Archive for the ‘Almennt’ Category

Jæja…

Fimmtudagur, júlí 24th, 2008

Nú er ég víst löngu komin heim frá útlöndum og farin að gera eitthvað af viti.
Það sem ég geri samt helst þess dagana er að spila Mario Bros eitt og þrjú. Við erum með gömlu nintendo tölvuna mína núna og erum búin að skemmta okkur konunglega yfir þessum leikjum.

Það sem kom helst á óvart er hvað borðin eru öll stutt. Maður er nánast búin áður en maður er byrjaður:)

Barnaflóðið heldur áfram í kringum mig, síðan ég kom frá útlandinu hafa tvö börn fæðst og nú eru þrjú eftir.

Það munar ekki um það :)

vinnuJóhanna

Farin til útlanda…

Föstudagur, maí 16th, 2008

Ég bið ykkur bara vel að lifa
:)
:)
:)

Brandur Logi

Miðvikudagur, maí 14th, 2008

Á sunnudaginn fór fram athöfn þar sem litli frændi minn fékk nafn, ég get því hætt að kalla hann litla frænda og farið að kalla hann Brand Loga. Athöfnin var falleg og barnið enn fallegra.

Núna sit ég sveitt við að skrifa ritgerð, seinustu ritgerð annarinnar. Henni verð ég að ljúka ekki seinna en núna, því að morgundeginum hafði ég hugsað mér að verja í það að gera allt tilbúið fyrir utanlandsferðina :)

Get ekki beðið með að fara út….

ÚtlandaJóhanna

Mexico (sagt með spænskum hreim)

Mánudagur, maí 5th, 2008

Eftir örfáa daga fer ég erlendis í annað skipti á þessu ári og aftur fer ég til tveggja landa. Ég verð því orðin ansi veraldarvön þegar ég kem tilbaka aftur :)

Annars finnst mér of stutt í það því það minnir mig líka á að ég þarf að vera duglegri við að skrifa þessar tvær ritgerðir sem ég er að reyna að gera. En þetta reddast svo sem eins og alltaf, vill bara ekki þurfa að vera að pakka á milljón, taka til og skrifa ritgerðir, þið skiljið…

Litli frændi minn fær nafn um næstu helgi og ég hlakka heilmikið til að vita hvað hann á að heita. Hann stækkar og stækkar og er hreint út sagt æðislegur, ekki síðri en eldri systkini hans sem eru best líka :)

Er að hlusta á Juanes og Molotov til að koma mér aðeins í rómönsku ameríku fíling…

ÚtlandaJóhanna

Gas

Mánudagur, apríl 28th, 2008

Æðislegt hvað efni er fljótt að berast….

Þjóðfræði í hnotskurn :)

Ég er hrifnust af viðlaginu

Flottust…

Fimmtudagur, apríl 24th, 2008

Sjá heimasíðuna hjá Önnu Rán til þess að sjá allt fallegasta fólkið :)

Afmæli sætasta stráksins

Miðvikudagur, apríl 23rd, 2008

Maðurinn átti afmæli í gær, steig næsta skref í átt þess að verða fullorðinn. Í því tilefni fórum við út að borða á Caruso, fyrir gjafabréfið sem ég vann á aðalfundi Þjóðbrókar. Það var mjög gott, fyrir utan frekar þurran fisk. Á eftir lögðum við leið okkar í ísbíltúr og fengum svo heimskókn.

Ég vann líka gjafabréf í leikhús og við erum svona að melta með okkur hvaða sýningu okkur langar að sjá, einhverjar uppástungur?

Núna er ég að gera mitt besta við að sitja og vera dugleg að læra en það gengur ekki betur en svo að ég er búin að skoða öll blogg sem ég kemst í tæri við!!!!!

LataJóhanna

Litli frændi minn…

Þriðjudagur, apríl 15th, 2008

lét loksins sjá sig, þann 9. apríl eins og allir þeir sem hafa eitthvað samband haft við mig vita af. Ég er mjög montin stóra frænka og er búin að sýna öllum sem vilja sjá myndir af honum.

Ég held ég sé ástfangin :)

Annars er núna rétt rúmur mánuður í utanlandsferð nr. 2 á árinu og ég er að sjálfsögðu mjög spennt. Alltaf gaman að fara til nýrra landa.

Gaman að geta þess að allir í kringum mig virðast vera að eignast hund þessa dagana. Loksins fór einhver að hlusta á mig, ég er búin að vera að predika það í mörg ár að það sé gaman að eiga hund…

GlaðaJóhanna

Litli frændi minn…

Fimmtudagur, apríl 3rd, 2008

Er ekki kominn í heiminn en hann mætti nú alveg fara að láta sjá sig…

Útlönd

Þriðjudagur, mars 25th, 2008

Útlöndin voru mjög skemmtileg þrátt fyrir frekar mikinn kulda!
Alltaf gaman að hitta fólk sem ég hef ekki hitt í mörg ár…
Spænskan mín var frekar rygðuð til að byrja með en lagaðist svo…
Brúðkaupið var mjög fallegt og mikið borðað í veislunni…
London var líka fín eins og venjulega þó að ég hafi ekki fundið bækurnar sem ég var að leita af!