6. mars 2007 @ 12:21

  3. humm hljómar kannski pínu perralega hjá mér:/ átti samt ekki á neinn hátt að vera perralegt.

    Comment ritaði Íris — 6. mars 2007 @ 12:22

  4. haha, vona að þú hafir notið myndanna, perrahvað? ;)

    Comment ritaði Eygló — 6. mars 2007 @ 15:21

RSS veita fyrir umræðu um þessa færslu. Slóð fyrir bakvísun

Færðu inn athugasemd

Knúið með WordPress