Archive for apríl, 2008

Gas

Mánudagur, apríl 28th, 2008

Æðislegt hvað efni er fljótt að berast….

Þjóðfræði í hnotskurn :)

Ég er hrifnust af viðlaginu

Flottust…

Fimmtudagur, apríl 24th, 2008

Sjá heimasíðuna hjá Önnu Rán til þess að sjá allt fallegasta fólkið :)

Afmæli sætasta stráksins

Miðvikudagur, apríl 23rd, 2008

Maðurinn átti afmæli í gær, steig næsta skref í átt þess að verða fullorðinn. Í því tilefni fórum við út að borða á Caruso, fyrir gjafabréfið sem ég vann á aðalfundi Þjóðbrókar. Það var mjög gott, fyrir utan frekar þurran fisk. Á eftir lögðum við leið okkar í ísbíltúr og fengum svo heimskókn.

Ég vann líka gjafabréf í leikhús og við erum svona að melta með okkur hvaða sýningu okkur langar að sjá, einhverjar uppástungur?

Núna er ég að gera mitt besta við að sitja og vera dugleg að læra en það gengur ekki betur en svo að ég er búin að skoða öll blogg sem ég kemst í tæri við!!!!!

LataJóhanna

Litli frændi minn…

Þriðjudagur, apríl 15th, 2008

lét loksins sjá sig, þann 9. apríl eins og allir þeir sem hafa eitthvað samband haft við mig vita af. Ég er mjög montin stóra frænka og er búin að sýna öllum sem vilja sjá myndir af honum.

Ég held ég sé ástfangin :)

Annars er núna rétt rúmur mánuður í utanlandsferð nr. 2 á árinu og ég er að sjálfsögðu mjög spennt. Alltaf gaman að fara til nýrra landa.

Gaman að geta þess að allir í kringum mig virðast vera að eignast hund þessa dagana. Loksins fór einhver að hlusta á mig, ég er búin að vera að predika það í mörg ár að það sé gaman að eiga hund…

GlaðaJóhanna

Litli frændi minn…

Fimmtudagur, apríl 3rd, 2008

Er ekki kominn í heiminn en hann mætti nú alveg fara að láta sjá sig…