Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Laugardagur, 31. janúar 2004 klukkan 13:26

Úttekt á deildarfundi

Deildarfundurinn í gær var í raun fínn. Ég mætti þarna svona fimmtán mínútum fyrr af því ég hafði ekki hugmynd um hvort ég þyrfti að redda mér einhverjum gögnum fyrst. Enginn var mættur en ég beið fyrir utan þarna eftir að sjá einhvern sem ég kannaðist við. Svona fimm mínútur í kom Ösp túlkurinn hennar Anne Clyde og ég spurði hana hvort hún vissi eitthvað, hún beindi mér á skrifstofu félagsvísindadeildar og sagði mér meiraðsegja hvernig maður kæmist þar inn þegar væri búið að loka henni. Ég fékk samt enga pappíra þar.

Eftir smá tíma kom Anne og ég spjallaði aðeins við hana. Hún sagðist hafa verið á ráðstefnu þar sem hefði verið rætt það vandamál að nemendur væru að blogga í tíma. Ég sagði að ég hefði aldrei gert það, leiðrétti mig síðan og sagði að ég hefði allavega aldrei gert það í tíma hjá henni. Við spjölluðum örlítið saman og síðan endaði það þannig að ég sat við hliðina á henni á fundinum. Ég fékk líka á endanum meirihlutann af þeim pappírum sem ég þurfti.

Fyrst var talað um fjárhagsmál og þau voru að mestu óbreytt frá síðasta ári, mín skor getur til dæmis ekki enn boðið upp á valáfanga sem er ægilega erfið staða.

Ýmislegt var kynnt á fundinum og þá var ég sérstaklega spenntur fyrir aukagreininni Safnafræði. Það var að vísu skondið að mér fannst þetta spennandi því Terry Gunnell baðst eiginlega afsökunnar á því hve nafnið væri ósexý.

Í lok fundarins var tekið fyrir áhugaverðasta málið, það eru ný Mastersnám (m.a. í Bókasafns- og upplýsingafræði). Um leið og Anne var að fara að kynna málið byrjaði náungi sem mig minnir að hafi verið frá Sálfræðinni að gagnrýna þessi fyrirhuguðu Mastersnám, virtist halda að skorirnar sem voru með þessar tillögur hefðu ekki íhugað hve mikil vinna fylgdi þessu. Ég var næstum búinn að biðja um orðið til að segja að ég hefði séð þessa vinnu hjá minni skor og vissi því að þetta væri nú allt úthugsuð.

Eftir nokkrar umræður um þetta fékk Anne Clyde loksins að byrja. Hún hélt þvílíka kynningu og það var alveg ljóst að það væri ekki hægt að gera neina athugasemd við það hvernig þetta hefði verið undirbúið hjá okkur. Hún var satt best að segja afskaplega flott og ég bara dáðist að henni enda hafði enginn neinar spurningar um þetta og tillagan var samþykkt einróma. Hinar Mastersnámskynningarnar fengu hins vegar á sig eitt mótatkvæði og þar að auki sátu nokkrir hjá.

Það er undarlegt að hugsa til þess að ég hef á vissan hátt tekið þátt í því að gera nám mitt minna virði en það hefði getað orðið. Á næsta ári geta þeir sem hafa BA próf farið í MLIS (LIS=Library and Information Science) nám sem er meira virði en mín gráða verður, áður fóru slíkir nemendur í starfsréttindanám sem er í raun minna virði en BA. Ég er hins vegar afskaplega ánægður að hafa tekið þátt í þessu og held að þetta sé framfaraspor fyrir skorina.

Föstudagur, 30. janúar 2004 klukkan 14:34

Deildarfundur og pirringur

Ég er að fara á deildarfund í Félagsvísindadeild núna bráðum, það verður áhugavert, peningamál verða rædd og miðað við stöðu Háskólans þá verður það líklega erfitt. Ég fatta ekki þann hálfvitagang hjá ríkisstjórninni að svelta Háskólann, mér þykir það svo ótrúlega augljóst að það borgar sig að sem flestir mennti sig, þessir peningar snúa aftur í þjóðarbúið með vöxtum. Þetta svo mikil skammsýni að maður að efast einfaldlega um greind þeirra sem standa að þessu.

Sama fólk hefur á sama tíma náð að auka peningaflæðið inn í heilbrigðiskerfið gríðarlega á meðan þjónusta við almenning minnkar. Glæsilegur árangur alveg.

Föstudagur, 30. janúar 2004 klukkan 9:42

Næsta skref hjá Vantrú

Vefurinn Vantrú er að stíga næsta skref, það er að stofna félag bak við vefinn. Ef þú ert trúleysingi sem ert hrifinn af vefnum þá ættirðu endilega að kíkja á þetta.

Fimmtudagur, 29. janúar 2004 klukkan 19:50

Dauði sjónvarps?

Sjónvarpið okkar var að deyja, það var orðið leiðinlegt í sumar en lagaðist aftur. Fyrir svona viku tók ég eftir að það var aftur byrjað að klikka aðeins þó það hafi ekki verið áberandi. Síðan ætlaði ég að kveikja á því áðan og þá kom rauða ljósið en engin mynd og ekkert hljóð. Ég kveikti og slökkti nokkrum sinnum en hætti því þegar ég fann smá brunalykt. Veit einhver hvað það þýðir?

Sjónvarpið er orðið 10 ára, kostaði heilmikið á sínum tíma en er líklega alveg búið að vera núna. Margar góðar stundir með því. Líklega kaupum við nýtt sjónvarp á næstunni, förum úr 27″ í 28″.

Fimmtudagur, 29. janúar 2004 klukkan 15:17

Aðstoð við sjúka

Í gær kom Hildur að teikna á Eygló og finna tónlist, í leiðinni tók til dvd myndir handa Evu litlu sem er verða veik. Myndirnar gleymdust að sjálfssögðu. Í morgun fengum við síðan sms um að Eva hefði ekki farið í vinnuna í morgun og þyrfti líklega eitthvað til að lifa af daginn. Við Eygló fórum af stað eftir Aðferðafræðina í morgun og skutluðum myndunum til hennar, Eva var nývöknuð en samt glöð með að fá myndirnar. Ægilega erum við góð.

Þessi saga á örugglega eftir að vekja lukku hjá þeim mörghundruð nýju lesendum sem eru á ferðinni á síðunni í dag.

Fimmtudagur, 29. janúar 2004 klukkan 8:53

Árangur

Ég náði að skrifa svoltið sem ég hef ætlað að koma útúr mér í langan tíma og lausnin var að gera þetta hreint út og einfalt, veit ekki hvort að þetta er jafn illa skrifað og annað sem ég skrifa í fartölvunni en það eiga aðrir eftir að lesa þetta yfir og þeir munu laga þetta fyrir mér (eða eyðileggja algjörlega). Ég hlakka til. Hver hefur sagt að Aðferðafræði 2 sé gangslaus?

Miðvikudagur, 28. janúar 2004 klukkan 9:16

Rugludallar á RÚV

Í gær var sjónvarpsþáttur á RÚV um “leitandi fólk”, ég skrifaði grein um þáttinn sem heitir Þið ráðið hverju þið trúið og henti inn á Vantrú.

Miðvikudagur, 28. janúar 2004 klukkan 1:29

Upphaflega útgáfan af Rauðhettu (Sori)

Neil Gaiman (sem maður ætti að lesa daglega, þegar hann skrifar daglega allavega) skrifar um upprunalegu útgáfuna af Rauðhetta:

“Later, as an adult, I remember encountering the story of Red Riding Hood in its original form, a French version that predated the cleaned-up ways of telling the tale I’d already encountered, and the bleak sexuality of the story came through: when she encounters the wolf in her grandmother’s bed, he eats and drinks her grandmother with her, then tells her to take off all her clothes and throw them on the fire — she wouldn’t be needing them any more, — and, finally, she joins him in the bed naked. And then, with no more ado, he eats her. And there the story stops, sometimes with a direct moral — not to talk to strangers — and sometimes without it.”

Þriðjudagur, 27. janúar 2004 klukkan 16:16

Reykjaneswood

Hver heldur að Hollywoodskiltið þeirra í Reykjanesbæ muni bæta ímynd bæjarins? Þetta er svo óendanlega kjánalegt. Reykjanesbær er líka svo ljótt nafn á bæjarfélagi, þetta væri líklega örlítið skárra ef nafnið væri eitthvað sem væri eitthvað til að monta sig af.

Þriðjudagur, 27. janúar 2004 klukkan 9:51

Hvernig stafar maður nafnið þitt?

Ég er að horfa á Survivor 2, reyndar sé ég ekki fyrir mér að ég endist allt maraþonið í dag (né nema fram að svona hádegi). Ég tók upp fyrstu seríuna sem var í gær og stefnan er á Survivor maraþon um helgina með þeim sem vilja, líklega byrjar þetta 12 eða 13 á laugardag og seinni hlutinn á sunnudag. Sjúkt vissulega.

Survivor 2 var fyrsta serían sem ég horfði á og reyndar hef ég bara horft á tvær seríur í allt. Mér finnst eitt alltaf svoltið bjánalegt þegar ég er að horfa á þetta og það er þegar fólk stafar nöfnin vitlaust en það er líklega erfitt að komast hjá því. Maður endist ekki lengi í þessum þætti ef maður er forvitinn um svona hluti.

Hæ!
Hæ!
Ég heiti Kimmy.
Er það með y eða ie?

Þetta eru ekki góð fyrstu kynni þannig að ég geri ráð fyrir því að þetta breytist.

Eldri færslur »