Í dag er rétti dagurinn…
… til að biðja karlmenn að giftast sér. Þið konur/stelpur sem hafið verið að bíða eftir bónorði eða ekki grípið bara samt gæsina. (þeir þurfa þá allavegana að kaupa sig lausa og þið græðið eitthvað flott;))
Nánar um málið hér: http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item194557/
Ég náði með snarræði að bjarga mér á síðustu stundu.
Ummæli ritaði Óli Gneisti — 29. febrúar 2008 @ 22:38
Ég klikkaði á þessu!
Man þetta eftir 4 ár ef ég verð ekki komin með leið á kappanum hehe.
Annars styttist í íbúðina, fáum hana í lok apríl.
Stefni á annan hitting hjá mér í maí, ég vil samt helst hittast fyrr:) Taki til sem vilja (*hóst* Rósa? Sigrún?)
Sjáumst vonandi sem fyrst.
Ummæli ritaði Birna — 9. mars 2008 @ 21:13
Vá, hvað ég klikkaði á þessu! Það þarf að upplýsa konur um þetta með smá fyrirvara…. þar fór það…ekki býst ég við bónorði frá Sverri í bráð…karlmenn í dag!(Nema Hrafnkell að sjálfsögðu)
Ummæli ritaði Ingveldur — 26. mars 2008 @ 22:44
Hey! Finnst þú ættir að blogga.
Ummæli ritaði Eygló — 31. mars 2008 @ 21:38
Ingveldur já ég man það eftir 4 ár að minna allar konur á þetta með fyrirvara. Reyndar bað Hrafnkell mín ekki, við tókum bara sameiginlega ákvörðun að trúlofast og svo seinna með brúðkaupsdaginn. Það var ekkert rómantískt við þetta hjá okkur sko:/
Já Eygló mér finnst ég ætti líka að blogga!
Ummæli ritaði Íris — 1. apríl 2008 @ 23:00