Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Föstudagur, 30. apríl 2004 klukkan 13:04

Hver á kirkjuna? Hver á Þingvelli?

Frelsarinn er með grein um Þingvallamálið á Vantrú, umræðurnar komnar af stað og lofa góðu.

Fimmtudagur, 29. apríl 2004 klukkan 21:38

Grillið farið

Grillið sem hefur verið í bakgarðinum okkar frá því að við fluttum inn er loksins horfið á braut, ég er ánægður með það. Fólkið sem bjó hérna á undan okkur skyldi það bara eftir, við bjuggumst við að það yrði sótt eftir nokkra daga en svo var ekki. Einhvern tímann í október fauk verjan af því og það hefur fengið að ryðga þarna í kjölfarið. Það var ekki fyrren í janúar-febrúar sem var hringt í okkur og spurt um grillið. Fólkið lofaði að ná í það daginn eftir en ekkert varð úr því. Núna er grillið loksins farið, gleði.

Miðvikudagur, 28. apríl 2004 klukkan 0:48

Netprófaður

Congratulations!
Your IQ score is 135

This number is based on a scientific formula that compares how many questions you answered correctly on the Classic IQ Test relative to others.

Your Intellectual Type is Visual Mathematician. This means you are gifted at spotting patterns ? both in pictures and in numbers. These talents combined with your overall high intelligence make you good at understanding the big picture, which is why people trust your instincts and turn to you for direction ? especially in the workplace.

Ægilega eru persónuleikar okkarÓlafíu líkir, eiginlega alveg eins. Gott að vita þetta með stærðfræðina þegar ég er á leið í aðferðafræðipróf.

Þriðjudagur, 27. apríl 2004 klukkan 0:05

Brennidepillinn tekinn fyrir

Grein eftir mig á Vantrú: Kjaftæði í brennidepli

Ég er nokkuð ánægður með hana.

Mánudagur, 26. apríl 2004 klukkan 15:07

Af gefnu tilefni

Vegna umræðu um fjölmiðlafrumvarpið þá er rétt að taka fram að í hádeginu í dag rauf ég öll tengsl við Baugssamsteypuna, dagbókarsíða mín er því orðin frjáls og óháð.

Mánudagur, 26. apríl 2004 klukkan 11:36

Qigong

Á laugardaginn var qigong dagurinn og af því tilefni er nú grein um qigong á Vantrú.

Sunnudagur, 25. apríl 2004 klukkan 19:51

Gefandi

Það er fátt meira gefandi en að sjá frjálshyggjupostulana úr Sjálfstæðisflokknum tala gegn sannfæringu sinni til þess að fá aðeins fleiri mola af borðinu hans Davíðs. Pétur Blöndal má allavega eiga það að hann skríður ekki svona.

Laugardagur, 24. apríl 2004 klukkan 22:35

Í kvikmynd?

Þegar ég var úti að rölta upp Njarðargötuna í gær þá held ég að ég hafi lent í miðri kvikmyndatöku. Þetta var þannig að mér til mikillar furðu kom trukkur niðureftir götuna spúandi vatni yfir bílinn sem kom á eftir honum. Ég fatttaði ekki heldur alveg hvað var málið með draslið sem var fast framan á bílnum sem spúað var yfir, fyrren hann var kominn framhjá.

Ég sá að fólkið í einum bílnum þarna glotti að mér þegar ég reyndi að skýla mér fyrir gervirigningunni, ég vona að ég hafi ekki eyðilagt skotið með því að vera kjánalegur.

Laugardagur, 24. apríl 2004 klukkan 22:21

Gásir

Eftir göngutúrinn í kringum flugvöllinn á sumardaginn fyrsta þá fattaði ég hvað hið fullkomna nafn á náttúrufræðihúsið hefði verið, Gásir! Útaf gæsunum. Svona fattar maður alltaf eftir á.

Laugardagur, 24. apríl 2004 klukkan 21:03

Atomvæðingin

Eftir að Bjarni gerði Molana sína Atomvæna þá mælist ég til þess að allir Blogspot bloggarar Atomvæðist.

Þetta fer þannig fram að þið farið í Settings - Site Feed - Publish Site Feed - YES - Save Changes.

Þegar þetta hefur verið gert get ég fært ykkur inn á rss-yfirlitið hérna á aðalsíðunni svo allir geti séð hvenær uppfært er.

Ég er einmitt nýbúinn að færa fjölmarga inn á yfirlitið, nú síðast fór Sjúka stelpan þarna inn.

Eldri færslur »