Bara svona í tilefni þess að ég er að fara til útlanda…

mars 11th, 2008


Menningarviti

febrúar 26th, 2008

Í seinustu viku reyndi ég mitt besta að vera jafn menningarleg og hún Helga Jóna. Það tókst ekki alveg þar sem mjög erfitt er að slá henni við.

Ég fór nú samt tvisvar í leikhús. Sá Kommúnuna með honum bróður mínum fyrripart vikunnar og svo Baðstofuna með einhverjum úr matarklúbbnum ásamt áhangendum seinnipartinn.

Mér fannst Baðstofan betra heldur en Kommúnan, fannt það síðarnefnda fylgja myndinni (Tillsammans fyrir þá sem ekki vita) of mikið. Held að þetta hefði getað orðið mun flottara ef að svo hefði ekki verið.
Baðstofan var mjög flott en við þurftum smá tíma til að átta okkur á því, fyrst eftir sýninguna vorum við ekki alveg viss með þetta allt saman en þegar leið á áttuðum við okkur betur og betur á því hvað okkur fannst þetta flott :)

En svona fyrir utan það að vera dugleg að fara í leikhús í seinustu viku, þá var ég líka í heimaprófi sem tók mun meiri tíma heldur en ég bjóst við.
Svo fór ég líka í útskriftarveislu hjá henni Ciliu, hún útskrifaðist úr þjóðfræðinni seinsta laugardag. Ég var reyndar plebbagestur og mætti gjafarlaus og mannlaus en ég bætti það nú upp um kvöldið og kom allavega með manninn með mér í teitið sem var haldið ( haldið var upp á útskriftina með kaffiboði og teiti) og mér til málsbótar er ég núna búin að versla gjöf sem ég á samt sem áður eftir að koma til skila.

Núna er bara planið að fara að spýta í lófana og vera dugleg að læra, það hefur ekki gengið svo vel hingað til ( þar af leiðandi mun ég örugglega fara að blogga meira, er það ekki alltaf svoleiðis?)

Er farin í skólann….

Klósettmál

febrúar 14th, 2008

Ég fékk skammir í gær fyrir að vera ekki búin að blogga lengi. Úr því verður bætt núna.

Helsta sem mér datt í hug að blogga um (eða eiginlega stelpunum) er að tilkynna það að núna eftir langa bið á ég loksins klósett sem virkar aftur. Það er gleðiatburður í mínu lífi. Fyrir þá sem ekki vita þá lifðum við Hlynur í of langan tíma með bilað klósett. Það virkaði þannig að það var fata inn á baði og það þurfti að fylla hana af vatni til að sturta niður. Þá leið mér eins og ég byggi í hjólhýsi. Þið getið því skilið gleði mína núna þegar hægt er að sturta niður á venjulegan máta :)

Þess má einnig geta að í sömu ferð þá fjárfestum við í nýjum sturtuhaus, sá gamli var farinn að sprauta ansi mikið til hliðanna líka.

Þannig nú ríkir gleði á baðherberginu á þessu heimili. Reyndar höfðu þessar breytingar í för með sér að nú langar mig að breyta öllu inn á baði en það verður víst að bíða betri tíma og meiri peningaumráða :)

En svo þegar ég velti meira fyrir mér hvað ég ætti að blogga um þá fattaði ég það að klósettmálin eru ekki það stærsta sem hefur gerst í lífi mínu síðan síðast (ég veit, ég lifi tilbreytingarlausu lífi og það þarf lítið til að kæta mig).

Stærsti atburður ársins til þessa er að sjálfsögðu brúðkaupið hjá Stefaníu vinkonu minni og Hjalta.
Það var mjög falleg athöfn og gaman í veislunni, þó við höfum gert okkar besta til að gera okkur að fíflum :)

Það má líka taka það fram að ég borðaði í fyrsta skipti í Perlunni í gær eins og fín kona og verð að segja að ég kann ekkert ofboðslega vel við snúningin og kunni heldur ekki við það að fá ekki súkkulaðimola með kaffinu að máltíð lokinni!

Plebbi

nóvember 30th, 2007

Get ekki að því gert að vera öfundsjúk út í vinkonur mínar fyrir að vera að flytja (sem mér finnst b.t.w ekki skemmtilegt) ég er bara öfundsjúk af því að þær eru að gera eitthvað venjulegt á meðan allt er á pásu hjá mér af því að ég er að læra!

Aumingja ég!!!
En þetta gengur yfir og ég verð mjög hamingjusöm kona seinnipartinn þann 17. desember. Þá má einhver góðhjartaður (sem þarf ekki að tala mikið við mig þar sem ég verð öruggleg steikt í hausnum, miðað við ástandið í dag) draga mig út í öl…

En það er allt að gerast bara núna…
Ekki nóg með að börn séu getin í gríð og erg í kringum mig þá eru fleiri brúðkaup væntanleg.

Gaman, gaman :)

Steikta Jóhanna

Fjölgun…

nóvember 9th, 2007

Fjölskyldan mín er í því að fjölga sér þessa dagana

Næsta vor mun ég eignast tvö ný frændsystkini. Það verður stuð og stemming :)

Og nei, Anna Rán er ekki ólétt…

Jóhanna frænka

Í tilefni dagsins… (eða næturinnar)

nóvember 1st, 2007

Boys and girls of every age
Wouldn’t you like to see something strange?

Come with us and you will see
This, our town of Halloween

This is Halloween, this is Halloween
Pumpkins scream in the dead of night

This is Halloween, everybody make a scene
Trick or treat till the neighbors gonna die of fright
It’s our town, everybody scream
In this town of Halloween

I am the one hiding under your bed
Teeth ground sharp and eyes glowing red

I am the one hiding under your stairs
Fingers like snakes and spiders in my hair

This is Halloween, this is Halloween
Halloween! Halloween! Halloween! Halloween!

In this town we call home
Everyone hail to the pumpkin song

In this town, don’t we love it now?
Everybody’s waiting for the next surprise

Round that corner, man hiding in the trash can
Something’s waiting now to pounce, and how you’ll…

Scream! This is Halloween
Red ‘n’ black, slimy green

Aren’t you scared?

Well, that’s just fine
Say it once, say it twice
Take a chance and roll the dice
Ride with the moon in the dead of night

Everybody scream, everbody scream

In our town of Halloween!

I am the clown with the tear-away face
Here in a flash and gone without a trace

I am the “who” when you call, “Who’s there?”
I am the wind blowing through your hair

I am the shadow on the moon at night
Filling your dreams to the brim with fright

This is Halloween, this is Halloween
Halloween! Halloween! Halloween! Halloween!
Halloween! Halloween!

Tender lumplings everywhere
Life’s no fun without a good scare

That’s our job, but we’re not mean
In our town of Halloween

In this town

Don’t we love it now?
Everyone’s waiting for the next surprise

Skeleton Jack might catch you in the back
And scream like a banshee
Make you jump out of your skin
This is Halloween, everybody scream
Wont’ ya please make way for a very special guy
Our man jack is King of the Pumpkin patch
Everyone hail to the Pumpkin King now

This is Halloween, this is Halloween
Halloween! Halloween! Halloween! Halloween!

In this town we call home
Everyone hail to the pumpkin song

La la-la la, Halloween! Halloween! [Repeat]
WHEE!!! Ha Ha Ha!

Vetur

október 26th, 2007

Slydda á brautinni og svo haglél!!!
Það er ekki vetur fyrr en á morgun!!!

Annað í fréttum er að ég er að klepra á skólanum

Ráð við því einhver??

Kúkur

október 12th, 2007

Ég veit að ég hef birt þetta hérna áður en ég er með arfaslakan húmór og ég hlæ alltaf af þessu!
Stal þessari útgáfu af hundaspjallinu

Draugaskítur: Sú tegund þar sem þú finnur skít koma en það er enginn
skítur í klósettinu.

Hreinn skítur: Þar sem þú skítur honum, sérð hann, enn það er enginn skítur á pappírnum.

Blautur skítur: Þar sem þú skeinir þér að minnsta kosti 90 sinnum og þér finnst enn þá eins og það sé óskeint svo að þú neyðist til þess að setja smá pappír á milli rassgatsins og brókanna svo maður skemmi ekki buxurnar sínar.

Seinni öldu skítur: Þessi gerist þegar maður er búin að skíta og er búin
að hysja brækurnar upp að hnjám þegar maður gerir sér grein fyrir því að maður þarf að skíta meira.

Sprengja-æð-í-hausnum skítur: Þar sem maður hefur svo mikið fyrir því að kreista skítinn út að maður fær bókstaflega heilblóðfall við það.

Gaui litli skítur: Þú skítur svo mikið að þú tapar 15 kílóum.

Drumbaskítur: Skítur sem er svo stór að þú ert hræddur við að sturta honum án þess að vera búinn að búta hann niður í minni einingar með
klósettburstanum.

Loftfylltur skítur: Hann er hávær, allir nálægir eru flissandi.

Rónaskítur: Maður skítur þessum morguninn eftir að langa drykkjunótt.
Helstu einkenni hans eru rákirnar á botni klósettskálarinnar.

Maís skítur: Skýrir sig sjálfur.

Helv. ég vildi að ég gæti skitið skítur: Þannig skítur að þig langar til
að skíta en það eina sem þú gerir er að sitja á klósettinu, aðþrengdur, og rekur bara nokkrum sinnum við.

Mænustungu skítur: Það er svo sárt að skíta honum að þú gætir svarið fyrir að hann færi þversum út.

Blautkinna skítur (Kraft dritið): Skítur sem losnar svo hratt úr rassgatinu að rasskinnarnar rennblotna vegna gusugangs.

Vökvakenndur skítur: Þegar gulbrúnn vökvi spýtist og slettist út um alla
klósettskálina.

Mexicanafæðis skítur: Hann lyktar svo illa að það verður að lýsa herbergið óíbúðarhæft.

Yfirstéttarskítur: Þeir sem halda að skíturinn þeirra ilmi (lykti) ekki.

Sjómannaskítur: Hann gerist þegar þú ert á almenningssalerni , það bíða tvær manneskjur eftir því að komast að; þú skítur og sturtar tvisvar sinnum en fjöldi gólfboltastærðar stykki fljóta enn á yfirborðinu.

Launsátursskítur: Þessi á sér aldrei stað heima fyrir, heldur í veislu eða
þegar þú ert að spila golf. Er árangur þess að reyna að reka “bara lítið”
við, en endar með buxnachilí og þú neyðist til þess að ganga
hjólbeinóttur það sem eftir er dags.

Til hamingju afmælisbörn mánaðrins

október 12th, 2007

Við Hlynur komumst að því við innkaup í Krónunni um daginn að það er ekki gert ráð fyrir því að karlmenn vaski upp. Allir uppþvottaburstar sem við fundum voru mjóir og nettir, of nettir í krumlurnar á Hlyni :)

Við ættum kannski að fara að athuga betur með verkaskiptinguna á heimilinu ef við kippum þessu ekki í liðinn…
Allavega þá eru til uppþvottaburstar frá Blindrafélaginu sem eru voldugri og karlmannlegri, þeir fást bara ekki í Krónunni…

Ég vaknaði alltof snemma í morgun eða nánar tiltekið kl. 06.20. Það gerist bara ekki nema að ég sé að fara til útlanda eða eitthvað slíkt. Reyndar er ég ekki svo heppin núna, ég fékk bara far til Keflavíkur og farið mitt lagði af stað kl. 07.00. Mér fannst því mjög undarlegt að rétt eftir átta var ég búin að fá mér hafragraut og kaffibolla!
Snilld samt í FS að bjóða upp á hafragraut á morgnanna. Ég vildi að HÍ gerði þetta, ég myndi allavega mæta :)

Ástæðan fyrir því að ég fékk far til Keflavíkur en fór ekki á bifreiðinni er sú að eftir vinnu í dag er ég að fara í sumarbústað í tilefni afmælis Helgu sem á afmæli á sunnudaginn.
Október er reyndar afmælismánuður ársins núna, er búin að fara í eitt afmæli, koma með köku í annað afmæli, er á leið í bústað í tilefni afmælis og svo þá eru mamma og Anna Rán eftir.
Fullt af afmælum…

Ég var að fá ný gleraugu og er svona að venjast nýjum styrk, finnst verst hvað það tekur langan tíma, en með þessu áframhaldi í sjóninni minni verð ég orðin blind áður en ég veit af (vona nú samt að það gerist ekki í náinni framtíð!).
Eftir að vera búin að flakka á milli gömlu og nýju glerauganna í nokkra daga held ég að þetta sé að koma, ég geti farið að leggja þeim gömlu.

Bleikur fíll

október 5th, 2007

Þessi færsla er bara fyrir Lukku, svo að hún hafi eitthvað að gera þegar hún nennir ekki að læra :Þ

Núna sit ég í vinnunni að bíða eftir því að einhver komi að sækja mig og skutli mér í vísindaferðina sem er einhversstaðar í Keflavík… Það verður hörku stuð og svo verður haldið á Paddys og drukkinn einn öl eða svo :) Langt síðan ég hef farið á Paddys.

Annars er bara allt gott að frétta af mér, við erum að endurnýja stofuna okkar, þetta fer að verða svaka flott. Við erum búin að fá okkur nýtt sjónvarpsborð, tölvuborð og stofuborð og hillur geri aðrir betur :) Þetta er einmitt í fyrsta skipti sem við kaupum eitthvað nýtt í stofuna, annað sem við áttum höfum við annað hvort fengið notað eða keypt notað.

Vúhú!!!

Ég held það vilji engin sækja mig :(