Það er eldur laus í byggingunni…

Þetta kom aftur og aftur í morgun í vinnunni. Það kemur voða dramatísk rödd sem segir manni að eldur sé laus í byggingunni og manni er bent á að yfirgefa húsið strax. Eftir smá stund kemur alltaf sama rödd og segir manni að það sé engin eldur laus í byggingunni.

Skemmtilegt!

Svona er þetta aftur og aftur á milli byggingarhljóðanna hérna uppi.

Er nema von að maður verði geðveikur!

2 Responses to “Það er eldur laus í byggingunni…”

  1. Kristín segir:

    að eldur sé laus hljómar líka örlítið skringilega..

  2. Ingibjörg segir:

    En notalegt í vinnunni sinni…”þú ert um það bil að fara að brenna inni, drullaðu þér út”…”en nei annars,allt er í fína lagi” hverju á maður að trúa nú á dögum!

Leave a Reply