Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Föstudagur, 30. júlí 2004 klukkan 22:36

Hvað er í veskinu mínu?

Hvað er í veskinu mínu:

* Þrjár myndir af Eygló + ein af okkur saman
* Bókasafnsskírteini frá Bókhlöðunni og Borgarbókasafninu (hið seinna er gagnslaust vegna nýja kerfisins)
* Gula kortið sem staðfestir að ég var í HÍ síðasta vetur.
* Afsláttarkort frá Videoheimum, síðasta spóla sem ég tók var fríspóla.
* Tvö afsláttarkort frá American Style.
* Debetkort
* Ökuskírteini
* Kort í Bíófélaginu 101 sem ég held að sé löngu dautt.
* Kort frá Bifreiðaverkstæði
* Lyklar úr vinnunni
* Ýmsar kvittanir, til að mynda fyrir skóm.
* Tveir bíómiðar, Spiderman 2

Hvað er hægt að segja um mig útfrá þessu? Reyndar er aðeins búið minnka í veskinu akkúrat núna.

Föstudagur, 30. júlí 2004 klukkan 14:45

Bölvaður maðurinn 2

Eftir þrjár vikur þá á einhver eftir að bölva mér fyrir að samþykkja að vinna á laugardegi, fjandinn hafi það.

Föstudagur, 30. júlí 2004 klukkan 14:16

Bölvaður maðurinn

Um síðustu helgi var ég að bölva manninum sem ákvað mánuði fyrr að ég gefa eftir frídaganna mína. Þetta var einkar tillitslaus og leiðinlegur maður sem var greinilega alveg sama þó það væri sól og blíða úti á meðan ég væri fastur inni í vinnunni. Helvítið hann Óli Gneisti, af hverju hugsaði hann ekki fram í tímann.

Föstudagur, 30. júlí 2004 klukkan 11:50

Góð hugmynd

Ég held að ég hafi fengið góða hugmynd í gær, ég held að mér hafi meiraðsegja tekist að sannfæra aðra um ágæti hugmyndarinnar sem er yfirleitt þar sem mínar góðu hugmyndir stoppa. Meira síðar.

Fimmtudagur, 29. júlí 2004 klukkan 17:22

Gneistaflug 2004

Nú fer að líða að því að Gneistaflug 2004 verði haldin í annað skiptið. Í fyrra gengu hátíðarhöld framar vonum og því er ekkert til fyrirstöðu að endurtaka leikinn. Einsog þeir vita sem fylgdust með hátíðinni í fyrra þá er þetta eina færanlega hátíðin á landinu. Ef ég verð í stuði gæti ég í raun farið landshorna á milli þó að ég verði væntanlega yfirleitt ekki meira en í svona tíu metra fjarlægð frá tölvunni minni ef veður verður leiðinlegt.

Margar stórar hljómsveitir spila á Gneistaflugi 2004 einsog á fyrri hátíðum, Queen er náttúrulega aðalhljómsveitin en væntanlega munum við heyra frá fleiri hljómsveitum svo sem Brúðarbandinu, Tý og Placebo. Í raun munu allar hljómsveitir sem mig langar að hlusta á spila á Gneistaflugi, stuðinu lýkur ekki nema ef ég dett úr stuði.

Á morgun verður væntalega dömukvöld en restin af helginni er alveg víðopinn, ég mun reyndar sjálfur ekki taka þátt í dömukvöldinu enda er ég engin dama.

Sem fyrr eru einkunarorð hátíðarinnar:
*Komdu í fjörið!
Eða láttu mig vera ef þú ert leiðindapési.*

Fimmtudagur, 29. júlí 2004 klukkan 15:42

Að redda tölvumálinum

Áðan reddaði ég tölvumálum, ég stakk tækinu í samband við rafmagn.

Miðvikudagur, 28. júlí 2004 klukkan 14:43

Erfiðleikar að skipuleggja Færeyjaferð

Það virðist ekki vera auðvelt að skipuleggja Færeyjaferðina. Vandamálið er fyrst og fremst hve seint um kvöldið ég myndi lenda ef ég færi, á þeim tíma eru engar rútuferðir og bílaleigan virðist vera lokuð. Ég kæmist ekki einu sinni til Þórshafnar þarna um nóttina, bömmer. Síðan væri að sama skapi erfitt að ná fluginu út. Verð væntanlega að fresta þessu en ætla ekki að gefast upp strax.

Þriðjudagur, 27. júlí 2004 klukkan 23:04

Jeeves & Wooster

Ég er búinn að taka *Jeeves & Wooster* af gjafahugmyndalistanum, keypti það nefnilega sjálfur “The whole jolly lot”.

Þriðjudagur, 27. júlí 2004 klukkan 20:39

Spurning til þeirra sem þekkja til Færeyja…

Hvernig kemst maður frá flugvellinum til Klaksvíkur? Fer maður í rútu? Fer rútan í ferjur? Hvað kostar svoleiðis?

Þriðjudagur, 27. júlí 2004 klukkan 18:44

Þögn besta svarið

Stundum er þögn besta svarið sem maður getur hugsað sér að fá.

Eldri færslur »