Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 30. maí 2004 klukkan 1:51

Einhæft sjónvarp

Við vorum að flakka á milli sjónvarpsstöðva áðan og þá kom svoltið skondið í ljós, við skoðuðum fjórar stöðvar - Skjáeinn, Sjónvarpið, Stöð 2 og Sýn - og í einni myndinni var bara samansafn af fólki sem var á hinum stöðvunum. Náunginn sem lék pabbann í American Pie var bæði í Lampoon’s Vacation á S1 og í einhverri bjánalegri körfuboltamynd, í körfuboltamyndinni var lið að spila sem var líka að spila á Sýn og þar að auki var einhver krakki í bæði á RÚV og Stöð 2 (þar á meðal í körfuboltamyndinni). Við drógum þá ályktun af þessu að það væru í raun mun færra fólk í Bandaríkjunum en almennt er talið.

Föstudagur, 28. maí 2004 klukkan 19:35

Allt staðist

Jæja þá eru allar einkunnirnar komnar, allt gekk upp. Ég hefði svosem viljað fá hærra í Aðferðafræði 2 en miðað við allt þá er ég bara sáttur, eitt ár og 37 einingar komnar í hús, ágætt það.

Miðvikudagur, 26. maí 2004 klukkan 20:21

Nauðsynlegur hluti lífsins

Á Skjáeinum var kokkur sem leit á “mat sem nauðsynlegan hluta lífsins”, hvernig getur matur verið annað en nauðsynlegur hluti lífsins?

Þriðjudagur, 25. maí 2004 klukkan 1:17

Survivor spoiler í Fréttablaði þriðjudagsins

Þið Survivor aðdáendur þarna úti sem hafið ekki frétt hver vann milljónina frá áhorfendum ættuð að forðast Fréttablaðið í dag, á bls 36 er grein sem upplýsir þetta, ég mæli með að þið bara flettið framhjá þessari opnu. Þið missið ekki af neinu, á hinni síðunni er mynd af Dorrit í einhverjum kjól.

Þetta er nú leiðindaklúður hjá Fréttablaðinu, þeir virðast ekki hafa haft það á hreinu að þátturinn sem þessi milljónaverðlaun verða veitt er ekki sýndur fyrren í næstu viku.

Mánudagur, 24. maí 2004 klukkan 22:18

42%

Fór í gegnum símanúmerin í símanum mínum til að skoða kynjahlutföllin. Um fjórðungur símanúmerana voru hjá stofnunum eða hjá pari, þegar þau númer hafa verið tekin útúr myndinni þá stendur eftir að 42% eru símanúmer hjá kvenfólki en 58% hjá karlfólki, tel ég þetta hlutfall gefa ágæta mynd af mér.

Það er spurning um að grein númerin nákvæmlega, vinir, fjölskylda, fyrirtæki, óvinir og rugl.

Sunnudagur, 23. maí 2004 klukkan 22:59

Gamall viðskiptavinur

Það er gamall viðskiptavinur minn í sjónvarpinu, kom reglulega í perubúðina og var alltaf áhugaverður, ég skrifaði örugglega um hann færslur. Hann á víst að vera að tala um Eggert Magnússon en er aðallega að tala um sjálfan sig sem er honum líkt.

Sunnudagur, 23. maí 2004 klukkan 22:38

Maddaman

Ég hef það á tilfinningunni að Maddaman hafi aldrei verið jafn vinsæl og síðan að þessi “bilun” kom upp, vefrit sem hafði aldrei neitt áhugavert að segja er orðið frægt eftir dauðann. Ætli Maddaman snúi aftur? 15. september kannski? Ægilega eru þessir framsóknarmenn miklir aumingjar.

Sunnudagur, 23. maí 2004 klukkan 21:39

Ircarar blogga

Eru gömlu ircararnir loksins búnir að átta sig á því að Ircið er dautt og því farnir að blogga? Fyrst kom Sicky og núna Patzy.

Sunnudagur, 23. maí 2004 klukkan 19:53

Erlendar forsetaframbjóðendafrúr

Áhugaverð staðreynd? Mér sýnist sem að allar forsetaframbjóðendafrúrnar séu af erlendum uppruna, Dorrit náttúrulega, síðan einhver ensk með þessum Baldri og ef ég man rétt þá er Ástþór giftur rússneskri konu.

Föstudagur, 21. maí 2004 klukkan 0:20

Týr með íslenskan gítarleikara

Týr hefur nú loksins fengið nýjan gítarleikara í staðinn fyrir þann sem hætti rétt eftir að síðasta plata kom út, þetta eru að góðar fréttir enda hefur það verið ákaflega erfitt fyrir Heri að vera bæði aðalgítarleikari og aðalsöngvari. Síðan er nýji gítarleikarinn íslenskur, heitir Ottó Páll Arnarsson og er úr Mývatnssveit, hef reyndar ekkert heyrt um hann áður en Týr hefur nú það háan standard þannig að hann ætti að vera góður.

Eldri færslur »