Mér finnst svo mikið að gera hjá mér að ég hlýt að fara að drukkna einn daginn…
Eins og svo oft áður þegar mikið er að gera að þá fallast mér hendur og ég kem engu í verk!!! Þoli ekki þessa tilfinningu…
Ég fór til ömmu mínar í dag með þessa fínu tertu sem ég keypti handa henni í tilefni afmælis hennar en hún er klárlega afmælisbarn dagsins ásamt honum Bjarka
Tertan er góð
Á föstudaginn fer ég til Keflavíkur að kynna þjóðfræðina fyrir FS-ingum, einhverjar tilögur að því hvernig ég get keypt FS-inga til að koma í námið?
Ég ætla allavega að fara og fá mér pizzu með bairnes víst ég verð á staðnum. Það er svo ótrúlega gott
Annars fær systir mín líka viðurkenningu fyrir að vera bílaeigandi dagsins