Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 31. mars 2004 klukkan 20:56

Rokksaga Íslands

Ég er að lesa *Eru ekki allir í stuði?*, festist eiginlega yfir henni áðan (mig vantaði reyndar ekki enn eina bók á náttborðið). Afskaplega áhugaverð bók, sérstaklega er þó skemmtilegt þegar Biggi kemur við sögu. Ég á eftir að standa mig ákaflega vel þegar ég horfi á næsta Popppunktsþátt.

Miðvikudagur, 31. mars 2004 klukkan 15:29

Eru ekki allir í stuði?

Við gerðum mikið í dag, skutluðum Hildi svo hún gæti fengið vegabréfanúmer. Fórum síðan og keyptum gjöf handa Svenna.

Við keyptum líka (handa okkur) bókina *Eru ekki allir í stuði?* eftir Dr. Gunna á 1999 krónur. Það hlýjaði mér um hjartaræturnar að sjá að hann þakkaði starfsfólki Þjóðarbókhlöðunnar fyrir aðstoð, ég sá hann einmitt þarna upp á Tón- og myndsafni um daginn (gær líklega) sem gefur til kynna að í næstu Popppunktsþáttum muni hann spyrja eitthvað um íslenska tónlist.

Við náðum í ökuskírteinið mitt, það er indælt að hafa gilt skilríki eftir tveggja ára hlé, mun jafnvel hafa tvö slík þar sem ég var líka að fá mér kreditkort (sem á varla að nota) eftir svona fjögurra ára hlé.

Við gerðumst vond og borðuðum á American Style sem fyrrnefndur Dr. Gunni segir að eingöngu FM-hnakkar sæki (sem væri vont) á meðan mér sýnist eintómir nördar borða þarna (sem er gott).

Að lokum keyptum við 15 w flúrperu, lit 830 warm white, í Rafsól Skipholti fyrir Rauðhólafólkið.

Miðvikudagur, 31. mars 2004 klukkan 9:39

Próf aftur

Þrjú próf í Aðferðafræði 2 yfir veturinn og þar að auki lokapróf, þetta er alltof mikið. Ég var í prófi í SPSS og ég var ekki að ná tíu, ég gæti hins vegar hafa náð svona 7. Þetta kemur allt í ljós.

Ég býst við að fá aðstoð hjá Hjörvari fyrir lokaprófið ef hann nennir að standa í svoleiðis.

Þriðjudagur, 30. mars 2004 klukkan 20:48

Þetta virðist vera rétt…

I’m an Atheist!

Which Enemy of the Christian Church Are You?

Take More of Robert & Tim’s Quizzes
Watch Robert & Tim’s Cartoons

Þriðjudagur, 30. mars 2004 klukkan 10:10

Tryggður og sparaður

Við keyptum okkur tryggingar í gær. Við hentum VÍS-bílatryggingunni og fórum til Varðar og hjá Verði keyptum við innbústryggingu. Innbústrygging kostar varla neitt. Við eignuðumst líka sameiginlegan sparireikning í gær fyrir alla peningana okkar.

Mánudagur, 29. mars 2004 klukkan 10:26

Yfirmaður Dilberts

Ég er að læra um stjórnun og ég er viss um að yfirmaður Dilberts hefur lært þetta. Yfirmenn sem hafa lært stjórnun eru fyndnir, sérstaklega þegar þeir með að stjórna verkamönnum. Þeir tala við starfsmennina og eru örugglega með fínt orð yfir það sem þeir gera. Hægt og rólega læra starfsmennirnir að koma með svör sem þeir vita að yfirmaðurinn er hrifinn af en er í raun ótengt því yfirmaðurinn ætlaði að ná fram, yfirmaðurinn fer á braut ánægður en starfsmaðurinn hristir höfuðið. Ég ætti að skrifa almennilega um þetta en ekki núna.

Mánudagur, 29. mars 2004 klukkan 0:54

Gömul tónlist en ekki ný

Ég hef verið að velta fyrir mér hvort ég ætti að eltast við miða á Deep Purple í von um að sjá Uriah Heep, ég er eiginlega kominn á þá skoðun að ég ætti að láta það alveg vera. Það gæti verið að ég verði súr ef Uriah Heep kemur en ég hef í raun bara engan áhuga á Deep Purple yfirhöfuð, hljómsveitin heillar mig bara ekki fyrir utan einstaka lag. Uriah Heep finnst mér hins vegar alveg brilljant.

Síðan er spurningin hvort maður eigi að vera eltast við hljómsveitir sem margir myndu segja að væru komnar langt fram yfir síðasta söludag, hljómsveitir þar sem margir upphaflegu meðlimana eru löngu hættir. Þetta er svoltið erfið spurning. Ég efast um að ég myndi nenna að sjá Paul spila Bítlalög enda pirrar sá maður mig töluvert. Ég myndi vilja fara á tónleika með Brian eða Roger úr Queen þar sem þeir spila eitthvað af Queenlögum en ég held að ég myndi samt frekar vilja heyra þá spila sólóefnið sitt. Uriah Heep væri ég alveg til í að sjá þó mér sé ljóst að þeir séu í dag bara skugginn af því sem þeir voru áður.

Ég fékk um daginn þá spurningu í Mr & Mrs hvort ég hefði frekar viljað vera pönkari eða hippi, svarið kom sumum á óvart, ég hefði frekar viljað vera hippi. Af hverju? Af því ég tel tónlistina sem spratt uppúr hippatímanum vera mun betri en tónlist pönksins.

Sem hippi hefði ég getað séð Queen, Smile, The Who, Uriah Heep, Pink Floyd, Bítlana, Black Sabbath, Rolling Stones, Cream, Led Zeppelin, Jimi Hendrix, Doors, David Bowie… þarf ég að telja meira? Pönkið getur bara ekki keppt við þetta. Ekki það að ég hafi neitt á móti pönki.

Reyndar gefur þessi listi í skyn að ég hefði verið hippi í Englandi og að ég hefði haft vit á að fara á tónleika með öllum þessum hljómsveitum sem er náttúrulega ólíklegt, maður kann aldrei að meta það sem maður hefur. Mun ég sjá eftir því að hafa ekki séð Mínus á tónleikum? Varla, það er eitthvað við Krumma sem pirrar mig alla leið til helvítis, alveg einsog pabbi hans og systir pirra mig þangað líka. Ég tek fram að ég er ekki að dæma börnin eftir foreldrinu heldur eftir því sem þau eiga sameiginlegt með foreldrinu.

Mánudagur, 29. mars 2004 klukkan 0:51

Upplýsingafræðipartí

Eða bókasafnsfræðipartí? Eða bæði? Það var vísindaferð á föstudag í Stéttarfélag Bókasafns- og Upplýsingafræðinga. Þar kom margt áhugavert í ljós, sérstaklega þegar talað var könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum. Þar kom í ljós að langflestir B- og U-fræðingar eru ánægðir með menntun sína, þetta hefur reyndar eitthvað versnað undanfarið en lofar samt góðu.

Stéttarfélagið var með bjór, hvítvín og rauðvín á boðstólnum en bara eina tegund af gosi, Egils Kristal. Af hverju er þetta svona alls staðar? Ein flaska af 2l gosi kostar eitthvað álíka og einn bjór en samt er alltaf minna úrval af gosi. Það er ekki auðvelt að vera edrú.

Við fengum áfengið með okkur í partíið sem var náttúrulega hérna hjá okkur Eygló. Þegar mest var voru öll sæti frátekinn. Ég talaði heilmikið við Sóleyju Láru áður en hún fór, Eygló spjallaði líka mikið við hana um sveitalífið sem þær eiga sameiginlegt.

Það fækkaði töluvert í partíinu eftir klukkan 21:00 (áfengisneysla hófst klukkan 17:00). Pöntuð var pizza og rætt um tónlist og blogg. Kom í ljós að sumir hafa komið fram í myndböndum með bæði Herberti Guðmundssyni og Sykurmolunum, geri aðrir betur. Reyndar kom um leið í ljós að sú hin sama er búin að vera að kíkja á dagbækur okkar Eyglóar og blogg almennt. Það spunnust skemmtilegar umræður uppúr því enda hafði Ásdís mörg áhugaverð komment/spurningar um blogg, ég endaði með að pæla heilmikið í þessu. Kannski meira um það seinna.

Uppúr miðnætti vorum við ein eftir með Halla, Danna og Hjördísi og ég byrjaði með mína margfrægu, stórskemmtilegu tónlistargetraun. Það stóð langt fram á nótt (Eygló gafst upp á undan gestunum okkar). Ég endaði nóttina á því að vaska upp og taka til sem varð til þess að Eygló varð þakklát og góð við mig í svona korter á laugardaginn.

Sagan búin.

Sunnudagur, 28. mars 2004 klukkan 14:01

Fréttablaðið í dag

Af því ég er ekki svalur þá bendi ég hér með á að það er talað við mig í Fréttablaðinu um könnun sem bendir til þess að um 67% Íslendinga trúi á upprisu Krists (miðað við það sem ég hef lært um punktspár í Aðferðafræði þá er þessi tala varla marktæk). Ég kem alveg ágætlega út og það sem er betra, ég hef að mestu látið vera að hugsa í sífellu: “Ég hefði átt að segja þetta eða hitt.” Þetta er semsagt talsmaðurinn ég sem ég minntist á á föstudaginn.

Það var annars skondið að ég hitti blaðamanninn á föstudaginn í Þjóðarbókhlöðunni. Báðir vorum við meira og minni uppteknir allan daginn fyrir en það hittist svo á að ég var að fara í tíma upp á Bókhlöðunni á sama tíma og hann var þar að stilla upp fyrir myndatöku. Hann hafði bara örsjaldan komið þarna inn á meðan ég eyddi meirihluta síðustu viku þar. Hvað er annars málið með þennan kött?

Mér var annars líka boðið í viðtal í útvarpi Borgarholtsskóla í vikunni en komst ekki, ég benti á Sigga Hólm og hann virðist hafa staðið sig vel þar, allavega fékk ég fallegt þakkarskeyti frá stúlkunni sem sá um þáttinn. Siggi Hólm á reyndar eitthvað í kommentum mínum í Fréttablaðinu í dag, þar að segja að ég las um Bel hjá honum. Síðan eiga Vantrúarbræður mínir eitthvað í kommentum mínum líka, allt er þetta samvinna.

Sunnudagur, 28. mars 2004 klukkan 13:04

Survivor 1 maraþon

Ég tók Survivor 1 upp þegar serían var sýnd í heild sinni og hef alltaf haft það plan að horfa á seríuna í heild sinni. Nú get ég eiginlega ekki beðið lengur og set því niður tíma á þetta. Um klukkan 13:00 á Föstudaginn Langa mun ég skella fyrstu spólunni í. Þeir sem vilja vera með ættu bara að hafa samband við mig, það þarf ekki að vera allan tíman, bara spurning um að mæta þegar nenn er til. Íha!

**Uppfært**
Í upphaflegu færslunni vantaði *Föstudaginn Langa* sem gaf í skyn að ég ætlaði að gera þetta í dag.

Eldri færslur »