Segið það sem þið viljið um Jay Leno, þetta er snilld. Heimskingjar keppa í spurningakeppni, ég elska það.
Segið það sem þið viljið um Jay Leno, þetta er snilld. Heimskingjar keppa í spurningakeppni, ég elska það.
Ég er dottinn inn í Survivor í annað skiptið. Ég get ekki ímyndað mér að það sé erfitt fyrir nokkurn að velja lið í þessari keppni, annað er fullt af pirrandi fólki sem maður hatar á meðan það er bara einn glataður í hinu liðinu. Rupert er vissulega hetjan, hann vann hjarta mitt þegar hann stal draslinu af hinu liðinu. Það var hrikalegt að horfa á Söndru hirða segldúkinn. Ægilega fyndið með vælarann sem er alltaf að tala um lungnabólgu, ég hefði sparkað honum.
Þetta virðist annars ætla að vera skemmtilegt fyrir utan hve auðveldlega annað liðið virðist ætla að vinna. Maður veit aldrei hvernig þetta þróast þegar liðin sameinast.
Ég er að fara að undirbúa þennan fallega og indæla kvikmyndaklúbb sem ég minntist á í gær. Ætla að senda fólki sem mig grunar að hafa áhuga tölvupóst og þar að auki þeim sem hafa sýnt áhuga. Ég ætla að nýta hugmynd Badabing um að hafa Halloweenkvöld og þar með er þema kvölds númer tvö reddað. Þema fyrsta kvöldsins er ekki ákveðið og ég bið um hugmyndir en það er þó ekki nauðsynlegt þar sem ég ætti að geta fundið eitthvað sjálfur.
Fullt af skipulagsspurningum sem er ósvarað, finna eitthvað útúr því. Endilega sendið mér tölvupóst ef þið hafið áhuga á þessu. Alveg eins fólk sem ég kannast bara aðeins við.
Þegar við fluttum hingað þá skiptum við um símafyrirtæki og símanúmer þar sem það er fast númer hérna. Þegar síminn var loksins tengdur byrjuðum við að taka eftir svoltlu undarlegu. Á símanúmerabirtinum kemur reglulega upp “secret” einsog einhver hafi hringt með númeraleynd, málið er bara að við höfum aldrei heyrt síman hringja á þessum tíma og við höfum jafnvel verið í símanum þegar símtalið átti að hafa komið.
Það er líka annað undarlegt við þetta, þetta kemur eiginlega alltaf á sama tíma 21:29 fyrir utan að einu sinni koma þetta 18:29. Ég fatta ekki hvers vegna þetta gerist, augljóslega eitthvað að tækjunum samt.
Mikið er forsætisráðuneytið að skipta sér af þessu skjalamáli Laxness, að senda Sigrúnu Klöru á Gljúfrastein að ná í bréf sem er alveg ljóst að Auður vildi ekki að færu. Merkileg tilviljun líka að nú sé allt í einu þörf á því að láta Guðnýju hætta gæslu á Gljúfrasteini. Alltaf svona tilviljanir í kringum Davíð Oddsson.
Ég er að verða veikur enn eina ferðina, fatta ekki hvað er á seyði. Það gæti að vísu verið að þetta sé endalaust sama veikin því mér finnst ég aldrei hafa batnað almennilega.
Best að minna alla Vantrúnna, þar skrifa trúleysingjar pistla og trúmönnum er frjálst að svara (þó þeir virðist almennt ekki þora því).
Svo ég komi með smá teljarakomment þá má minnast á það að heimsóknir á síðuna mína jukust fjórða mánuðinn í röð og koma nú tvöfalt fleiri á síðuna mína en gerðu í maí. September hefði reyndar getað verið stærri í heimsóknum því fyrstu viku mánaðarins skrifaði ég nær ekkert. Ég hef gaman að þessu, ég játa það. Október gæti orðið stærri en ég efast um að heimsóknirnar muni aukast mikið eftir það. Hver veit samt almennilega. Fólk gæti fengið leið á mér af því ég er að tala um heimsóknafjölda.
Hér er komið mál sem fellur beint að þeim fræðum sem ég er að stúdera. Er réttlátt að fjölskylda Halldórs Laxness stöðvi aðgang allra nema valdra aðila að skjölum Halldórs sem hafa í raun verið gefin þjóðinni? Sverrir og Palli skrifuðu grein um þetta á Múrinn þar sem þeir telja fram góð rök fyrir því að það ætti ekki að loka aðgang að þessum skjölum og Sverrir kom áðan fram í Íslandi í Dag (með myndarlegt skegg sem ég hef ekki séð áður (reynið að ruglast á tvíbbunum núna)).
Ég játa að fyrst fannst mér þetta mál bara svoltið skondið. En ég pælt í þessu og hef komist að þeirri niðurstöðu að þessi ráðstöfun fjölskyldu Laxness sé ekki góð, fyrir almenn góð rök þá er einfaldast að lesa þessa góðu grein á Múrnum. Ég hef þá einföldu skoðun að upplýsingar ættu að vera eins aðgengilegar og hægt er, það væri heimskulegt af mér að taka aðra afstöðu þó mér líki ekki skoðanir þess sem hér er útilokaður. Ég held að þetta viðhorf sé nokkuð almennt innan Bókasafns- og Upplýsingafræðinnar, svona mál standa nokkuð nærri hjarta fræðigreinarinnar og því skil ég ekki hvers vegna er ekki talað við aðila innan greinarinnar í fjölmiðlum. Kannski af því að fólk veit ekki hvað Bókasafns- og Upplýsingafræðingar gera.
Stefni að því að titla mig Upplýsingafræðing í framtíðinni, það er svalt.
Ég hef ákveðið að halda svona kvikmyndakvöld heima hjá mér, eiginlega stofna kvikmyndaklúbb. Þetta hefur stundum komið upp í umræðunni, sérstaklega vorum við Siggi nálægt því að gera alvöru úr þessu en við höfðum enga raunverulega aðstöðu til að fá fleiri en svona fjóra. Einsog staðan er hérna þá hef ég sæti (misþægileg, ég hef hvíta stólinn fyrir sjálfan mig) fyrir allt að 14 manns (allt að er náttúrulega í mesta lagi). Miðað við hvernig ég hef pælt þetta þá sé ég ekki fyrir mér að Eygló mæti oft.
Ég ætla augljóslega fyrst að hafa samband við vini og vandamenn en mér finnst líka spennandi að fá kannski fólk sem ég þekki úr bloggheimum líka ef það hefur áhuga. Þeir sem hafa áhuga ættu bara að senda mér tölvupóst, oligneisti hjá því ágæta léna kaninka.net.
Fyrir utan fjölda sæta þá hef ég mitt 27″ tommu Nokia sjónvarp, mitt Daewoo video án LP, United dvdspilarann og síðast en ekki síst er talvan tengd við sjónvarpið sem eykur möguleikana.
Það sem ég vildi gera á þessum kvöldum er að taka 2-3 myndir fyrir (yfirleitt þrjár og hugsanlega fleiri ef þær eru stuttar, Marxbræðramyndir til dæmis) og þá er eitthvað þema í gangi. Einföld þema einsog að taka eina seríu fyrir, einn leikstjóra eða einn leikara, síðan væri líka hægt að hafa þemun flóknari líka. Nú veit ég að það munu ekki allir nenna að horfa alltaf á allar myndirnar og því er fólki frjálst að fara en helst ekki að koma seint.
Ég var að spá í að byrja á þessu kannski á föstudaginn í næstu viku, byrja kannski klukkan níu um kvöldið þó allt sé óljóst ennþá. Síðan myndi ég vilja gera þetta á svona 3-4 vikna fresti (jafnvel tveggja vikna fresti stundum).
Frekari útfærsla verður líklega gerð með tilliti til áhuga, giska að tölvupóstur verði mest notaður til að koma skilaboðum til áhugasamra.
Frétt á mbl.is um dóna í Reykjanesbæ:
“um klukkan 4:30 um nóttina [...] orðið þess áskynja að einhver var með vídeómyndavél utan við eldhúsgluggann og beindi vélinni inn um gluggann[...].
Fram kemur í dagbók lögreglunnar í Keflavík að maðurinn sá ekki hver var þarna á ferð en hann hafi verið í köflóttri skyrtu.”
Um leið dettur mér í hug hann Danni, les þetta fyrir Eygló sem datt líka í hug Danni. Eygló benti líka á að Danni hafi farið heim til Keflavíkur um helgina og “horft á video”. Málið leyst.
Badabing tekur sig til og ræðir fegurð mína fram og til baka, hann ber mig jafnvel saman við Johnny Depp og Sean Connery.
Fegurð mín er náttúrulega umtalsverð og til að viðhalda henni keypti ég mér í dag skeggsnyrti, varð að drífa í því vegna þess að Hagkaupsafslátturinn fer að renna út. Ég hafði hingað til notað hárklippigræju til að snyrta á mér skeggið en það 999 kr tæki er endanlega dáið. Sú græja var náttúrulega alltaf mjög slæm og gat til að mynda ekki unnið á hári mínu (sem er reyndar frekar þykkt).
Til að vinna á hári mínu hef ég hingað til notað venjulega rakvél sem Hafdís systir mín gaf mér eitt sinn í von um að ég myndi raka mig reglulega, hún er bjartsýn.
Nú er bara eitt sem ég þarf til að útlit mitt verði algerlega fullkomið hvern einasta dag og það er Queenbolur, svartur með einhverri svalri mynd. Skjaldamerkið til að mynda er alltaf klassískt en fleira getur virkað.
Duran Duran er hins vegar vanmetnasta hljómsveit allra tíma.
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is. Ég er síðan stundum á Skype undir oli.gneisti.
| S | Má | Þ | Mi | Fi | Fö | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| « ág. | okt. » | |||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | ||||
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)