Mér líður mun betur en í gær. Reyndar með verki um allann skrokkinn og get voðalítið gert en verkjataflan sem ég tók í morgun svínvirkar;)
Það eru ótrúlega margir búnir að hringja í mig og spurja mig hvernig mér líði og ég vil bara þakka fyrir það. Mjög uppörvandi að finna hvað maður á marga góða að. Takk þið eruð best:)
Tryggingamálin líta ekki vel út:( Ég á samt von á hringingu frá lögfræðingi á eftir og þá fer ég yfir með honum hvort eitthvað sé hægt að gera. Verð bara að vera bjartsýn þangað til annað kemur í ljós.
ég á svo von á saumaklúbbnum til mín í kvöld og VÁ ég hlakka svo til að hitta stelpurnar mínar:)
8. mars 2007
Betri tíð.
3 athugasemdir »
RSS veita fyrir umræðu um þessa færslu. Slóð fyrir bakvísun
Leiðinlegt að heyra að þú hafir lent í slysi,
vonandi að þér batni sem fyrst.
Kveðjur að norðan
Egill
Comment ritaði Egill — 9. mars 2007 @ 11:39
hæhæ, bara að kvitta fyrir mig. Takk fyrir síðast
Comment ritaði Rósa — 10. mars 2007 @ 14:24
Takk Egill, bið að heilsa norður:)
Takk sömuleiðis Rósa:)
Comment ritaði Íris — 21. mars 2007 @ 18:12