Góðan dag

Þetta er sem sagt nýja síðan mín sem mun verða fín :)

Það hefur skapast sú undarlega hefð (gerist bara óvart) að Kolla (og stundum Jón Úlfur) koma í heimsókn og þá yfirleitt mat á miðvikudagskvöldum. Og það bregst þá ekki að Tískuþrautir eða þarna þátturinn er í sjónvarpinu á meðan við borðum.

Núna á miðvikudaginn gerðist það svo að Kolla var ekki í heimsókn og ég þurfti að horfa á þáttinn með öðru auganum ein!

Kolla, haltu áfram að koma í miðvikudagsheimsóknir!!!

Annars er ég í vinnunni núna. Mér telst svo til að þetta sé næst seinasta vinnuhelgin mín hérna, það er svolítið skrýtið, ég er ekki tilbúin í það að sumarið sé að verða búið, mér finnst það bara vera rétt að byrja. Aðrir í svipuðum fíling?

Ég er meira að segja búin að fá pósta frá tilvonandi kennurum um kennsluefni. Skrýtið!

Í fyrradag fórum við Hlynur í ísbíltúr með ömmu. Amma át ísinn á tveimur mínútum sléttum. Hún fær hér með verðlaun fyrir hraðát á ís….

Ég sendi Helgu Jónu góða strauma fyrir daginn.

3 Responses to “Góðan dag”

  1. Helga segir:

    Takk fyrir straumana og innlitið, það var virkilega fallegt af ykkur að líta við.

  2. Kolla segir:

    Ég og Jón mætum bara næsta miðvikudag… eins gott að við fáum þá e-ð gott að borða :) Vaaaáááá, hvað það er samt erfitt að ná í þig kona! Viltu bara hætta þessu vinnurugli og sitja við símann á daginn!!

  3. Kristín segir:

    sumarið mitt endaði allavega í gær, nú er haustið byrjað. en það má halda í sumarfílinginn.. ég held ég hafi ekkert hitt þig í sumar. bæta úr því mánudag eða þriðjud?

Leave a Reply