Nýr fjölskyldumeðlimur

Það er kominn nýr fjölskyldumeðlimur hjá mér. Hann heitir Leó og er pínulítill tjúi sem systir mín var að kaupa. Hann er voða sætur.

Annars er allt gott að frétta. Finnst ég hafa svo mikið að gera að ég er nánast köfnuð. Held að ég hafi nú ekkert meira að gera en annað fólk, ég bara skipulegg mig ekki nógu vel!

Iss….

Gerði voða fátt um helgina, fór í matarboð og drakk rauðvín en hann Hlynur vann nokkrar rauðvínsflöskur í vinnunni sem við erum að dunda okkur við að smakka. Ekki amalegt það.

Held að ég hafi sjaldan átt eins mikið áfengi á ævinni og ég á núna. Ég á alveg úrval inn í skáp! Það er svolítið skrýtið.

Farin að læra

læriJóhanna

Já og Óli, mér líst ágætlega á breytinguna en hún mæti nú vera aðeins líflegri heldur þetta blóm :)

5 Responses to “Nýr fjölskyldumeðlimur”

  1. Kristín segir:

    skipulag er ofmetið
    en ég bara verð að spyrja, hvað er tjúi ?

  2. Jóhanna segir:

    Tjúi er svona hundur eins og Patti ;)

  3. Helga segir:

    Jæja, þá er það spurningin: Er það októberfest á föstudag eða bara heima með rauðvín???

  4. Valdís Ösp segir:

    Hæ skvís, ég verð í kefl-city alla helgina endilega vertu í bandi ef þú lætur sjá þig í aðal borginni hehe ;-)

  5. Jóhanna segir:

    Rauðvín hljómar eiginlega betur:) Ég var að fatta að það er fullt að læra (ég veit, ég er sein að fatta!). Ég veit ekki hvort að ég verð í keflavíkinni eitthvað Valdís, en ég læt þigð vita :)

Leave a Reply