Það er nú voðalega lítið að frétta héðan úr pappakassanum okkar. Hrafnkell kom heim í viku og fór svo aftur austur til að láta einhverja útlendinga mynda sig og ég hef bara ekkert séð hann síðan. Hann er nú voða hógvær (er það nú reyndar ekki oft) og telur að hann hafi ekki sýnt neina meistaratakta svo það er óvíst að við hjónin séum á leið til LA. Reyndar verða þessir þættir ekki sýndir fyrr en á næsta ári svo við verðum að bíða þangað til, til að komast að því hvort um leiksigur sé að ræða;)
Annars yrðum við mjög góð í Hollywood, labbandi um með stjörnunum;)
Við erum aftur að lenda á götunni. Við töldum að við gætum farið aftur í íbúðina sem við vorum í en svo vorum við að komast að því að hún verður ekkert leigð strax svo við verðum á götunni eftir ca 2 vikur:/ Er einhver þarna sem veit um leiguíbúð á sanngjörnu verði mjög fljótlega og helst til lengri tíma, erum alveg að gefast upp á þessum endalausu flutningum og veseni.
Læt fylgja með mynd af litlu sætu frænku minni en hún er systkinabarn mitt númer 14.
Haha, mér skilst að frænkur mínar, Zoëga-systur séu þarna í einhverjum aukahlutverkum með Hrafnkeli
Hlakka svo til að knúsa hann á morgun.
Vá, mikið ert þú rík að eiga svona mörg systkinabörn. Ég á eitt, sem er 7 mánaða og hann er einmitt í borginni núna
Comment ritaði Eygló — 28. ágúst 2007 @ 23:00
hehe já það eru öruglega fullt af fornleifafræðingum að láta mynda sig um allt land núna;)
Annars er Hrafnkell á flugvellinum á Egilsstöðum að bíða eftir að komast heim.
Já ég er voða rík, ekki nóg með að eiga fjórtán systkinabörn heldur á ég líka tvö afasystrabörn:)
Comment ritaði Íris — 29. ágúst 2007 @ 9:27