Kisumamma

15. mars 2008

Frábær frammistaða

Flokkun: Almennt — Kisumamma @ 11:37

Mikið óskaplega var ég montin af mínu fólki í Gettu betur. Ja, nema fíflinu sem argaði úr salnum þegar Konni ætlaði að svara 100 metrar. En þau tóku frábæran endasprett, sýndu æðislegan karakter og komu drengilega fram undir lokin. Ég var hins vegar búin að spá því að hraðaspurningarnar yrðu þeim að falli. Klárlega ekki þeirra sterkasta hlið. En ég átti líka góðan endasprett, svaraði Duran Duran þegar Konni var að tala um Black Sabbath… :) Sorgin var samt mikil á heimilinu, Sóley grét í góða stund eftir að úrslitin lágu fyrir. Erfitt að lifa sig inn í alla leið.

Annars er það bara lokaundirbúningur fyrir ferðina. Ekkert smá geggjað. Verst að pundið er ískyggilega hátt.

Ein athugasemd »

  1. Ég verð að segja að ég helt líka að það væru 20 ár síðan afi og amma voru í London, en samt þau hafa varla farið tvisvar
    á einu ári (Svíþjóð í lok mai).

    Comment ritaði Anna Steina — 26. mars 2008 @ 9:47

RSS veita fyrir umræðu um þessa færslu. Slóð fyrir bakvísun

Færðu inn athugasemd

Knúið með WordPress