Hörkutjútt

Gott partý hér í gærkvöldi. Allir stólar heimilisins voru uppteknir og ég held að það hafi ekki gerst áður…

Sem sagt mikið af fólki. Og allir höfðu fyrir því að koma í einhverskonar búning nema Keflavíkurdömur (og herra) sem líta greinilega of stór á sig til að taka þátt í svona löguðu… Iss, piss!!! :)

Það var ansi þreytt,nokkuð sjúskuð en ánægð Jóhanna sem vaknaði í morgun. Ótrúlegt hversu mikið magn af bollu getur horfið ofan í fáa munna…

Ég vona bara að fólk hafi skemmt sér ágætlega…

Núna er ég ennþá að reyna að klambra saman ritgerð sem er búin að halda fyrir mér vöku í rúma viku núna! Ég stefni á að klára hana um helgina, eins gott að það takist hjá mér, ekki eins og það sé ekki nóg sem þarf að gera…

Ég hefði samt viljað gera meira á skikkanlegum tíma í kvöld en þegar ein Andrea á bauninni krefst mikillar athygli þá er það eiginlega ekki hægt. Þá er eins gott að missa bara aðeins meiri svefn á þessu…

(ég er að reyna að vera ekki bitur kvartari í þessu bloggi, hef það á tilfinningunni að það hafi ekki tekist vel).

Það er örugglega ömurlegt í London þar sem hluti af fjölskyldunni minni er, glatað að vera í útlöndum, hver vill ekki vera í hörkudembu á Íslandi?

GlaðaJóhanna!! :)

One Response to “Hörkutjútt”

  1. Sigrún segir:

    Ég skemmti mér allavega vel :D

Leave a Reply