Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Laugardagur, 30. ágúst 2003 klukkan 15:28

Kemst varla á netið

Síminn lokaði á adslið mitt í gær í staðinn fyrir að bíða til mánaðarmóta og ég kemst því ekki á netið heima, þeir gátu ekki bjargað því þó ég hafi hringt um leið og netið datt út því allir voru að fara (ekki farnir). Þetta pirraði mig, mikið.

En við fórum áðan og skoðuðum húsgögn í IKEA og Rúmfatalagernum. Í IKEA ákváðum við að kaupa skáp undir geisladiska, dvd og videospólur því þó hann sé ljótur þá er hann ægilega heppilegur.

Kannski ég reyni að tengja fartölvuna við netið svo ég geti skroppið eitthvað aðeins inn núna um helgina. Núna er ég að nýta mér frábæra þjónustu S24 á netkaffihúsinu í Kringlunni.

Föstudagur, 29. ágúst 2003 klukkan 14:40

Veikur maður erindast

Var að erindast áðan, ók alla leið út í Kringlu (sem tekur lengri tíma en að labba þangað). Byrjaði á að bíða í lengri tíma hjá Landssímanum eftir afgreiðslu til að segja upp símanum og líka til að breyta gsm-áskriftinni minni yfir í frelsi. Síminn er skítafyrirtæki, að ímynda sér að hafa bara tvo af fjórum básum mannaða þegar búðin er að fyllast, rugl.

Næsta stopp var Hagkaup og þar keypti ég spil sem okkur Eygló hefur lengi langað í, Scrabble, fjör framundan.

Að lokum fór í Bónus til að kaupa hakk, kók og mjólk (sem hljómar einsog kókómjólk ef það er sagt hratt). Þegar var búið að skanna allar vörurnar mínar inn þá kom í ljós að pappírinn var búinn í kassanum og verslunarstjórinn hljóp yfir í Eymundsson til að redda því. Gáfulegt.

Föstudagur, 29. ágúst 2003 klukkan 12:53

Mikilvægast að efnið sé lesið

Neil Gaiman er athyglisverður að vanda:

Beyond that — don’t ever apologise to an author for buying something in paperback, or taking it out from a library (that’s what they’re there for. Use your library). Don’t apologise to this author for buying books second hand, or getting them from bookcrossing or borrowing a friend’s copy. What’s important to me is that people read the books and enjoy them, and that, at some point in there, the book was bought by someone. And that people who like things, tell other people. The most important thing is that people read…

Fíla Neil.

Föstudagur, 29. ágúst 2003 klukkan 5:52

Skítkast skilar árangri

Ég er slappur, andvaka af ömurlegri líðan,ef ég skána ekki þá fer ég ekki í vinnuna á morgun (í dag eða í kvöld til að vera nákvæmur) sem á að vera síðasti vinnudagurinn í bili. Pirrandi. Ég hef annars eytt vikunni í að þjálfa eftirmann minn, hef í kjölfarið skilið hve margþætt starf mitt er í raun. Fékk annars loksins skó með stáltá í vinnunni, góð tímasetning.

Gærdagurinn var annars mjög stór á teljaranum, færslan um hann Sigurð Kára er örugglega mest lesna færsla sem ég hef skrifað þó ég telji hana langt frá því að vera besta dæmið um almenna ritsnilld mína. Fékk annars heimsókn frá Alþingi sem ég vona að hafi verið Dúfus sjálfur. Skítkast er greinilega vinsælt, sérstaklega ef því er beint að einhverjum sem á það svo augljóslega skilið.

Föstudagur, 29. ágúst 2003 klukkan 5:51

Flutningaplön

Ég geri ekki ráð fyrir að vera aktívur hér næstu daga, dett líklega úr netsambandi um leið og nýr mánuður hefst. Að vísu mun ég þá geta skroppið á netið í Háskólanum þannig að ég verð ekki alveg einangraður. Nú þegar ég hugsa um það þá veit ég ekki einu sinni hvert ég á að snúa mér til að láta mig í samband við Háskólanetið. Er með netkortið hans Ásgeirs sem ætti að duga fyrir utan að ég er ekki með driverana. Þetta reddast náttúrulega, maður hefur svosem nóg annað að gera í næstu viku annað en að hanga á netinu.

Annars þá er mikil tilhlökkun hjá mér að geta minnkað gjöldin til Landssímans um rúman tvöþúsundkall í viðbót, tveir mánuðir síðan þetta lækkaði einmitt um svipaða upphæð, þarf reyndar að byrja á að borga einhver gjöld vegna þess að ég er að færa símann (redda því á morgun).

Á morgun fer ég að redda sendiferðabíl til að flytja okkur, er reyndar ekki viss um hve stóran bíl þarf. Veit ekki hvað þetta mun kosta en ég ætla að gera verðsamanburð. Fer síðan að minna alla á flutninginn sem eiga að hjálpa okkur.

Á laugardaginn skreppum við Eygló í IKEA og Rúmfatalagerinn til að kíkja á húsgögn. Ég sá skáp sem er alveg tilvalinn undir geisladiska, videospólur og dvd í IKEA bæklingnum og eini gallinn er að hann er líklega ljótur, þurfum að skoða hann til að dæma almennilega.

Á sunnudag verður frágangur á lokastigi og mun ég til að mynda taka í sundur skrifborðið sem þessi talva er á, ætti kannski að gera það á miðnætti um leið og adslið dettur út.

Fyrrihluti mánudags mun skiptast milli skóla og þess að flytja viðkvæmari hluti (raftæki aðallega) á nýtt heimili, um klukkan fimm flytjum við líklega. Er búinn að plana að skilja Eygló eftir til að hún geti þrifið hérna en hef ekki sagt henni planið (reyndar er sumt af því sem ég er að skrifa hér minnisatriði fyrir mig enda hefur andvökunótt farið í plön).

Fimmtudagur, 28. ágúst 2003 klukkan 22:34

Trúarfærslur fara - eitthvað annað

Sumir lesendur mínir gleðjast kannski við að færslur mínar um trú hverfa nú héðan. Aðrir lesendur mínir geta glaðst yfir því ég mun auka skrif mín um trú og birta á öðrum vettfangi. Ég mun vissulega benda á þetta þegar ég fer af stað og líklega láta þetta inn á rss-yfirlitið.

Fimmtudagur, 28. ágúst 2003 klukkan 13:02

Fíflið hann Sigurður Kári

Þegar Sigurður Kári var kosinn á þing þá fannst mér það að vissu leyti slæmt af því hann verður hræðilegur Alþingismaður en einnig fannst mér það gott af því ég vissi að hann myndi nýta hvert tækifæri til að gera sig að fífli. Hann hefur ekki ennþá náð að gera neitt á þingi en samt búinn að niðurlægja sjálfan sig. Það var einstaklega gaman þegar hann sleppti því að borga hýsinguna á heimasíðu sinni þannig að hýsingaraðilinn tók síðuna niður og lét í staðinn “eigandi þessarar síðu hefur ekki borgar reikninginn sinn”. Alvarlegra er náttúrulega að hann ók fullur. Það ætti náttúrulega að spyrja náungann hvort hann hafi ekið fullur áður. Ekki myndi ég trúa honum ef hann neitaði því. Eru menn almennt teknir í hvert einasta skipti sem þeir aka fullir? Er það ekki frekar að þeir séu teknir þegar eitthvað átak er í gangi?

Fimmtudagur, 28. ágúst 2003 klukkan 12:06

Tvöfalt Steinunnarafmæli

Í dag er tvöfalt Steinunnarafmæli, Anna Steinunn systir mín er 34 ára (tíu árum eldri en ég) og Steinunn tengdamóðir mín er 43 ára. Ég óska þeim báðum til hamingju með afmælið.

Anna systir er einmitt á landinu og ég eftir að hitta hana og Haval einhvern tíman í næsta mánuði. Ég var einmitt að grínast með það þegar hún kom aðeins í sumar að hún ætti að koma um mánaðarmótin ef ég væri að flytja þá. Lengi vel var ég að reyna að halda þeim valmöguleika að skreppa til Akureyrar um þessa helgi opnum til þess að fara í afmælið hjá Hafdísi systur sem verður þrítug en því miður er ég of upptekinn. Fer seinna.

Miðvikudagur, 27. ágúst 2003 klukkan 23:20

Undarleg heimasíða

Var að skoða undarlega heimasíðu, reyndar tvær undarlegar heimasíður. Önnur síðan var fjallaði aðallega um einhvern hund og ekkert um eigandann. Þessi síða var síðan með borða sem stóð á “Stöðvum hvolpaframleiðslu” og á þeirri síðu var fjallað um illa meðferð á hundum á einhverjum stað. Þegar ég er búinn að skoða seinni síðuna fer ég aftur á þá fyrri og kíki á hlekki, sé ég þá að það er hlekkur þar á heimasíðu staðarins sem ásakaður var um illa meðferð á hundum. Þar kom ekkert fram um þessa meintu illu meðferð. Mér fannst þetta skrýtið.

Miðvikudagur, 27. ágúst 2003 klukkan 13:17

Meira af Foo Fighters

Það er búið að bæta við upplýsingum um tónleika gærdagsins á heimasíðu Foo Fighters. Það vantar að vísu frásögn um tónleikana þannig að ef einhver vill skrifa eitthvað um þá ætti sá hinn sami að flýta sér að gera það.

!!!Uppfært!!!
Bara að bæta við að Rás 2 tók upp tónleikana í gær þannig að þeir ættu að enda í útvarpinu.

Eldri færslur »