Frúin bloggar

15. apríl 2008

Mætt aftur á næturvakt.

Flokkað undir Uncategorized — Íris @ 22:42

Við hjónin fengum tvö páskaegg á páskunum og annar málshátturinn var mjög viðeigandi en hann var svo hljóðandi: Ekki er sú ást auðslitin er ungir bundu.
Þetta er viðeigandi þar sem eftir nokkra daga eru liðin 11 ár síðan við kynntumst og þrjú ár síðan hringarnir voru settir upp.

Það er svo sem ekki mikið að frétta frá okkur. Ég sé varla Hrafnkel þessa dagana, þar sem hann er sofandi þegar ég kem heim á morgnanna af næturvakt og þegar hann fer í vinnuna er ég sofandi. Hann kemur svo heim og við borðum kvöldmat saman og síðan er ég rokin af stað í vinnuna. Þá daga sem ég fer svo í ræktina þá nota í kvöldmatartímann í það og þá sé ég hann ekki neitt. Næsta vika verður þó eitthvað skárri þar sem ég verð í fríi í 7 daga:-)

Það er annars voða fátt að frétta. Hrafnkell er búinn að hafa nóg að gera með hljómsveitinni og spila bæði á ellefunni og á organ. Hann er svo búinn að vera síðustu kvöld í stúdíói að taka upp þrjú lög og upptökum á að ljúka í kvöld. Hrafnkell er svo að byrja að æfa bandý. Það er sem sagt ekki nóg fyrir hann að æfa körfu tvisvar í viku,fara í ræktina tvisvar í viku, kenna á gítar og æfa með hljómsveitinni að minnsta kosti tvisvar í viku;-)

Það er farið að styttast í flórída og að sama skapi fækkar dögunum sem ég hef til að komast í bikiníið:/ Það verður sko algjör draumur að fá smá frí með eiginmanninum, sama hvort bikiníið verður með í för eða ekki;-)

Bloggað úr vinnunni

Flokkað undir Uncategorized — Íris @ 0:53

Ég er á minni fyrstu næturvakt núna í vinnunni og eins og þið getið ýmindað ykkur, þá er ekkert að gera.
Á miðvikudaginn síðasta fór ég með vinnunni út að borða á DOMO www.domo.is
Mæli alveg hiklaust með þessum stað. í fordrykk fengum við geggjaðan drykk sem ég veit ekki hvað heitir. Í forrétt fengum við sushi, risarækjur og sashimi og með því japanskt hvítvín. Í aðalrétt fengum við nautakjöt og lúðu og með því ástralskt rauðvín. Eftirrétturinn var einnig rosalega góður og ísvínið sem við fengum með því var alveg geggjað.

Á laugardagsmorgun fórum við saumaklúbburinn í sumarbústað í sól og blíðu. Við stoppuðum á leiðinni og fengum okkur ís og borðuðum hann úti. Fljótlega eftir komuna þangað var kíkt í pottinn. Potturinn bjargaði mér alveg, þar sem ég var að drepast úr strengjum síðan deginum áður. Við stelpurnar elduðum mjög góðan mat og horfðum á söngvakeppni framhaldsskólana. Síðan var aftur skellt sér í pottinn og verið fram á morgun þar;) Þar sem við lágum í makindum í pottinum fór að snjóa. Daginn eftir þegar við ætluðum að fara að leggja í hann(sólahring eftir komuna í bústaðinn) Tókum við eftir að við þurftum að vaða snjóinn að bílunum og grafa bílana út. Það tók okkur klukkutíma að komast af stað vegna þess að annar bíllinn fór ekki í gang og við festum okkur nokkrum sinnum. En með skóflu og startkapla var okkur allir vegir færir;) Við komumst þó heim og ég fór beint heim að ná í Hrafnkel og við fórum í mat til Sillu systir og fjölskyldu. Fengum rosalega gott lambalæri og allt tilheyrandi gumms með. Við fjögur sátum svo og spiluðum langt fram á kvöld.

3. apríl 2008

Er kannski kominn tími á blogg?

Flokkað undir Uncategorized — Íris @ 14:43

Halló allir

Það er ekki mikið að frétta af okkur hjónunum í Fjallakór en samt einhverjar smá fréttir.

Ég er hætt að vinna í Fríhöfninni. Ástæða þess að ég hætti er bensínverðið og svo auðvitað leiði við að keyra þessa Reykjanesbraut sem virðist aldrei eiga að klára:-/ Jú svo auðvitað að sú sem var að keyra með mér, hætti í lok febrúar og ég var orðin ein að keyra á milli.
Ég er að vinna í móttökunni á Grand hótel í vaktarvinnu eins og á gamla staðnum.

Ég er byrjuð í einkaþjálfun þrisvar í viku kl 6 á morgnanna. Ekkert mál að vakna kl 6 þegar maður er vanur að vakna fyrir 4 til að mæta í vinnu í Fríhöfninni. Svo reyni ég líka að fara í ræktina þegar tími gefst og einnig í opna tíma. Silla systir er með mér í einkaþjálfun og það er rosa gott að hafa hana með sér:-) Ég er svo að reyna að vera duglega að skreppa í sund á kvöldin með vinkonunum. Svo eru alltaf saumaklúbbar og skemmtilegheit. Við stelpurnar erum einmitt á leið í sumarbústað þarnæstu helgi s.s 11-13 apríl og ég hlakka mikið til:-) Síðan kem ég heim á sunnudeginum 13 og þá höldum við Hrafnkell upp á 10 ára afmælið okkar:)
Föndurklúbbarnir eru líka alltaf á sínum stað, annan hvern sunnudag og núna er stefnan tekin á frænkuferð í vetur til útlanda(ekki búið að ákveða hvert) að versla og erum við byrjaðar að safna:-)

Páskarnir voru fínir. Við vorum hérna heima hjá okkur í Kópavoginum. Ég var að vinna á föstudeginum langa, laugardeginum og sunnudeginum. Á Skírdag fórum við í mat til Kristins bróðir og Elsbu og fengum kjötrétt. Á föstudeginum komu tengdó og bræður Hrafnkels til okkar og voru fram á mánudag. Við borðuðum öll saman rosa gott páskalamb. Við Hrafnkell keyptum okkur páskaegg á síðustu stundu, höfðum ákveðið að kaupa ekkert egg þar sem við værum í áttaki en enduðum á að kaupa eitt handa okkur saman. Síðan gáfu tengdó okkur annað svo við enduðum á að slafra í okkur tveimur eggjum með bestu list:-/ Á mánudagskvöldið fórum við aftur í mat til Kristins og Elsbu en Haukur átti afmæli. Silla, Filli og börn komu svo líka þangað. Við enduðum svo á að spila krossgátuspilið langt fram eftir kvöldi.

Á laugardagskvöldið síðasta fluttum við Hrafnkell heim til Sillu systur og fjölskyldu og vorum að passa Helga Fannar(4. ára) og Pétur Snæ(2. ára) á meðan þau hjónin brugðu sér til London og tóku Dagbjörtu Maríu(7. mánaða) með sér. Það var auðvitað bara gaman að fá að vera með snillingana á meðan og skemmtum við okkur mjög vel, fórum meðal annars í bíó. Foreldrarnir komu svo heim á þriðjudaginn, á afmælisdaginn hennar Sillu. Ég og strákarnir vorum þá búin að undirbúa smá afmælisveislu handa henni. Helgi Fannar vildi hafa prinsessu afmæli fyrir mömmu sína en Pétur Snær vildi mikka mús afmæli. Þetta endaði í prinsessu-mikka mús afmæli. Silla færði mér svo tvennar buxur og tvenna boli og uppáhaldið mitt stórt hvítt toblerone, NAMMI.

Hrafnkell hefur nóg að gera þessa dagana. Hann er í vinnu frá 10 -18 alla virka daga og annan hvern laugardag. Hann fer í ræktina tvo morgna í viku, körfuboltaæfingar tvö kvöld í viku, hljómsveitaræfingar tvö kvöld í viku og oft um helgar líka og svo er hann að kenna á gítar eitt kvöld í viku. Annars fer mestur hans “frítími” í útikörfubolta, laga og textasmíðar eða að vinna í nýja hljómsveitarbílnum. Hljómsveitarbílinn er stór sendiferðabíll sem þeir eru búnir að merkja hátt og lágt með Thingtaks auglýsingum og koma fyrir 3 dvd skjáum, einum spilara og fullt af hátölurum að ógleymdu hreindýraskinni í loftið. Þeir eru sannfærðir um að hvergi á Íslandi finnist flottari hljómsveitarbíll. Annars þá eru tónleikar næsta laugardagskvöld á bar 11 þar sem þeir verða að spila. Allir að drífa sig þangað og líklega verður hægt að sjá hljómsveitarbílinn fyrir utan á meðan.

Nú fer annars að styttast í að Hrafnkell komist í sumarfrí. Hann ætlar að vera í fríi í maí og sinna áhugamálunum betur og slaka á, þar til við förum út í lok maí. Hann fer svo austur að grafa þremur dögum eftir að við komum heim.

ps.. Hrafnkell er að leita að fleiri strákum til að koma og spila körfubolta tvö kvöld í viku með nokkrum hressum strákum. Einu skilyrðin eru að kunna reglurnar og vera EKKI í góðu formi;-) Ef þú veist um einhvern þá endilega hafðu samband.

Knúið með WordPress