Óli klukkaði mig…
1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Við kjötvinnslu í Kjötiðnaðarstöð KEA
- Á kassa í Hagkaup, fæ enn martraðir
- Stuðningsfulltrúi á sambýli
- Alt muligt kennari (danska, enska, íslenska, tónmennt, lífsleikni)
2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
- Sódóma Reykjavík (á hana á DVD)
- Með allt á hreinu (á hana líka á DVD)
- Mýrin var þokkaleg
3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Akureyri (en á mjög mörgum stöðum þar)
- Reykjavík (á þremur stöðum)
4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Danmörk, vítt og breitt, en ekki hvað?
- Svíþjóð, hér og þar
- Finnland
- Tékkland
5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Klovn
- House
- How to look good naked
- Little
6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:
- Google Reader
- Google Mail
- Facebook
- ma.is
7. Fernt sem ég held upp á matarkyns:
- Önd
- Hörpuskel
- nammi
- ís
8. Fjórar bækur sem ég hef oft lesið:
- Anna í Grænuhlíð
- Harry Potter
- Dægurlagasöngkona dregur sig í hlé
- Bróðir
9. Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:
- Í rúminu mínu, sofandi
- Að versla í HogM á gamla genginu
- Í Kaupmannahöfn
10. Fjórir bloggarar sem ég klukka:
- Erna Erlings - veitir ekki af hvatningunni
- Ásdís
- Villi – hann þarf líka hvatningu
- Dagný
(rétt náði að merja í fjóra lesendur… svona til að sanna að ég kann alveg að telja upp í fjóra).
Hvað kom fyrir letrið hjá þér?
Comment ritaði Árný — 23. október 2008 @ 16:52
Ég veit það ekki. Maður verður eiginlega lesblindur af því að lesa þetta svona.
Comment ritaði Hafdís — 24. október 2008 @ 13:12
Ég vann nú líka einu sinni á kjetiðnaðarstöð KEA, gríðarlega sællar minningar. Aldrei að vita nema ég taki áskoruninni, þetta gæti þá verið efniviðurinn í minni semí-mánaðarlegu bloggfærslu.
Comment ritaði f.willy — 25. október 2008 @ 0:38