Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 30. september 2004 klukkan 14:48

Jóhannes

Eygló og Svenni eru á leið í jarðarför afabróður síns. Við sem förum ekki getum kíkt á þessar sögur sem hann Benedikt birtir um pabba sinn: Ævintýri úr Þýskalandi nasista

Fimmtudagur, 30. september 2004 klukkan 13:18

64 skyrdollur

Ég er með 64 skyrdollur sem ég þarf að raða í ísskápinn minn, grúví.

Fimmtudagur, 30. september 2004 klukkan 10:53

Varðandi Hæstarétt Íslands

Ég ætla að fylgja Daníel eftir í þessu máli og var því að senda yfirlýsingu til Dómsmálaráðuneytis (postur@dkm.stjr.is), ég hvet aðra til að gera hið sama:

Ég, Óli Gneisti Sóleyjarson kt. 040279-3779, lýsi því hér með yfir að ég undanskil mig hér með undan dómum Hæstaréttar Íslands og mun ekki líta svo á í framtíðinni að dómar hans eigi við um mig, né mun ég lúta þeim, þar sem ég tel Sjálfstæðisflokkinn ekki hafa neina lögsögu yfir mér og mínu lífi. Gildir þessi yfirlýsing þangað til Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson hafa látið af störfum Hæstaréttardómara eða þangað til dómarar verða skipaðir af öðrum en ráðherra á grundvelli annarra krafna en skyldleika og flokksskírteina. Hafa síðustu tvær skipanir í dóminn svo ofboðið réttlætiskennd minni og siðferði að ég finn mig knúinn til að gefa þessa yfirlýsingu. Virðingarfyllst:
Óli Gneisti Sóleyjarson

Fimmtudagur, 30. september 2004 klukkan 1:42

Nostradamus

Það er líf í Vantrú þessa dagana, í dag er það þýðing á grein úr Efahyggjuorðabókinni um Nostradamus eftir Lalla.

Miðvikudagur, 29. september 2004 klukkan 17:47

Úffittíúff

Viðtal á Bylgjunni, ég var taugaóstyrkur og mér fannst það ekki ganga neitt ofurvel. Gengur bara betur næst….

Miðvikudagur, 29. september 2004 klukkan 13:54

Geir gerir í brækurnar

Jæja, einhvern tímann hélt ég að Geir hefði meira vit í kollinum en hinir í þessum flokk en ég hafði greinilega rangt fyrir mér, hann er bara einsog restin.

Miðvikudagur, 29. september 2004 klukkan 13:34

Ræktin

Jæja, hvað gerði ég? Eða öllu heldur við. Við Eygló stukkum á tilboð í líkamsrækt og rétt áðan fórum við í fyrsta skipti, það var merkilega hressandi. Ég var svo sem ekki að leggja mikið á mig í þetta sinn en stefni á að gera mér þetta alltaf aðeins erfiðara. Það eina sem vantaði í þetta skipti var öskrandi rokktónlist til að drekkja ömurlegu tónlist sem á heima á flestöllum svona stöðvum.

Miðvikudagur, 29. september 2004 klukkan 1:10

Skyr og kvikmyndasýning

Það hefur verið upplýst hvað ég var að dylgja um, Vantrú býður þingmönnum upp á skyr og öllum upp á kvikmyndasýningu. Ég hlakka til.

Þriðjudagur, 28. september 2004 klukkan 21:47

This is because librarians are cool

Hér eru upplýsingar sem sumum hefur yfirsést en þeim er hér með komið til skila.

>This is because librarians are cool.
> - Neil Gaiman

Þriðjudagur, 28. september 2004 klukkan 12:15

Spennandi tímar

Spennandi tímar framundan, við erum að láta vaða og vonum að allt gangi eftir, vonandi heyrir fólk af þessu á morgun eða á fimmtudag, allavega á föstudag, þá verður gaman.

Eldri færslur »