Frúin bloggar

18. júlí 2007

Brúðkaupsdagurinn 14.júlí

Flokkun: Uncategorized — Íris @ 13:20

Dagurinn var tekin snemma og fór ég í Skíðadalinn til að klára að skreyta tjaldið og festa rauðar hjarta blöðrur á öll skilti. Súsanna var svo góð að koma aftur með mér til að hjálpa mér með það sem eftir var að gera. Takk Sússa fyrir að gera tjaldið okkar svona flott:)

Síðan fór ég í blómabúðina til að ná í brúðarvöndin og barmblómin fyrir Hrafnkel og svaramennina. Ég var mjög ánægð með vöndin og var hann alveg eins og ég hafði beðið um. Í honum var Birki, Lyng, ber, hvítar rósir og hvítar klukkur.

Þar á eftir var haldið til pabba og ég dreif mig í sturtu og síðan var haldið í sveitina þar sem ég var klædd í flotta kjólinn minn og fékk frábæra förðun hjá Önnu Sóleyju og geggjaða hárgreiðslu hjá Ingunni. Silla systir var síðan svo góð að hjálpa mér í kjólinn og að taka mig til. Takk stelpur fyrir að gera mig svona sæta:)

Athöfnin var yndisleg, veðrið var frábært eins og ég hafði alltaf sagt;) Allt gekk eins og í sögu.
Pabbi leiddi mig að “altarinu” sem var borð með hvítum dúk og gylltum krossi á. Kyndlar sýndu leiðina þar sem við gengum og flottar spýtur voru sitthvoru megin við “altarið”. Hrafnkell spilaði sjálfur brúðarmarsinn þegar ég gekk inn og tókst það mjög vel hjá honum. Fyrst talaði presturinn aðeins, síðan fluttu Hjalti og Lára Sóley lagið Miðnætti, sem er lag og texti eftir Hrafnkel. Hjalti söng og spilaði á gítar og Lára Sóely lék á fiðlu. Þetta var frábærlega gert hjá þeim:) Síðan talaði presturinn aðeins meira og þar á eftir söng Stebbi og spilaði á gítar lagið Unentended með Muse. Frábærlega vel gert hjá honum. Síðan vorum við gefin saman og þegar við gengum út tóku Hjalti og Lára Sóley lagið I was born to love you með Queen og gerðu það snilldarvel. Takk Hjalti, Lára Sóley og Stebbi fyrir frábæran flutning:)

Eftir athöfnina var rósarblöðum hent yfir okkur og við síðan kisst og knúsuð.
Ljósmyndarinn tók síðan nokkrar myndir af okkur úti í náttúrunni, þar sem veðrið var alveg frábært og hlakka ég til að sjá myndirnar.

Þegar við gengum að veislutjaldinu voru allir gestirnir komnir þangað og búnir að fá sér fordrykk í glas. Okkur var rétt glös og við skáluðum.

Maturinn hófst svo stuttu síðar og var hann alveg einstaklega góður. Við vorum með grillað lambakjöt, salat, kartöflusalat, brúna sósu,rauðkál, mais baunir og kjúklingasalat. Ávaxtabolla var síðan drukkinn með matnum og einhverjir höfðu tekið áfengi með sér sem þeir gæddu sér á. Gunni og Magga stóðu sig alveg einstaklega vel með matinn, takk fyrir það:)
Eftirmaturinn var síðan brúðarterta sem var á 7 hæðum og rosalega flott og góð. Einnig buðum við upp á kaffi og konfekt. Takk Anna Lilja og Hallmundur fyrir kökuna:)

Engin ræðuhöld voru í veislunni enda hvorki mín né Hrafnkels fjölskylda sérlega málgefnar. Tengdapabbi flutti þó ljóð sem hann samdi um okkur og var mjög skemmtilegt. Rósa og Davíð stóðu sig rosalega vel sem veislustjórar og leikirnir heppnuðust mjög vel hjá þeim. Takk kærlega fyrir góða veislustjórn Rósa og Davíð:)

Það var síðan slegið upp balli inn í tjaldinu og stóð það fram á nótt. Hrafnkell var með gítara sem gripið var í, Sverrir var með trommu og Hörður með harmonikku. Við Hrafnkell skemmtum okkur konunglega en fórum þó á gistiheimilið rétt fyrir tvö. Fréttum þó af því að stuðið hjá þeim sem ákváðu að gista í tjöldum á staðnum hefði varað langt fram á morgun.

Gistiheimilið sem staðsett er ská á móti Birkimel var mjög skemmtilegt og flott. Þegar við komum þangað voru rósablöð í rúminu og miði sem á stóð “elsku Íris og Hrafnkell, innilega hamingjuóskir á brúðkaupsdaginn, bjarta framtíð, allir ykkar vinir.” Okkur þótti þetta mjög sætt, takk fyrir þetta allir okkar vinir:)

Að lokum viljum við þakka þeim fyrir sem mættu og glöddust með okkur. Vonum að þið hafið notið dagsins og skemmt ykkur eins vel og við. Einnig viljum við þakka fyrir gjafirnar (tók sko langan tíma að opna þær allar)kveðjurnar, blómin, smsin og skeytin sem við fengum. Takk allir:)

Sérstaklega vil ég þó þakka pabba og tengdapabba fyrir alla hjálpina. Einnig fá Arnór, Guðni og Egill þakkir fyrir að hjálpa okkur að koma upp tjaldinu.

Einnig vil ég þakka saumaklúbbnum mínum fyrir að selja mér barbídúkku í brúðkaupinu og leifa mér með því að hafa yfirhöndina í hjónabandinu. Það getur komið sér vel að vera ráðandi aðilinn;)

ps.. Arnór bróðir Hrafnkels náði sokkabandinu og Anna Egilsdóttir náði brúðarvendinum. Við bíðum bara spennt eftir að okkur verði boðið í tvö brúðkaup;)

12 athugasemdir »

  1. Til hamingju bæði tvö

    Comment ritaði Óli Gneisti — 18. júlí 2007 @ 13:39

  2. Takk fyrir Óli. Leiðilegt að þú komst ekki en rosalega gaman að Eygló gat komið:) Takk kærlega fyrir myndina. Við erum rosalega ánægð með hana og föttuðum strax að þetta vorum við:)

    Comment ritaði Íris — 18. júlí 2007 @ 14:55

  3. Hjartanlega til hamingju með daginn kæri frændi og Íris.
    Guð gefi ykkur bjarta framtíð

    Comment ritaði Margrét Hallmundsdóttir — 18. júlí 2007 @ 16:06

  4. Takk kærlega fyrir:)

    Comment ritaði Íris — 18. júlí 2007 @ 21:55

  5. Já þetta var frábær dagur, til hamingju en og aftur :)

    Við skemmtum okkur konunglega. Takk fyrir okkur.

    kveðja Anna og Palli

    Comment ritaði Anna — 19. júlí 2007 @ 10:09

  6. Innilega til hamingju aftur … hlakka til að sjá myndirnar
    þið voruð ekkert smá heppinn með veður :)

    kv. Kristín Erla

    Comment ritaði Kristín Erla — 19. júlí 2007 @ 13:33

  7. Hjartanlega til hamingju með daginn kæru Íris og Hrafnkell.
    Óska ykkur bjartar og gæfuríkrar framtíðar. ;)
    KNús Ólöf HEiða

    p.s. á engin myndir til að vísa í hér í ummælum, svo maður geti séð brúðina ?

    Comment ritaði Ólöf Heiða — 20. júlí 2007 @ 12:38

  8. Halló og
    Hjartanlega til hamingju með daginn kæru Íris og Hrafnkell.
    Óska ykkur bjartar og gæfuríkrar framtíðar. ;)
    KNús Ólöf HEiða

    p.s. á engin myndir til að vísa í hér í ummælum, svo maður geti séð brúðina ?

    Comment ritaði Ólöf Heiða — 20. júlí 2007 @ 12:39

  9. Innilegar hamingjuóskir með brúðkaupsdaginn

    Guð gefi ykkur bjarta framtíð

    Kveðja Ármann Hólm, Kolbrún og litli bumbubúinn.

    Comment ritaði Ármann, Kolbrún og litli bumbubúinn — 21. júlí 2007 @ 12:44

  10. Anna og Palli, takk fyrir að koma og takk fyrir gjöfina:)

    Kristín Erla takk fyrir og nú er sko aldeilis stutt í krílið þitt, við bíðum spennt:)

    Ólöf takk fyrir það:)og það eru nokkrar myndir inn á barnalandssíðum systkinabarna minna. Annars vegar hjá Helga Fannari og Pétri Snæ og hins vegar hjá Lilju.

    Annars förum við að setja inn myndir mjög fljótlega:)

    Comment ritaði Íris — 23. júlí 2007 @ 22:21

  11. Gleymdi að segja að það væru linkar hér til hægri á síðunni inn á þeirra síður

    Comment ritaði Íris — 23. júlí 2007 @ 22:21

  12. Ármann, Kolla og bumbubúi takk kærlega fyrir:)

    Comment ritaði Íris — 23. júlí 2007 @ 22:23

RSS veita fyrir umræðu um þessa færslu. Slóð fyrir bakvísun

Færðu inn athugasemd

Knúið með WordPress