Mikið að gerast…

Jæja, þá er bróðir minn orðinn giftur maður :) Athöfnin var falleg og veislan skemmtileg. Er það ekki eins og það á að vera.

Við Hlynur kíktum aðeins út á lífið eftir veisluna á laugardaginn og komumst að því að þetta var í fyrsta skipti í okkar sambandi sem við förum bara tvö ein eitthvað svona. Það var kannski komin tími til…

Á sunnudaginn kíktum við svo ásamt mömmu, Önnu og Leó í heimsókn í sveitina til frænku okkar. Þar var tekið vel á móti okkur eins og alltaf, ég væri alveg til í að eiga heimabakaðar tertur á lager í frysti þegar gesti ber að garði. Einn daginn í framtíðinni mun það vera þannig, þangað til verða gestir og gangandi að sætta sig við það að ég á bjór og ef að vel lætur þá gæti ég átt kaffi, ef þú drekkur það svart :)

Ég er svo að fara til Færeyja á morgun þannig að lífið mitt gæti ekki verið betra.
Allir að brosa fyrir mér…

One Response to “Mikið að gerast…”

  1. Helga segir:

    Ætlaðirðu að fá svefnpoka?

Leave a Reply