Kisumamma

19. september 2007

Fyrsti í fiðlu

Flokkun: Almennt — Kisumamma @ 9:07

Í gær var komið að fyrsta fiðlutímanum okkar hjóna. Ekki var okkur ofboðið með lærdómi, við lærðum að standa rétt, hneigja okkur (afar nauðsynlegt) og halda á fiðlunni. Bæði í hvíldarstöðu og í spilastöðu. Nú og að æfa bogagripið – án bogans. Það fer ekkert á milli mála að Mummi er meira efni í þetta allt en ég. Hann verður eflaust farinn að spila lög áður en ég veit af. Í dag er síðan hóptími, þá má Sóley koma með (til nöfnu sinnar Láru Sóleyjar) og fylgjast með hvernig tímarnir fara fram.

En talandi um Mumma. Hann er auðvitað afmælisbarn dagsins. Árinu yngri en hann heldur, hann er eitthvað að smitast af aldri gömlu eiginkonunnar sinnar. Við mæðgur vöktum hann í morgun með söng, Sóley uppástóð það í gærkvöld að við skyldum syngja ensku útgáfuna. Söng hana fyrir mig, reyndar allar fjórar línur eins.

8 athugasemdir

  1. Til hamingju með bóndann.

    Um síðustu færslu.
    Pældu ef þú hefðir bara haft Duran stuðlög í eyrunum út hlaupið. Þú hefðir hæglega getað bætt tímann um einar 7 mínútur. Er alveg handviss um það:)
    Þú gerir það bara næst.

    Comment ritaði Dagný — 19. september 2007 @ 10:05

  2. Dagný mín, þú klikkar ekki :-D

    Comment ritaði Mummi — 19. september 2007 @ 11:47

  3. Til hamingju með afmælið, Mummi!

    Það verður ekki amalegt þegar þið farið að bjóða uppá fiðlukonserta við hátíðleg tækifæri :)

    Comment ritaði Eygló — 19. september 2007 @ 12:44

  4. takk :)

    Comment ritaði Mummi — 19. september 2007 @ 15:05

  5. Bíð bara spenntur eftir að þið hjónin fari að spila dúetta fyrir utan glerártorg í jólaösinni, með 35 krónur í smámynt í opinni fiðlutösku fyrir framan ykkur.

    Comment ritaði f.willy — 19. september 2007 @ 19:17

  6. Þú leggur þá kannski eitthvað til í töskuna Willy minn…

    Comment ritaði Kisumamma — 19. september 2007 @ 21:34

  7. Ég er nú hræddur um að ég myndi spila og Hafdís syngja, við erum jú bara með eina fiðlu. Og taskan svo oggolítil að eftir heilar 35 krónur væru efri mörk burðarþols hættulega nálægt.

    En hugmyndin er góð. Kannski maður geti grætt eitthvað á Sóleyju… humm humm…

    Comment ritaði mummi — 19. september 2007 @ 22:21

  8. Ég skal þá reyna að vera frekar með seðla á mér fyrst burðarþolið er svona lítið.

    Comment ritaði f.willy — 25. september 2007 @ 18:35

RSS veita fyrir umræðu um þessa færslu.

Ekki er hægt að færa inn athugasemdir eins og er.

Knúið með WordPress