Verð að viðurkenna að ég átti ekki von á að þurfa að horfast í augu við þetta svona snemma en í dag er fyrsti dagurinn þar sem dóttir mín fær símtal frá strák og rýkur með símann inn í herbergi og lokar að sér! Tilvonandi tengdasonurinn heitir Hannes og er af góðum ættum.
10. september 2008
4 athugasemdir »
RSS veita fyrir umræðu um þessa færslu. Slóð fyrir bakvísun
Já, er hann ekki hálfur Vopnfirðingur?
Comment ritaði Eygló — 10. september 2008 @ 23:31
OMG! Hún er aldeilis efnileg. Þú getur nú samt huggað þig við að þú veist hver maðurinn er.
Comment ritaði Jóna — 11. september 2008 @ 9:04
Ó ég skil. Hún er ekki búin að fá símhringingu ennþá, enda svara foreldrrarnir aldrei í heimasímann hér. ( enda síminn á alröngum stað í húsinu)
. En svo er annar strákur farinn að gera hosur sínar grænar fyrir henni og búinn að gefa henni koss beint á munninn. Þetta unga fólk í dag.
En músin á mínu heimili fékk álvöru bónorð í fyrra. Já já.. Mamman kom til mín og ræddi þessa hluti við mig
Comment ritaði Dagný — 11. september 2008 @ 21:59
Ég óttast að ég verði að gangast við að þetta sé gen úr mér. Og Dagný, ég get ekki ímyndað mér annað en að það sama gildi um þig og Músina. Held að þú hljótir að hafa verið komin í strákapælingar fjögurra ára.
Comment ritaði Hafdís — 12. september 2008 @ 13:34