Kisumamma

Mánaðarpistillinn
Þá er nánast mánuður síðan síðast og skrifast víst bara að hluta til á miklar annir. Nú er ég búin að hafa það náðarsamlegt í ellefu daga, síðan ég skilaði ritgerðunum mínum inn. Ég ætla samt að líta yfir farinn veg síðasta mánuðinn og skrifa jólafærslu og allan pakkann.

Ef ég byrja nú þar sem frá var horfið, þá lögðum við leið okkar til Kaupmannahafnar, sunnudaginn 18. des. Sunna var reyndar hundveik með 39 stiga hita, en hún var dópuð upp. Tókum lest snemma morguns, dætrunum til ómældrar gleði. Já, þetta er þægilegur ferðamáti fyrir fjölskyldur (svona fjögurra manna amk) þar sem er hægt að sitja öll saman og dunda sér. Við komum um hálf tólf og byrjuðum á að fá okkur KFC á Ráðhústorgi, algjörlega ómissandi, því ekki búum við svo vel að hafa KFC hér í Árósum. Þaðan lá leiðin á Strikið með tilheyrandi stoppum á kaffihúsi og hjá möndlusölum og þess háttar. Við gengum að sjálfsögðu alla leið upp að Nýhöfn og spásseruðum þar. Síðan fórum við í rólegheitum tilbaka og enduðum um hálf fjögur í Tívolí. Sunna svaf megnið af síðdeginu en Sóley var alveg heilluð af umhverfinu og við náðum einmitt ljósaskiptunum. Fröken fékk turbånd og fór talsvert í tæki, þó er hún auðvitað enn of lítil til að fara í aðal tækin (móðurinni til mikils léttis), við komumst reyndar að því að hún var rétt búin að ná nægri hæð til að fara í Dæmonen en það kom ekki til þess að hún færi í hann. Við vorum búin að panta borð á Hercegovinu (sem er veitingastaður í Tívolí) klukkan hálf sjö, en við vorum öll orðin köld og Sunna mjög drusluleg svo við flýttum ferð okkar og vorum þar um sex. Fórum á jólahlaðborð og það var mjög indælt en átti svo sem ekkert í góðugóðu jólahlaðborðin heima. Sóley komst þó á bragðið með ris a la mande. Við flýttum okkur bara heim á hótel (hið sama og ég var á fyrr í mánuðinum), vorum ánægð með herbergið sem var stórt og gott, allir fóru í bað (Sunna þó með háværum mótmælum, því hún kærir sig hvorki um bað- né sturtuferðir) og dömurnar voru fljótar að sofna.

Á mánudeginum byrjuðum við á að fara á kaffihús á lestarstöðinni og síðan tókum við strætó í dýragarðinn. Meðan við biðum eftir strætó, skemmti stóra systir þeirri litlu með söng, það er í miklu uppáhaldi að syngja “i dag er det mors fødselsdag, hurra, hurra, hurra” og skýringin er væntanlega sú að hér á heimilinu er til bók sem heitir Annas mor har fødselsdag, þar sem þessi söngur kemur fyrir. Þetta hafði þau áhrif að aðrir sem biðu eftir strætó horfðu glaðlega á mig í þeirri trú að ég ætti afmæli. Kona sem stóð við hliðina á okkur spurði hvort við værum á leið í dýragarðinn, það var reyndar ekki búið að segja Sóleyju frá því en ég jánkaði og þá þyrlaðist daman auðvitað upp. Við áttum góða ferð þar, báðar dömurnar alveg yfir sig hrifnar af dýrunum og það var margt að sjá. Satt best að segja var þetta líka jákvæðari ferð fyrir mig, síðast þegar ég fór, með Sóleyju sex mánaða, varð ég þunglynd af því að horfa á dýrin svona innilokuð. Það er búið að gera eitt og annað síðan síðast svo þetta var betra.

Við fórum svo tímanlega af stað á lestarstöðina, borðuðum og bjuggum okkur svo undir að fara í lestina. Þá ropaði Sóley upp úr sér hvort við ætluðum ekki að sækja töskuna í skápinn… stress stress stress, ég hljóp af stað og náði á síðustu stundu til baka og við inn í lestina. Ég var  lengi að ná mér niður, bæði er formið nú ekki betra en svo en það var ekki síður adrenalínflæðið sem var á fullu. Að öðru leyti var ferðin heim tíðindalaus, við komum heim um kvöldið og tókum strætó heim.

Dagarnir fram að jólum fóru að mestu leyti í lærdóm og að finna eitthvað að gera á daginn fyrir Sóleyju. Hún fékk að byrja að skreyta en annars leiddist henni hálf. Á Þorláksmessu sóttum við Sunnu um hádegi, skreyttum jólatréð í rólegheitum, borðuðum pizzu og suðum hangikjöt. Aðfangadagur var að öllu leyti mjög rólegur, dæturnar horfðu á sjónvarpið, allir fóru í jólasturtu, ég fór í messu í Egå kirkju seinni partinn til að fá að upplifa samanburðinn (það er afar einkennilegt að Heims um ból sé ekki síðasti sálmur!) og svo borðuðum við klukkan sex, önd og ris a la mande. Möndlugrauturinn féll í góðan jarðveg hjá öllum (Sunna lét sér þó nægja nokkrar skeiðar, og fékk ís sem auka-eftirrétt) og ótrúlegt en satt, þá var það Sóley sem fékk  möndluna. Ekki var nú mikið pókerfés yfir því, það var opinberað um leið og það var ljóst.

Við foreldrarnir gengum frá með góðri aðstoð dætranna og tókum svo upp haug af pökkum, en í algjörum rólegheitum. Sunna var alveg með á nótunum og opnaði eins og atvinnumaður en hafði þó líka gaman af innihaldinu og staldraði oft við og skoðaði og dáðist að. Klukkan var orðin margt þegar þessu var lokið, þá var smá Skype og síðan var unga daman sett í bælið en hin fékk að vera á fótum lengur. Við hjónakornin lásum jólakortin undir miðnættið eins og oft áður og fórum svo í bæl.

Jóladagur var sömuleiðis rólegur, við fórum út í lítinn göngutúr í yndislegu veðri, borðuðum hangikjötið um kvöldið (og heimalagaða ísinn sem tókst vel en bragðaðist ekki eins og heima…) Um kvöldið horfðum við þrjú á Jólaævintýri Prúðuleikaranna, ætli við reynum ekki að gera hefð úr því, dömunni fannst þetta gaman.

Á öðrum í jólum fórum við í Den gamle by. Þangað var gaman að koma en yngsti fjölskyldumeðlimurinn var hvorki ánægður né þakklátur fyrir þessa ferð. Við höfðum hana ekki í kerru, til að eiga hægar um vik að komast um inni í húsunum og það kostaði bara vesen. En ég keypti árskort og fer kannski bara síðar og skoða í afslappaðri stemmingu. Ég kom þarna fyrst fyrir 20 árum og man að mér fannst það bara hæfilega gaman, sennilega hefur þroskinn eitthvað haft með áhugann að gera.

Á milli jóla og nýárs reyndi ég að halda áfram að sinna lærdómi, dæturnar voru samt báðar heima og fannst móðirin frekar leiðinlegur félagsskapur. Sóley kvartaði sérstaklega og finnst ég reyndar sinna náminu allt of mikið (svo það er erfitt að gera öllum til hæfis, mér finnst ég engan veginn sinna því nógu vel). Ég fór einn dag á bókasafnið til að ná góðum heilum degi en samt gekk þetta býsna hægt. Ákvað að taka áramótin samt alveg rólega og gamlársdagur og nýársdagur voru þannig algjörir frídagar.

Við gerðum samt fátt, á gamlársdag fórum við mæðgur þó í leikhús og horfðum á Bróðir minn Ljónshjarta og það var reglulega skemmtileg ferð, gaman að koma í leikhúsið líka. Um kvöldið borðuðum við rækjur, hrygg og sítrónufrómas og ég hafði að auki keypt míni kransaköku sem við gæddum okkur á um kvöldið. Við horfðum á sjónvarpið (halvfems års fødselsdagen er skylduáhorf) og hoppuðum niður af stól á miðnætti.  Reglulega notalegt, en í raun ekki  svo ólíkt því sem við erum vön. Sóley fékk líka þau tíðindi um miðnætti að hún fengi að fara til Íslands með pabba sínum. Að vísu var inngangurinn þannig að hún skildi það þannig að hún fengi ekki að fara og þá voru tárin fljót að spretta fram, svo hún var í mikilli geðshræringu þegar hún fékk tíðindin.

Á Nýársdag var það sama uppi á teningunum, við héldum okkur heima við, ég sinnti ritgerðarskrifum. Borðuðum nautakjöt og jarðarberjamousse. Það var einkar ánægjulegt að gefa dætrunum að borða alla þessa daga, þær borðuðu alltaf eins og herforingjar.

Sunna fór strax næsta dag til dagmömmunnar og ég á bókasafnið að skrifa, með hálfum huga því ég var ekki svo bjartsýn á að ég næði að ljúka ritgerðarskrifum en ákvað að láta vaða. Átti góðan dag á bókasafninu og var nokkuð bjartsýnni þegar ég kom heim um kvöldið. Næsta morgunn hjólaði ég með Sóleyju í skólann og fór svo aftur á bókasafnið og kláraði ritgerðina mína. Við hjónin fínpússuðum hana um kvöldið, bæði málfar og uppsetningu og þá var þetta frá. Henni var skilað daginn eftir og síðan hefur letin verið við völd.

Sóleyju líst vel á sig í nýja skólanum, eignaðist að sjálfsögðu vinkonu fyrsta daginn en er einna helst súr yfir að vera að læra stærðfræði sem er fyrir neðan hennar virðingu. Hún er skráð í sundklúbb í skólanum og byrjar á æfingum í næstu viku.  Þau feðgin eru búin að vera viku á Íslandi, hann að vinna og hún á fullu í félagslífinu, bæði búin að fara í heimsókn í gamla bekkinn og gista hér og þar, en er á leið heim í dag og verður sótt til Ellenar, samstarfskonu Mumma á morgun. Mummi skilar sér svo á fimmtudaginn.

Ég byrja aftur í skólanum eftir hálfan mánuð, á eftir góðan slurk af letistundum enn. Tímanum þessa dagana er eytt í lestur (með Kindlinum) og bíómyndagláp, það er sem sagt dönskukennarinn sem er að vinna þessa dagana, rólega þó.

Með allt á hælunum
Og hvað er þá betra að gera en að skella í eina bloggfærslu? Nú er botninum náð í leti og ómennsku, það gengur hvorki að græja jólin af neinu viti né að skrifa ritgerð af neinu viti. Að auki er tveggja daga frí framundan, við ætlum að fara í smá skrepp til Kaupmannahafnar, leggjum í hann með lest í bítið í fyrramálið og eyðum deginum á Strikinu og í Tívolí, mánudeginum væntanlega í dýragarðinum. Það á m.ö.o. að taka smá fjölskylduhygge á kostnað lærdóms og þrifa. Það hafa auðvitað komið smá jólatilþrif af og til, Strumpan spilaði á jólatónleikum á sunnudaginn var og það var auðvitað ljúft og hún spilaði eins og engill en fannst hálf spælandi að hafa bara foreldra og systur til að hlusta, auk þess sem hún hafði nú ekki náð að læra öll lögin sem voru spiluð og það fannst henni nokkuð glatað. Við gerðum heiðarlega tilraun til að labba í bæinn á eftir en Skottan var ekki í neinu stuði, svo það var snarhætt við. Við tókum Strumpuna í staðinn á smá jólarand í gær, fórum á jólamarkað og röltum í bænum áður en hún fór í tónlistarskólann og spilaði aftur, að þessu sinni einleik og einungis móðirin meðal áhorfenda. Á miðvikudaginn var líka jólastund í vistuninni, þar komum við öll og fengum eplaskífur og smákökur. Strumpan var mynduð í bak og fyrir með dýrunum enda var þetta síðasti dagurinn þarna.

Á fimmtudaginn fórum við í heimsókn í nýja skólann. Þar var vel tekið á móti okkur, bekkurinn afar ákafur að fá hana og hún leyst út með bekkjarmynd svo hún gæti farið að glöggva sig á nýju samnemendunum. Vistunin þarna er líka fín og ágætlega búin þó engin séu dýrin. Það er mikil áhersla á hreyfingu og meðal annars klifurveggur inni. Skólinn er gríðarlega vel settur, með eigin leikfimissali, hátíðarsal og sundlaug. Allar stofur með “smartboard” og okkur var líka sýnd stofa sem er notuð þegar er verið að nota nýstárlegar kennsluaðferðir. Þar inni var lítið af húsgögnum og þau sem voru til staðar ekki hefðbundin. Á gólfinu var meðal annars motta með tölunum frá einum upp í hundrað til að hjálpa litlum grísum að læra þær. Strumpan byrjar strax eftir jól í nýja skólanum og er mjög spennt en saknar gamla gengisins líka.

Það eru líka breytingar í vændum hjá Skottunni, þó litlar séu. Það hafa verið tvíburasystkin með henni hjá dagmömmunni en nú eru þau að hætta svo það koma tvö ný börn inn í janúar. Þær verða bara tvær í næstu viku, hún og litla stýrið sem er með henni, svo það verður rólegt hjá þeim fram að jólum. Hún verður svo í fríi milli jóla og nýárs, svo hér verður mikið stuð.

Ég fór í leiðsagnarviðtal í gær, fékk stöðumat á litlu ritgerðina minni sem ég er komin langleiðina með. Var dauðkvíðin fyrirfram því mér fannst ég ekki hafa unnið hana nógu vel, sendi hana auk þess án þess að lesa hana almennilega yfir. Sem betur fer voru ekki stórir gallar og ég fékk góðar ábendingar hvernig ég gæti snurfusað hana svolítið. Ég afsakaði mig með því að það væri ansi langt síðan ég hefði skrifað svona verkefni síðast (reyndar hef ég aldrei unnið neitt sem er sambærilegt af neinu viti) en kennarinn hélt að þarna kæmi kennarabakgrunnurinn að góðum notum, miðað við að þetta var skipulega gert. Jamm, það er kannski ekki svo galinn bakgrunnur þó að það skorti á í öðrum fræðum.

Ferðalög og pestir
Við lögðumst í menningarferð til Randers á laugardaginn var. Hófum leikinn í Randers Regnskov til að nýta okkar góða ársmiða. Það var mikil sæla hjá dömunum, sú yngri sýndi jafnvel enn meiri áhuga en síðast. Í hverri ferð er eitthvað dýr sem við komumst nánast í snertingu við, í sumar var það api sem vappaði svo nálægt okkur að hann straukst við Strumpuna en núna var það eitthvað mauraætuafbrigði sem ákvað að það væri nauðsynlegt að hnusa af okkur, aðallega Mumma og Skottu. Eftir dýraskoðun var haldið í annars konar skoðun, svokallaða vöruskoðun. Hún fór fram í Randers storcenter og tókst svo vel að nokkrar vörur skiptu um hendur, ekki síst svokallaðar jólavörur. Það verður að segjast að það er býsna notalegt að krossa við á jólagjafalistanum svona snemma. Við uppgötvuðum nýjan áfangastað í Randers, þar er nefnilega hið danska Graceland. Ekki var það heimsótt í þessari ferð en stefnt er að því síðar. Bara af því að það er fyndið.

Við vorum varla komin inn úr dyrunum þegar Skottan brast í ælu. Mikill léttir að það skyldi ekki gerast í ferðinni en að öðru leyti tóm leiðindi eins og alltaf. Allir voru á tánum yfir að smitast og fundu reglulega draugaverki í maganum. Pestin stóð fram á mánudag og allir orðnir samdauna. Ég var ósköp fegin að daman náði heilsu í tæka tíð fyrir Kaupmannahafnarferð, henni var skóflað til dagmömmu á þriðjudag (að þessu sinni afleysingarmömmu sem olli skælandi barni við skilun) en þá var Mummi orðinn pestarpési. Hann hafði það  þó af að keyra eiginkonuna í rútu og hún skildi eftir lasarusana sína til að fara í skemmtiferð.

Í Kaupmannahöfn hitti ég þær stöllur Kristínu og Þórönnu. Við nýttum þriðjudaginn vel, gengum fyrst Strikið og síðan héldum við á Fiskitorgið. Ég var ekki í sérstakri verslunarþörf en náði þó að kaupa jólaföt á Strumpuna og á mig   en hafði að öðru leyti ekkert í atvinnumanninn sem eyddi drjúgum tíma í HogM. Sem betur fer var hægt að bíða í rólegheitum á kaffihúsi, mér leið svolítið eins og þreytta eiginmanninum í leit að sæti þegar ég var enn inni í búð. Eftir ósköpin var haldið á hótelið, mikil eftirvænting bjó um sig því þetta hótel var svolítið óvissuspil. Þarna er engin gestamóttaka, maður fær bara númer til að stimpla sig inn. Allt virkaði eins og það átti að gera, við komumst inn á herbergi og það leit vel út nema hvað herbergið var svona helmingi minna en það sem við höfðum séð á mynd (ég hélt að það væri gleiðlinsueffektinn en þetta var þá bara öðruvísi herbergi). Þar átti að vera kósístund með hvítvíni en enginn reyndist með tappatogara og við gáfumst upp á að opna flöskuna með öðrum leiðum. Enduðum kvöldið á Jensens bøfhus sem var einkar ánægjulegt, ekki síst dýrindis eftirréttur.

Á miðvikudeginum fórum við á ráðstefnuna sem bar yfirskriftina Hvorfor er dansk så svært. Hún fjallaði um stöðu dönskunnar sem samskiptamáti á Norðurlöndum. Hún var haldin á Norður-Atlantshafsbryggju í ævintýralega flottu húsi þar sem Vestur-Norðurlöndin hafa aðstöðu. Það var vel hugsað um okkur í mat og drykk og innleggin voru yfirleitt bæði skemmtileg og áhugaverð. Hins vegar var dagskráin býsna ströng og lauk ekki fyrr en um fimm. Þá héldum við heim á hótel (keyptum tappatogara á leiðinni) og slöppuðum aðeins af. Um kvöldið borðuðum við fyrst á Hard Rock og fórum þaðan í Tívolí – reyndar of seint og síðar meir, höfðum ekki áttað okkur á að það var bara opið til tíu, svo við höfðum bara hálftíma til að skoða. Það var óhemju flott að ganga þar um, að þessu sinni eru þeir með rússneskt þema sem kemur mjög skemmtilega út. Við náðum að versla aðeins meira og fengum svo náðarsamlegast að kaupa jólaglögg á Grøften þó að það væri búið að loka.

Ég kvaddi svo stöllur mínar á fimmtudag (með þunga tösku af jólagjöfum en hafði einnig náð að hrúga á þær líka) og sneri heim í hversdaginn og próflestur. Mín bíður próf á föstudaginn og það er ansans magn sem þarf að lesa. Ég sit við en sinni fjölskyldunni eftir megni líka. Þannig fórum við í julehygge í skólann Strumpunnar í dag. Þar föndruðum við (til dæmis hið klassíska jólahjarta) og fengum smákökur. Ég spjallaði við kennara Strumpunnar sem sagði að hún yrði sett í viðtal við sprogkonsulent í næstu viku til að meta stöðuna.

Félagslíf af áður óþekktri stærðargráðu
Það hefur eitt og annað á dagana drifið síðan síðast og ekki seinna vænna en að henda inn lítilli skýrslu. Frásögnin hefst fyrir hálfum mánuði þegar Óli Pálmi og Ellen, sem eru fyrrum vinnufélagar Mumma, litu inn. Það var mikið fjör og gaman, aðeins hægt að grípa í Þýskalandsvarninginn góða. Strumpan stóð sig eins og herforingi að tala dönsku við Ellen. Næsta dag kom Óli aftur, það verður að nýta vel þegar eru ferðalangar frá Íslandi hér í nágrenninu.

Á sunnudeginum fórum við í heimsókn til Viðars frænda sem býr í Beder, hinu megin í Árósum. Hann hafði hringt nokkrum dögum áður og ég bauð okkur að heimsækja hann af því að mig langaði að rúnta þangað. Beder er snotur smábær þar sem Gunnlaugur Starri hafði annan fótinn fyrir nokkrum árum, Erna hafði reyndar fast að því báða fætur þar, svona á milli þess sem hún rúntaði til Gunnlaugs í Kolding. Þetta er líka fallegasta leið að keyra því um stund er maður staddur í sveitinni, við keyrðum í skemmtilegri þoku. (Þær eru mun algengari hér en heima og afskaplega misfallegar og -skemmtilegar). Viðar frænda minn hef ég ekki séð í mörg ár og Mummi hefur aldrei hitt hann áður, eins og ég hef ekki hitt Sif hans Viðars áður. Þetta var prýðilegasti fjölskylduhittingur og auðvitað gaman að geta bæði deilt reynslu sinni af útlandinu og rætt fjölskylduna. Strumpan fékk líka félagsskap þar sem Viktoría Viðarsdóttir er á svipuðum aldri, Skottan fékk bara matarást á fimm ára frænda sínum sem sá um að hana skorti ekki kex.

Þremur dögum seinna fórum við í matarboð til Anne og Mads (til upprifjunar þá eru þau kennarahjón sem bjuggu í einn vetur á Íslandi, reyndar án þess að við kynntumst þeim en við skutum yfir þau skjólshúsi þegar þau áttu leið um Ak. fyrir tveimur árum). Þau búa líka í hinum endanum á Árósum svo við fengum aftur smá rúnt. Það stendur reyndar alltaf fyrir sínu, það er gaman að skoða ný hverfi.  Þau eiga sömuleiðis börn svo Strumpa lék sér við þau en Skotta fékk að njóta sín í nýju dóti, eins og reyndar í heimsókninni til Viðars. Þegar svo er þá verðum við nánast að skrifa á hendina á okkur að muna eftir að við eigum ekki bara eitt barn því það fer ekkert fyrir henni, ekki vandi á þeim bænum að fara í heimsókn. Við áttum góða stund hjá þeim og Mummi og Strumpan vöktu sérlega lukku fyrir að hafa bætt dönskukunnáttuna.

Um helgina lá leiðin til Skagen og eyddum við helginni í góðu yfirlæti hjá Kim og Bente. Við tókum því reyndar óvenju rólega, litum í bæinn á laugardeginum og fórum í heimsókn til Leif og Bente (sem eins og Anne og Mads eru vinir sem við erum að erfa frá Kristínu og Árna Hrólfi) auk þess að fara í göngutúr á ströndina á sunnudagsmorgni. Stelpurnar voru yfir sig ánægðar, hundur á báðum heimilum, annar þó öllu rólegri en hinn … Aftur fengu Mummi og Strumpan hól fyrir dönskukunnáttu enda var daman búin að bíða eftir að geta talað við þau síðan hún hitti þau fyrst og það er óhætt að segja að hún hafi látið til sín taka. Mummi hefur fram að þessu alltaf talað ensku við þau en talaði bara dönsku núna og fór létt með. Þannig fór helgin bara í át og samveru, eins og tilhneigingin hefur verið þegar við förum á þessar slóðir. Vigtin sagði sína sögu við heimkomu. Við horfðum reyndar á frábæran sjónvarpsþátt á laugardagskvöldið, ég hef ekki hlegið svona mikið í langan tíma. Þetta var enn einn raunveruleikaþátturinn og gekk út á að dáleiða fólk og láta það gera eitt og annað. Allt innan velsæmismarka samt. Sem dæmi má nefna að einn ungur maður, svona greinilega af góðum efnum, Norður-Sjálandstýpa í lögfræði, var látinn synda í pínulítilli laug innan um uppblásna hákarla sem honum var talin trú um að væru höfrungar. Hann náði þessu líka fína sambandi við höfrungana, var í lokin látinn halda að hann væri höfrungur og fékk sardínu að launum fyrir að sýna flott brögð.  Sem betur fer ekkert undir beltisstað, meira svona græskulaust gaman.

Á mánudaginn var fór Strumpan í sinn fyrsta fiðlutíma eftir langt hlé. Nýi kennarinn hennar heitir Mads og var afar viðkunnanlegur. Tímarnir eru í Læssøgadeskole sem er ágætt eins og er, en verður alvöru rúntur þegar hún flytur um set. Hún á líka að fara í hóptíma svo það bíður heilmikill rúntur. Það verða jólatónleikar eftir tvær vikur svo það er byrjað af hörku, hún átti að læra heima að spila Heims um ból og Í Betlehem er barn oss fætt, við gerðum það þannig að ég glamraði það á píanó til að hún lærði laglínuna og síðan þreifaði hún sig áfram með fiðluna og var ekki lengi að. Í gær var síðan fyrsti tíminn hennar í íslenskuskólanum, enn eitt sem kallar á keyrslu … ég ætla aðeins að gefa því séns en það byrjaði frekar rólega, tíminn fór allur í föndur og spil og næst á að búa til brjóstsykur (eða brjóstsyk eins og kennarinn sagði, hmmm.) Ég veit ekki hvort ég nenni að standa í þessari keyrslu ef hún verður ekkert að sinna íslenskunámi, svo miklar áhyggjur hef ég nú ekki af því hvernig hún stendur (þó hún segi að hún komi for sent og það sé ekki mikið eftir tilbaka af einhverju   ).

Í dag fór ég í síðasta tímann á önninni, svona af því að ég ætla nú að skrópa í næstu viku til að fara á ráðstefnu til Kaupmannahafnar. Þá er næst að bretta upp ermar og fara að vinna eitthvað, það bíða tvær ritgerðir og eitt próf. Það er skrýtin tilfinning að tímarnir verði ekki fleiri enda verður næsta önn bara með einum venjulegum áfanga. Sá mun snúast um aðferðir við rannsóknir ef ég hef skilið rétt en að öðru leyti fer önnin í að vinna stórt rannsóknarverkefni (held ég). Mummi var líka í sínum síðasta tíma í dag en það er reyndar af því að hann ætlar að hafa meiri tíma til að sinna verkinu sem hann er að vinna fyrir Ellen. Það er tímafrekt að fara í skólann með, hann hefur tekið um fimm tíma á dag með ferðum. Enda er það búið að sanna sig að hann er orðinn fúllbefær og getur því alveg útskrifað sjálfan sig. Við vitum hins vegar ekki hvernig fer með skólaflutninga hjá Strumpunni en ég er að hugsa um að senda póst á kennarann og ýta við henni. Óttast bara að þau vilji ekki missa hana   .

Smá bónusfærsla
Hendi inn til gamans bréfi sem ég sendi á samstarfsfólk mitt …

Sæl öll

Ákvað að senda á ykkur línu til að láta vita hvernig mér reiðir af á nýjum slóðum. Einhverjir halda jafnvel að ég muni ekki snúa aftur þegar ég loks er komin til fyrirheitna landsins. Það er ekki fjarri lagi. Ég þykist vera orðin nokkuð dönsk, hálfdönsk að minnsta kosti og gott ef ég nálgast það ekki að verða nýdönsk. Ég hef verið til fyrirmyndar sem innflytjandi, keypti strax á fyrstu dögunum hjól handa öllum hjólfærum í fjölskyldunni og hjólakerru handa litla prikinu. Þess má geta að við höfum ekki hjólað okkur til óbóta heima, sem dæmi held ég að það hafi verið komin ein þrjú ár síðan ég hjólaði síðast þar. Ég verð þó að viðurkenna að við erum enn á amatöra-stiginu. Gamlar konur taka fram úr okkur þegar við erum á fjölskyldurúntinum og þó að ég haldi í við þær þegar ég hjóla ein þá er það ekki beinlínis daglegur viðburður að stíga á hjólið.

Það má reyndar segja að ég hjóli alltaf í skólann þegar viðrar til þess og ég þarf ekki að mæta ókristilega snemma, í allt eru það líklega ein fjögur skipti. Ég vek reyndar aðdáun samnemenda minna þegar ég hjóla, því þetta eru þó um 8 kílómetrar hvor leið og síðasti spölurinn upp að háskóla er ansi hreint brattur, það er ekki laust við að mér finnist ég vera í Ölpunum svo ég skammast mín lítið að þurfa að hoppa af og leiða hjólið smá spöl. Eins og gefur að skilja fylgir síðan svitakóf mikið, ég þarf bæði að vera tímalega til að ná að klára að svitna og svo þarf ég heilgalla til að skipta um föt. Af þessu má sjá að hjólreiðunum fylgir talsvert umstang.

Þá sjaldan ég hjóla ekki í skólann tek ég strætó. Bý svo vel að geta valið um 6 leiðir sem eru í 5 mínútna radíus og allar fara þær bæði að háskólanum og í miðbæinn, þægilegra getur það ekki verið. Ég gerði einu sinni þau mistök að keyra, af því að ég þurfti að koma eldri dótturinni til tannlæknis og það olli bara kvíða og stressi því það eru engin stæði að ráði við skólann, ég fylgdi reyndar bara ráði heimamanna og lagði ólöglega. Ekki langar mig til að endurtaka þetta.

Af skólanum er flest ágætt að frétta. Ég hef tekið nýja stefnu sem námsmaður og mæti núna undirbúin í tíma. Það virðist skila nokkrum árangri, mér hefur gengið þokkalega að fylgjast með og vera með á nótunum (svona eftir að ég náði sæmilegum áttum í enskunni). Námið er mjög áhugavert, ég sé ekki betur en ég verði vel í stakk búin til að kenna á nýrri tungumála- og félagsgreinalínu. Þetta er nokkurs konar bræðingur af mannfræði, stjórnmálafræði og þjóðfræði, með smá hliðarhoppum í heimspeki- og félagsfræðikenningar. Það sem kemur mér helst á óvart er að ég hef gaman af áfanganum sem fjallar um ESB, fram að þessu hefur það ekki verið sérstakt áhugamál mitt.

Stærsti gallinn við námið er sá að ég hef verið svolítið týnd í öllu talinu um hinar og þessar kenningarnar og hvernig maður beitir þeim, en mér finnst eins og það sé ögn að birta til, geng ekki svo langt að segja að ég hafi séð ljósið, það má kannski frekar segja að ég sjái bregða fyrir kertaloga. Rétta áttin, hverju sem öðru líður. Kennararnir mínir eru miklir áhugamenn um hópvinnu og það líður nánast ekki sá tími að við séum ekki sett í hópverkefni. Þetta á að hvetja okkur til að mæta vel undirbúin svo við bregðumst ekki samnemendum okkar og kannski svo þetta sé ekki bara eintal kennarans. Mér finnst þetta vera nokkuð mikið af hinu góða, eftir sem áður er það mest sama fólkið sem talar í hópunum. Við höfum að auki þurft að vinna hópverkefni sem við kynnum í tímum og það er ekki laust við að hér komi bakgrunnurinn sér vel, mér finnst lítið mál að tala fyrir framan bekkinn en veit að margir kvíða fyrir þegar það bíður þeirra. Nú styttist í prófin, ég tek eitt skriflegt próf og skila tveimur ritgerðum, því miður í janúar svo ég sé ekki fram á að desember verði neinn alsælumánuður í dúlleríi fyrir jólin.

En víkjum aftur að aðlöguninni. Ég fór í menningarferð til Þýskalands um síðustu helgi. Keyrði nokkra kílómetra yfir landamærin (eldri daman sat aftur í og beið eftir að það gerðist eitthvað), fann risastóra verslun og keypti bjór, vín og gos eins og enginn væri morgundagurinn. Eða kannski eins og það væru margir morgundagar, ég hef aldrei átt svona mikið af áfengi áður svo það veitir ekkert af lengra lífi til að drekka þessi ósköp. Þrátt fyrir þessi miklu innkaup eigum við enn eftir svolítið í land með að verða aldönsk, okkar stafli var eins við værum að kaupa til vikunnar, miðað við það sem á gekk í kringum okkur. Enda dugði þetta skammt, í dag keyptum við meiri bjór (þó ekki sjáist mikið á birgðunum) og eigum núna þrjár tegundir af jólabjór og förum þá að verða nokkuð vel sett.

Talandi um að kaupa fyrir vikuna, þá höfum við líka reynt að læra það af innfæddum að fara ekki í búð á hverjum degi. Þetta var búið að vera svolítið kvíðaefni fyrir flutninga, hvernig á maður að fara að í landi þar sem búðir eru lokaðar á sunnudögum? Áfallið reyndist nokkuð minna en við höfðum séð fyrir okkur. Bæði erum við svo vel í sveit sett að í 200 metra fjarlægð er prýðisbúð sem er opin alla daga, langt fram á kvöld. Hins vegar virðist nýja trendið hér vera að hafa opið fyrsta og síðasta sunnudag í mánuði svo þetta er ekki eins alvarlegt og við bjuggumst við. Þrátt fyrir þetta góða aðgengi höfum við tekið okkur verulega á og ákveðum helst hvað á að vera í matinn næstu tvo daga, mikil framför frá því að ákveða klukkan sex hvað á að vera í kvöldmatinn.

Í dönskum anda erum við líka dugleg að elta tilboð. Morgunjógúrtin mín er til dæmis alltaf á tilboði í einhverri búðinni, svo hana kaupi ég sjaldnast á fullu verði. Verra er með bensínið. Verðið á því sveiflast mikið og er allt frá því að vera 10.5 – 12.5 krónur líterinn. Það segir sig sjálft að maður kaupir helst ekki bensín ef verðið er í efri mörkunum og er alltaf með augum á verðskiltunum þegar maður keyrir um. Ég hef komist að því að bensínið er að jafnaði ódýrast á morgnana og sendi eiginmanninum sms og rek hann í bensínkaup ef ég sé hagstætt verð. Samt nagar kvíðinn og maður lifir í stöðugum ótta að kannski verði bensínið ódýrara á morgun. Það er vandlifað.

Af almennri aðlögun fjölskyldunnar er sömuleiðis fátt nema gott eitt að segja. Stóra daman er í móttökubekk, þarf reyndar að fara um 10 kílómetra í skólann og er keyrð til og frá í leigubíl. Bílstjórarnir eru ekki öfundsverðir af hlutskiptinu, því ég efast um að hún leggi munninn aftur á leiðinni. Hún veit orðið margt um þeirra einkahagi og nýjasta sagan var að hún lagði línurnar um hvað 12 bræður hennar ættu að heita (sem hana dreymir um, ekki að þeir séu væntanlegir). Eins og gefur að skilja gengur henni ágætlega með dönskuna og tekur óhikað þátt í samræðum. Hana skortir að minnsta kosti ekki sjálfsöryggið.

Sú stutta er hjá dagmömmu hér skammt frá. Við göngum þangað og ef stuttu fæturnir fá að bera sig sjálfir getur fimm mínútna túr auðveldlega orðið 40 mínútna túr því það er að mörgu að hyggja á leiðinni. Við göngum yfir sjálfa Eg-ána, sem er endalaust uppspretta gleði. Ég hætti ekki að furða mig á hægu rennsli hennar. Ef maður mælir óvísindalega hvað laufblað fer hratt yfir þá eru það svona 3 sentimetrar á sekúndu. Stundum finnst mér jafnvel að áin renni upp í mót. Þetta er fallegt umhverfi og gaman að ganga þessa leið. Litlu dömunni gengur sömuleiðis vel í dönskunni. Hún kann að segja leverpostej (sem hlýtur að teljast grundvallaratriði) og min duddi (= min sut) og það er voða krúttlegt þegar koma dönsk orð úr þessu litla munni.

Eiginmaðurinn er líka í dönskunámi og líkar ágætlega. Honum finnst þó full mikil áhersla á málfræði, ekki síst í ljósi þess að þetta er ekki flókin málfræði og svo leiðist honum þegar kennararnir sýna bíómyndir og velja myndir uppfullar af drama. Þannig skrópaði hann um daginn af því að hann nennti ekki að horfa á Pelle Erobreren og eiginkonan er afar hneyksluð á því að láta svona meistarastykki fram hjá sér fara.

Jæja, látum gott heita í bili. Ég sakna MA óskaplega og þrátt fyrir varnaðarorð Jónasar skoða ég tölvupóstinn minn oft í viku til að fylgjast með hvað er á seyði. Bið að heilsa.

Hafdís

PS Til Jónasar ef þú hefur enst svona lengi – fórum loks í pílagrímsferðina miklu að skoða gömlu heimkynni þín. Þorðum ekki að gera langt stopp til að góna á húsið af því að það voru íbúar fyrir utan en þetta leit hlýlega út og gatan hin notalegasta. Hjóluðum til baka meðfram Egánni, höfðum ekki tekið stíginn frá höfninni áður og hann var alveg frábær. Skemmtileg blanda af ríkisbubbahöllum og fátækrahreysum þarna við Strandhusvej. Og ég lýsi yfir miklum stuðningi við vorferðina til Danmerkur

Helgardagskrá
Þá er helgin að verða liðin án þess að við höfum nokkuð farið til útlanda. Ákváðum að leika túrista í Árósum í staðinn og fórum með strætó í gær niður í miðbæ, til að sleppa við að borga formúu í bílastæðagjöld og til að gleðja Skottuna. Það stóð heima, hún var alsæl í strætó nema hvað það var mjög óforskammað af foreldrunum að leyfa henni ekki að fara um allt eins og hún vildi. Við röltum síðan um í bænum, fórum hinar og þessar götur sem við höfum ekki farið áður og sérstaklega fannst okkur göturnar í elsta hlutanum vera sjarmerandi. Gömul hús og þröng húsasund, það er eitthvað svo sjarmerandi. Fórum á kaffihús og fengum okkur tertur og héldum svo áfram göngunni. Slysuðumst inn í tvær verslanir í leit að íslensku nammi (sem ég var þó búin að finna í Irmu á föstudaginn), fórum annars vegar í Magasin og þar var auðvitað skemmtilegt að vera en hefði getað verið skemmtilegra kerru- og barnlaus … Fengum svolítið nammi þar, litum síðan líka inn í Tiger og þar sáum við ekkert nema Ópal og keyptum það ekki. Endaði svo á því að kaupa brenndar möndlur og ég og Skottan gúffuðum þeim í okkur á methraða.

Í dag ákáðum við að halda í smá pílagrímsferð og fórum á tveimur fljótari (s.s hjólandi) að skoða gamlar slóðir Jónasar (jarðfræðikennara, ekki nafna hans Hallgrímssonar). Sáum hvar hann bjó hér um árið og hjóluðum svo meðfram ánni, áttum eftir að fara svolítinn stíg þar og það var ekki galið, húsin þar ýmist svaðalegar villur eða smá húskofar (sem tilheyra sennilega upprunalegum íbúum). Þaðan fórum við í búðina og þegar upp var staðið var þetta rúntur upp á tæpa 8 kílómetra, ágætlega af sér vikið enda höfum við verið í lata gírnum undanfarið og ekki hjólað mikið. Skottan er líka alsæl með þennan ferðamáta og mátti varla vera að því að fara úr kerrunni til að gefa öndunum á Egánni brauð. Svo dagskráin í dag hefur verið með allra besta móti fyrir hana – og versnaði ekki þegar verslunarferðin var búin og í farteskinu eitt stykki terta   Í kvöld á svo að láta reyna á útlenska lambakjötið, keyptum innanlæri af nýsjálensku, verður fróðlegt að prófa það. Við gripum reyndar tvær sneiðar af kálfakjöti svona til að hafa á kantinum til vara…

Þær systur voru mældar í morgun. Strumpan orðin 137 sentimetrar og 30,7 kíló, Skottan aftur á móti um 86 sentimetrar og 11,3 kíló. Ég man ekki sambærilegar tölur fyrir Strumpuna en rámar í að hún hafi verið lægri, byggt á þeirri kenningu að þegar maður er tveggja ára hafi maður náð helmingi af endanlegri hæð (ok, kenningin er væntanlega rugl, amk eru strákar venjulega ekki hærri en stelpur á þessum aldri, kannski gildir þetta bara um stelpur   en sem sagt finnst mér eins og tala Strumpunnar hafi bent til þess að hún yrði um 165 sentimetrar. Ég sagði henni að það væri hefð fyrir því að eldri systur væru lægri en yngri systur. Það gildir alla vega í eina tilfellinu sem skiptir máli, þ.e.a.s. hjá mér og Önnu

Svo fór ég í krabbameinsskoðun á föstudaginn, um að gera að nota tækifærið þegar maður fær það fríkeypis. Það var ekkert klefadæmi að fara í slopp hér, bara vesgú og klæddu þig úr á meðan ég set upp hanska. Ég tók þessu með stóískri ró enda alvön og hafði  líka í huga að þetta væri að minnsta kosti ekki Orri, bara einhver Søren sem ég myndi ekki þekkja aftur þó ég sæi hann úti í búð.

Utanlandsferðir í stórum stíl
Þýskalandsferðin var að mestu leyti vel heppnuð. Innkaupin voru hin skemmtilegustu en þess má geta að þrátt fyrir að við höfum aldrei keypt jafnmikið magn af bjór og léttvíni um ævina þá vorum við eins og algjörir amatörar í samanburði við þá sem mest keyptu.  Strumpunni fannst mjög spennandi að vera stödd í Þýskalandi og beið spennt eftir því að fara yfir landamærin. Það var nú samt nokkuð mikill antiklímax en hún hefur þó á afrekaskránni að hafa komið þangað. Á bakaleiðinni stoppuðum við í litlum bæ sem er þekktur fyrir hunangskökur. Ég kom þarna fyrir 17 árum svo það var full ástæða til að endurtaka leikinn. Þess má geta að það var stemmingin í aftursætinu sem dró aðeins úr gleði foreldranna. Skottan veit þann leik skemmtilegastan að fá snuð og henda svo í gólfið og varð heldur súr þegar aðrir nenntu ekki lengur að leika.

Á sunnudaginn fórum við mæðgur í bíó á Strumpana, Strumpan fullyrti að hún hefði skilið megnið  af myndinni svo það er auðvitað hið besta mál. Það var líka einkar ánægjulegt að fara í bíó án þess að hafa hlé en það vakti athygli mína að popp og kók er selt í bandarískum stærðum og við mæðgur réðum ekki við popp af meðalstærð.

Við fengum ánægjulegar fréttir á þriðjudagskvöldið, Strumpan komin inn í tónlistarskólann, byrjar reyndar ekki fyrr en eftir þrjár vikur. En kennarinn hljómaði hinn geðugasti í símann, tímarnir verða í Læssøgadeskole (þar sem Strumpan er) svo það er ágætt á meðan hún er enn þar en auðvitað heljarinnar keyrsla fyrir mig.

Af skólanum hjá mér er það helst að frétta að ég þykist hafa séð kertið, jamm það er ekki svo gott að ég hafi séð ljósið, en það er aðeins að birta til. Ég er loks komin með hugmyndir fyrir ritgerðirnar mínar, og hef agnarlitlar hugmyndir um kenningar. Í dag var ég að kynna hópverkefni og afrekaði það að finna kenningar sem pössuðu, svo já, það eru jákvæðar, agnarlitlar framfarir.

Aftur í raunveruleikann
Við yfirgáfum Svíþjóð á föstudaginn var, lögðum af stað frá Önnu og Martin klukkan 10. Stoppuðum um eitt leytið í litlum bæ (sem heitir Hova eða eitthvað þess háttar og er einkum þekktur fyrir riddarahátíð í júlí) og borðuðum í bakaríi staðarins. Síðan var bara keyrt áfram, ætluðum alltaf að stoppa á Max til að fá okkur hinsta sænska borgarann en þegar við komum til Gautaborgar var ægileg föstudagsumferð þar svo við nenntum ekki að stoppa þar og síðan kom í ljós að það var ekki neinn Max í nágrenni við Varberg. Við lentum í smá töfum á hraðbrautinni út af árekstri en það var aldrei neitt stress af því að við vorum svo tímanlega.Í Varberg borðuðum við á týpískri pizzeriu/kebab stað og fórum svo í risastóra Ica í leit að Prinsesstårta. Skottan geystist um alla búð, dauðfegin að vera laus úr bílnum svo við eyddum dágóðri stund þarna, fundum okkar prinsessutertu og keyptum líka smávegis súkkulaði (þó ekki Nissa með lakkrís sem við fundum þarna okkur til mikillar gleði). Eftir þessa fínu búðarferð keyrðum við að ferjunni og komumst mjög fljótlega inn. Dömurnar voru alsælar á ferjunni, þar var þetta fína leikherbergi, sem Skottan sérstaklega tók ástfóstri við og þurfti nánast ekki að hugsa meir um hana. Strumpan varð aftur á móti aðeins sjóveik eftir tveggja tíma siglingu, enda var ansi hvasst og skipið svolítið órólegt eftir því. Hún fór nokkrar ferðir út til að hressa sig við og þar var varla stætt fyrir litlar dömur. En það dugði, við komum svo í land upp úr miðnætti, þá hafði Skottan ekkert sofið allan daginn, enda var hún snögg að sofna í bílnum á leiðinni heim. Þessari ferð lauk um hálf tvö, eftir ca. 15 og hálfan tíma á ferðalagi. En vel þess virði, við vorum öll í skýjunum með vel heppnaða ferð.

Strumpan var ósköp glöð að komast í skólann, var eins og unglingur að lýsa bekkjarfélögunum eftir fyrsta daginn, því það höfðu þrír farið í klippingu !!! og það þurfti miklar upphrópanir og stunur að segja frá því. Hún fór svo heim með Arndísi vinkonu sinni í dag og fær að gista og það er mikil gleði. Skottan var nokkuð sátt líka að komast í félagsskapinn en vikan hefur þó verið óvenjuleg að því leyti að hún fór í dag og á miðvikudaginn til afleysingadagmömmu. Loks fengum við sem sagt að reyna þetta danska kerfi, sem skaffar afleysingu ef dagmamman er veik eða í fríi. Það var óróleg mamma sem fór með dömuna sína á miðvikudagsmorgunn. Afleysingin reyndar enn nær en sú fasta, sennilega ekki nema svona 300 metrar til hennar, eða svo. Skottan hafði séð hana og börnin hennar áður (kerfið virkar sem sagt þannig að það eru nokkrar dagmömmur sem mynda hóp og hittast einu sinni til tvisvar í viku, í leikfimi og leikstofu) svo það var ekki alveg verið að kasta henni í hendurnar á ókunnugum en samt því sem næst. Hún var líka pínu efins og vildi ekki að ég færi en við vorum ákveðin í að láta á þetta reyna. Enda kom í ljós þegar ég sótti hana seinni partinn að þetta hafði gengið ljómandi vel, sömuleiðis í dag, svo ég er ögn rólegri með þetta. Og vissulega eru þægindi í því fólgin að þurfa ekki að redda sér, þó við séum auðvitað ekki rígbundin, ég meira að lesa og Mummi á sjálfstýringu í sínum verkefnum.

Skólinn var líka ágætur í vikunni (sem hann er reyndar yfirleitt), að þessu sinni voru við með sameiginlegan tíma fyrir alla áfangana á þriðjudaginn. Okkur var skipt í hópa og áttum að lesa efni heima sem við unnum svo áfram með í tímanum. Ég var í hóp sem fjallaði um Breska þjóðarflokkinn, sem ég vissi lítið um áður og hafði litlar væntingar um að væri spennandi en síðan reyndist þetta mjög áhugavert og með skemmtilegri hópverkefnum sem ég hef tekið þátt í. Hinir hóparnir fjölluðu um “trafficing” sem ég veit ekki hvað heitir á íslensku, þetta er ekki alveg það sama eins og að smygla fólki, af því að það er sjálfvalið, og um Róma þjóðflokkinn. Það eru oft mjög áhugaverð efni til umfjöllunar hjá okkur og þá er gaman að vera til. Það er líka gott að finna hvað kennslan hefur þó gefið manni af reynslu að koma fram, mér finnst þetta frekar lítið mál þótt það þvælist aðeins fyrir mér að tala á ensku ef ég er ekki alveg með undirbúið hvað ég á að segja. Sumir nemendur eru hins vegar mjög óöruggir, meira að segja þeir sem tala frábæra ensku og eru jafnvel öflugir í litlum hópum. Það var líka skemmtileg tilbreyting að nemendurnir komu með þjóðarrétti með sér. Ég kom með skyr og rjóma (þó að danska skyrið sé platskyr með jógúrtgerlum en ekki skyrgerlum) og það vakti ágæta lukku en þótti frekar skrýtið að hella rjóma með   . Og ekki kunni ég neina skýringu hverju það sætti. Ég smakkaði eitt og annað nýstárlegt en vissi sjaldnast hvað ég var að borða eða hvaðan það kom, nema síldin og pølser i svøb   .

Strumpan fór til tannlæknis í gær og nú er gott að vera í Baunalandi og fá tannlæknaþjónustu ókeypis. Henni bauðst að fara í skorufyllingu með 6 ára jaxlana og það þáðum við með þökkum svo hún fer aftur fljótlega, verst að hún skuli ekki geta fengið spangir strax og ljúka því af….

Við erum svo að spá í að fara á næsta stig í dansk-aðlögun og keyra til Þýskalands á morgun og kaupa haug af víni, bjór og gosi, jafnvel smá súkkulaði líka. Þó okkur blöskri nú ekki verðin á þessu dagsdaglega (nema kannski gosinu) þá er ansans mikill munur á verði hér og í Þýskalandi. Og fyrir ykkur sem eruð að spá í að koma í heimsókn, þá hlýtur þetta að vera lokkandi … nóg af alkohol og gosi á bænum!

Svíþjóðarpistill
Þegar á mann er skorað verður að bregðast hratt við. Erum stödd í hábæ Dalanna, Säter og verðum hér fram á föstudag. Það er sem sagt kartöflufrí í hámarki og við nýtum það svona líka vel með því að heimsækja ættingja í norðri. Hófum ferðina á föstudag, sigldum frá Árósum til Odden og keyrðum síðan í sumarbústaðinn og gistum þar eina nótt. Keyrðum svo til Stokkhólms (ökuferðin gekk vonum framar með aftursætisfarþegana og leiðin ný fyrir okkur og mjög svo falleg á köflum) og vorum hjá Sigga og Sigrúnu fram á þriðjudag. Áttum þar góða daga, að mestu leyti í rólegheitum en fengum okkur þó gönguferð niður í Gamla Stan og versluðum á Drottninggatan, maður verður nú að styrkja Svíana. Systur heilluðust mjög af Wii og fengu báðar að grípa í leiki. Hér í Säter eru svipuð rólegheit, þ.e.a.s. bara verslað “lítillega”, annað ekki gert. Ég segi ekki að þetta verði söguleg Svíþjóðarferð, svona verslunarlega, en veskið hefur verið viðrað af og til. Höfðum gælt við að fara í sund í Borlänge, þar er prýðileg sundlaug sem við Strumpan fórum í 2005 en það kostar hins vegar 250 krónur fyrir okkur þar inn svo það verður að bíða betri tíma. Við förum svo heim á leið á föstudag, þá verður maraþonkeyrslan mikla, keyrt til Varberg og þaðan siglt til Grenå, þar sem við komum í höfn síðla kvölds. Það verður spennandi að sjá hvernig þetta fer.

Október hefur að mestu verið með ágætum, þó það hafi komið nokkur þunglyndismóment yfir náminu. Ég lauk fyrsta hópverkefninu áfallalaust en er í valkvíða með efni fyrir stóru ritgerðina mína. Mig langar að skrifa um eitthvað sem tengist Íslandi en ég vil ekki að orðið krísa komi fyrir … Svo mætti ég á fyrsta fredagsbarinn minn og það var ágæt reynsla, frekar róleg samt þar sem ég sat frá hálf fjögur til fimm og drakk mína tvo bjóra. Börnin sem eru með mér í skólanum eru samt alveg ágæt miðað við aldur og fyrri störf svo það er yfirleitt gaman að spjalla við þau.

Hjá Strumpunni var hátíð í skólanum. Allir í bekknum áttu að koma með mat, við mættum með skyr og rjóma. Það féll í ágætan jarðveg. Svo var töframaður og dans og dömunni fannst þetta feikilega gaman, það spillti þó aðeins fyrir að móðirin hafði ekki rænu á að koma með spariföt og að við vorum ekki allt til loka en Skottan var að stíga upp úr veikindum og ekki alveg upp á sitt besta, sömuleiðis var Mummi lasarus og ekki von að við entumst allan tímann.

Skottunni fer ekki síður fram í dönskunni en Strumpu. Nú notar hún óspart ja og nej, auk þess að kveðja (og heilsa) með hej hej. Sömuleiðis á hún víst að kunna að segja leverpostej en hefur ekki fengist til þess fyrir framan fjölskyldumeðlimi. Hún kann einnig að segja hjem. Það er ekki hægt annað en kætast yfir þessu. Talið kemur hægt og bítandi en vantar enn ansi mörg hljóð. Hún kann þó að segja s þegar hún vandar sig og getur orðið sagt ssssss óley og ssssss unna en vantar aðeins upp á tenginguna. Snuðið heitir Muuu ….

Látum gott heita frá Sverige og biðjum að heilsa í bili.

Afmælisstuð
Þá er indælisdagur að kveldi kominn í henni Danmörku. Skottan orðin tveggja ára og mun sennilega hvorki eiga rólegri afmælisdag né hlýrri í bráð. Hún var vakin með söng í morgun eins og hefð er fyrir á heimilinu og kættist mjög. Var varla komin fram úr þegar hún heimtaði graut og verandi afmælisbarn gat móðirin ekki neitað henni um það, þótt það sé bæði leiðinlegt og subbulegt (þ.e.a.s. þegar barnið borðar grautinn). Daman fékk síðan að opna einn pakka (eða reyndar tvo því eins og stundum áður þá komu pakkar í fleirtölu frá Svíþjóð). Móðirin misskildi aðeins seinni pakkann, hann innihélt dádýrskálf (altså en død én) en mamman hélt að þetta væri bara svona svakalega ljótur köttur og talaði fjálglega um kisa. Það gekk ekki vel að leiðrétta þennan misskilning, svo líklegast mun dádýrið heita Kisi.

Skottan átti góðan dag hjá Mariane, það var flaggað fyrir henni að dönskum sið, hún fékk afmælisbollur og svo var að sjálfsögðu sungið, bæði “I dag er det Sunnas fødselsdag” og “happy birthday to you”. Hún virtist vel með á nótunum í þessu öllu og samgrísirnir hjá dagmömmunni agalega sáttir að fá bollur. Þegar hún kom heim fékk hún auk þess vöfflur með kaffinu, þær renna alltaf ljúflega niður enda vel smurðar með hvítri smurolíu   . Þegar Strumpan kom heim var lagt í að opna pakkana og þær sátu saman og opnuðu sitt á hvað. Það voru komnir pakkar frá afa og ömmu í Holtateigi og Öddu ömmu og Gylfa afa, auk pakka frá okkur. Þetta var mikið stuð og pakkarnir vöktu allir lukku hver á sinn hátt.Eftir smá skype-session drifum við okkur út að borða, eins og stundum áður á McDonalds og afmælisbarnið fékk hollan og góðan kvöldverð sem samanstóð af frönskum og shake. Enn meira skype eftir mat og svo bæl.

Annars var undirrituð í hópvinnu í morgun og kom svona líka sterk inn í tæknideildinni, kenndi hópnum sínum að nota google docs. Gamla er með þetta   . Ætli kennaragenið komi ekki líka að góðum notum í næstu viku þegar við kynnum verkefnið, ég vona að minnsta kosti að ég verði ekki mjög stressuð að tala fyrir framan hópinn. Það er helst þessi enska sem stundum bögglast á leiðinni. Á mánudaginn talaði ég til dæmis um many sprogs…

Ég var svo á LC fundi í gær, geri reyndar fátt annað, því einn fundur er varla liðinn þegar næsti brestur  á. Fékk einmitt það hlutverk að tala um eitthvað “aktuelt”. Það þvældist aðeins fyrir mér af því að ég hef svo lítinn tíma til að lesa blöð og horfa á fréttir. Datt loks inn á að tala aðeins um Christianiu, sem varð 40 ára á mánudaginn. Þetta var bráðhollt, ég ákvað að tala blaðlaust en setti niður nokkra minnispunkta heima til að hugsa aðeins um hvað ég gæti sagt. Þetta verður minn aðal dönsku-vettvangur held ég, þarna þarf ég bæði að tala og hlusta og finn talsverðan mun á mér eftir þessa þrjá fundi. Ég hafði líka íhugað að tala um sjónvarpsseríur, af því að DR er 60 ára og er að sýna gamalt efni. Mér datt í hug að það gæti verið gaman að tala um Matador og það hefði verið skondið því það kom svo í ljós að ein í hópnum er barnabarn Ghitu Nørby (sem lék einmitt Ingeborg svo snilldarvel).

Á morgun er von á Arndísi vinkonu Strumpunnar í heimsókn og þetta er á við litlu jólin, svo mikil er tilhlökkunin. Það á að vera sumarblíða fram á sunnudag, ég sem hafði skipað eiginmanninum að ganga frá garðstólunum því það yrðu ekki not fyrir þá meira þetta haustið en í dag fór hitinn yfir 20°.