Archive for febrúar, 2007

Þorrablót

Þriðjudagur, febrúar 6th, 2007

Það var mjög skemmtilegt þorrablót í hjá þjóðfræðinni á föstudaginn. Fór í bæinn en skemmti mér ekki voða vel, man ekki hvenær ég skemmti mér seinast vel niðrí bæ…. Það má alveg einhver taka það að sér að skemmta mér á djamminu :)
Annars fór helgin mikið í það að gera ekki neitt en ég afrekaði það þó að fara til Keflavíkur í smá boð hjá henni Sollu sem var að versla sér eitt stykki fiskbúð og ef hún væri ekki staðsett í Keflavík þá yrði ég pottþétt fastakúnni :)
Ég var í Keflavík laugardagsnóttina, ætlaði að gerast félagslynd en aldur og fyrri störf (og þá á ég við föstudagskvöldið) gerðu það að verkum að ég gat mig hvergi hreyft.
Ég fór svo í afmælisteiti á sunnudaginn sem breyttist í fund og borðaði meðal annars kleinuskrímsli þar sem voru mjög góð :)

Þetta er helgin mín í hnotskurn…