Frúin bloggar

19. maí 2008

Best að henda inn einni færslu

Flokkað undir Uncategorized — Íris @ 4:28

Ég sit í vinnunni og bíð eftir því að tíminn líði. Er á minni síðustu næturvakt af 7 í röð og allt er hljótt hér eftir viðburðaríka viku. Við hjónin höfum ýmislegt brallað síðustu dagana. Meðal annars:

Hrafnkell byrjaði í sumarfríi og nýtur þess í botn. Fyrstu dagana notaði hann í að ditta að ýmsu sem hafði beðið tíma á heimilinu. Hann festi upp ljós, skipti um ljósaperur(fyrir þá sem ekki vita er þriggja metra lofthæð hjá okkur og því ekki auðvelt að skipta). Hann hengdi upp gardínu í herberginu okkar, tók tölvurnar alveg í gegn og hengdi upp krók í loftið. Hann sat því ekki auðum höndum.

Við hjónin notuðum inneignir sem við áttum og erum búin að eiga lengi, ein meira að segja síðan við giftum okkur:/ já framtaks og tímaleysi verið mikið að undanförnu. Við fórum út að borða á Argentínu (fyrir inneign auðvitað) enduðum í 6 réttum með 4 vínglösum og Hrafnkell endaði kvöldið með kaffi og vindli. Bryndís var að vinna og stjanaði við okkur eins og við værum stjörnur. Úff við borðuðum alveg á okkur gat og héldum að við gætum ekki staðið upp.
Hávamál koma upp í hugann(í þessu umhverfi er annað óhjákvæmilegt)

gráðugur halur
nema geðs viti
étur sér aldur trega
oft fær hlægis
er með horskum kemur
manni heimskum magi

Ég tók nokkrar aukavaktir í þarsíðustu og síðustu viku í vinnunni. Tók meira að segja að mér þjónastarf á öðru hóteli (fyrir misskilning) í 4 tíma eftir mína 12 tíma í vinnunni. Þetta var mín frumraun í þjónastarfi og gekk bara ótrúlega vel. Þetta er löng saga en ef einhver vill heyra þá er ég alltaf til í kakóbolla;)

Ég fór í þjóðfræistelpumatarboð til Rósu og fengum við mjög góðan mat og rosalega gaman að sjá stelpurnar:)

Við hjónin skelltum okkur norður í land um hvítasunnuhelgina. Fórum í fermingarveislu og fullt af heimsóknum. Ég fór svo heim á mánudeginum þar sem ég átti að mæta í vinnu á mánudagskvöldið en Hrafnkell varð eftir. Hann kom svo keyrandi suður á miðvikudeginum og Arnór og Hörður bræður hans komu með. Þeir dunduðu svo ýmislegt saman bræðurnir á meðan ég svaf á daginn og var í vinnu á kvöldin.

Hrafnkell spilaði með hljómsveitinni sinni í Hafnarfirði síðasta fimmtudagskvöld. Mér skilst að það hafi gengið rosalega vel en hefði mátt vera meira fólk í salnum.

Hrafnkell mætti í vinnu í gær þar sem vantaði starfsmann og hann því fenginn þrátt fyrir að vera í sumarfríi. Enda alltaf gott að fá smá aukapening.

Hrafnkell fór svo keyrandi norður í gær til að skila bíl og bræðrum sínum og fékk svo far með frænku sinni suður í dag. Ég hef ekkert séð hann þar sem ég var farin í vinnu áður en hann kom heim.

Ég er hætt hjá einkaþjálfanum en mæti alltaf þrisvar í viku í ræktina kl 6 á morgnana, nema þegar ég er á næturvakt, þá mæti ég 17:30. Við höfum ekkert slakað á og þetta er þvílíkt hressandi að byrja daginn svona:)

Eftir 3 og hálfan tíma er ég búin að vinna og komin í frí þangað til ég kem heim að utan. Aðeins 5 dagar í Flórída.

Ein ummæli »

  1. Ég hugsa til ykkar, og sé ykkur fyrir mér með kokteil í annarri og kókóshnetu í hinni, eða kannski bara kokteil í kókóshnetu? Hrafnkell í skræpóttri hawai skyrtu og Íris í húlla húlla pilsi að dansa á ströndinni. Gerist ekki betra! Annars bara vona ég að þið hafið það sem best og njótið frísins í botn. Kveðja úr kuldanum á klakanum!

    Ummæli ritaði Rósa — 24. maí 2008 @ 11:28

RSS-veita fyrir umræðu um þessa færslu. Bakvísunarslóð

Rita ummæli

Knúið með WordPress